Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 29. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Ferðamenn á hættuslóðum …
2. Karabatic pirraður …
3. Ekki gott að hafa dóm á bakinu
4. Bendir á þjófnað kortafyrirtækis
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Íslensku bókmenntaverðlaunin
verða afhent við hátíðlega athöfn á
Bessastöðum annað kvöld. Að vanda
eru fimmtán bækur tilnefndar í
þremur flokkum, en tilnefnt er í
flokki barna- og ungmennabóka,
flokki fræðirita og bóka almenns efn-
is og flokki fagurbókmennta. Bein út-
sending verður frá afhendingunni í
Ríkissjónvarpinu og hefst hún kl.
19:50 og stendur í um hálfa klst.
Morgunblaðið/Golli
Verðlaunin afhent í
beinni annað kvöld
Sycamore Tree
heldur tónleika í
Skyrgerðinni,
Hveragerði á
föstudag kl. 21.
Sveitin leikur efni
af plötu sinni
Shelter í bland við
nýtt efni. Syca-
more Tree skipa
Ágústa Eva Erlendsdóttir og Gunnar
Hilmarsson, en þeim til fulltingis
verða Unnur Birna Björnsdóttir og
Arnar Guðjónsson.
Sycamore Tree treð-
ur upp í Hveragerði
Bryndís Schram er kvöldgestur
Hannesarholts á fimmtudag kl. 20.
Þar býður hún gestum til
stofu og lítur yfir farinn
veg. Hún er þekkt sem
ballerína, fegurð-
ardrottning og leik-
kona og eiginkona
stjórnmálamanns,
en hver er hún
sjálf? Miðar eru
seldