Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 9. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 24. tölublað 106. árgangur
BAREIN VILL
ÆVIRÁÐA
GUÐMUND
MJÖG
UMDEILD
ÍÞRÓTTAKONA
GERA ÆTTI ÞÝÐ-
ENDUM HÆRRA
UNDIR HÖFÐI
TONYA HARDING 12-13 ÁSTRÁÐUR EYSTEINSSON 26-27ÍÞRÓTTIR 1
Bygging nýrrar Ölfusárbrúar ofan
við Selfoss, sem í bígerð er að reisa
innan fárra ára, er meðal verkefna í
vegamálum sem kemur til greina að
fjármagna með veggjöldum. Þetta
segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
gönguráðherra, sem vill hraða upp-
byggingu í sínum málaflokki, þar sem
mikilvæg verkefni bíði. Í því efni má
nefna tvöföldun Vesturlandsvegar á
Kjalarnesi, framkvæmd sem Akur-
nesingar þrýsta nú mjög á um að ráð-
ist verði í, þá hugsanlega með einka-
framkvæmd eða aðkomu lífeyris-
sjóðanna. „Þessa valkosti verður að
skoða með tilliti til jafnræðis og
landsins alls,“ segir Sigurður Ingi í
samtali við Morgunblaðið í dag.
Ráðherrann telur sömuleiðis mikil-
vægt að bregðast við nýrri þróun; það
er stöðugri fjölgun rafbíla sem sleppa
eðli málsins samkvæmt undan skatt-
heimtu sem leggst á jarðefnaelds-
neyti eins og bensín. Vegna þess þurfi
að finna nýjar tekjuöflunarleiðir í
samgöngumálum eins og sé í skoðun í
stjórnkerfinu.
Með opnum huga
Á Suðurlandi hefur verið þrýst
mjög á um byggingu nýrrar brúar yf-
ir Ölfusá og raunar fleiri brýn verk-
efni. „Einhverstaðar þurfum við að fá
peninga í nýja vegi og ekki koma
eldsneytisgjöldin af rafmagnsbílum,“
segir Gunnar Þorgeirsson, formaður
Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, í
samtali við Morgunblaðið.
„Því finnst mér að þessa tillögu
samgönguráðherra þurfi að ræða af
opnum huga, það hefur til dæmis
enginn sagt hve hátt gjald yfir brúna,
eða fyrir notkun á leiðum þar sem
vegtollar yrðu innheimtir, verði. Það
er mikill munur á því hvort gjaldið er
1.000 eða 100 krónur. Og ný brú yfir
Ölfusá er nauðsyn, því á umferð-
ardögum á sumrin þegar umferðin er
mest myndast þar teppur, sem stund-
um ná frá Selfossi og langleiðina að
Hveragerði,“ segir Gunnar Þorgeirs-
son.
Leita
nýrra
leiða
Ölfusárbrú verði
einkaframkvæmd?
M Jafnræði sé »6
Á síðasta ári stofnuðu 8.030 einstaklingar til
hjúskapar sem er tæplega 21% aukning frá
árinu 2016. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóð-
skrá var met slegið í skráningu hjúskapar á
síðasta ári og hefur verið stöðug aukning frá
árinu 2014.
Síðasti „toppur“ í hjúskaparskráningu var
árið 2007 þegar 7.680 einstaklingar skráðu sig í
hjúskap, eða fyrir tíu árum síðan.
Næstu ár á eftir, þ.e. frá 2008 til ársins 2014
fækkaði skráningum almennt séð, allt til ársins
2015 þegar skráningum á ársgrundvelli tók að
fjölga. Lögskilnuðum fjölgaði einnig á síðasta
ári samanborið við árið 2016. Árið 2017 voru
1.462 lögskilnaðir skráðir í þjóðskrá og var það
aukning um 57 frá árinu áður eða um 4%.
Aldrei hafa fleiri lögskilnaðir verið skráðir
en árið 2017, en árið 2016 var einnig metár.
Fleiri skráðir í hjúskap
í fyrra en árið 2007
Gifting Metfjöldi stofnaði til hjúskapar.
„Það er hugsað um þessi mál, en þau eru
sjaldan kláruð,“ segir Guðjón Heiðar Pálsson
um hvernig íslensk fyrirtæki eru búin undir
möguleikann á að missa óvænt lykilstarfs-
mann. Hvort sem það er slys, veikindi, afbrot
eða hneykslismál sem veldur þá geta félög ver-
ið illa stödd ef ekki hefur verið gerð áætlun
sem tryggir að halda megi rekstrinum gang-
andi og að þeir sem hlaupi í skarðið hafi að-
gang að öllum þeim gögnum, samböndum, um-
boðum og undirskriftum sem þeir þurfa.
Krísuteymi þarf að taka strax til starfa og m.a.
hjálpa starfsfólki að takast á við áfallið. »14
Fyrirtæki þurfa áætlun
ef stjórnandi fellur frá
„Örninn er frísklegur og fer vonandi aftur út í frelsið á allra næstu dög-
um,“ segir Kristinn Haukur Skarphéðinsson fuglafræðingur. Á laugar-
dagsmorgun handsamaði Þórarinn Óli Rafnsson á Staðarbakka í Miðfirði í
Húnaþingi vestra haförn á bökkum Miðfjarðarár. Hann kom svo suður með
fuglinn í gær og afhenti hann fuglafræðingnum. Haferninum hefur verið
gefið nafnið Höfðingi og það er hann líka svo sannarlega. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Höfðinginn
er frískur og
flýgur senn
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Mér finnst mjög athyglisvert að for-
maður VR sé með svona beinum
hætti að hafa afskipti af kjöri í öðru
félagi. Ég man ekki eftir að hafa
heyrt af slíku,“ segir Gylfi Arnbjörns-
son, forseti Alþýðusambands Íslands,
í samtali við Morgunblaðið.
Tilefnið er að Ragnar Þór Ingólfs-
son, formaður VR, hefur lýst yfir
stuðningi við framboð Sólveigar
Önnu Jónsdóttur til embættis for-
manns Eflingar. Ragnar Þór sagði í
samtali við mbl.is í gær að ef Sólveig
og hennar framboðslisti næði kjöri,
væri Gylfa Arnbjörnssyni ekki lengur
sætt sem forseta ASÍ.
„Forysta ASÍ er kosin á þingum
ASÍ og tengist ekkert kjöri í einstaka
aðildarfélögum. Ragnar Þór hefur
búið sér til einhverja kenningu um að
á bak við þetta liggi einhver önnur
ákvörðun en að kjósa til forystu félag-
anna,“ segir Gylfi, sem segist lítið
skilja í téðum ummælum Ragnars.
VR og Efling eru samanlagt með
tæplega helming félagsmanna Al-
þýðusambands Íslands innan sinna
raða, um 33 þúsund í VR og 28 þús-
und í Eflingu. Gylfi segir vel kunna að
vera að félögin tvö geti reynt að taka
yfir miðstjórn ASÍ í sameiningu, það
komi bara í ljós á næsta þingi Alþýðu-
sambandsins.
Hann segir Ragnar Þór verða að fá
að ráða því sjálfur með hvaða hætti
hann fjalli um þessi efni. „Einhverj-
um hefði þó þótt áhugavert að heyra
afstöðu annarra stjórnarmanna í
VR,“ segir Gylfi.
„Ég hef ekki í mínu starfi haft af-
skipti af kjöri í forystu aðildarfélag-
anna. Það eru félagsmenn Eflingar í
þessu tilfelli sem ákveða það með
hvaða þætti þau vilja haga sinni for-
ystu og það er alveg ljóst að á þingum
Alþýðusambandsins er fjallað um og
tekist á um stefnumótun. Ragnar hef-
ur verið á þingum ASÍ í nokkuð mörg
ár. Hann hefur tvisvar sinnum boðið
sig fram gegn mér og í bæði skiptin
tapað því,“ segir Gylfi.
Forseti ASÍ segir afskipti
formanns VR fordæmalaus
Formaður VR lýsir yfir stuðningi við frambjóðanda í formannskjöri Eflingar
MSólveig vill formannsstólinn »6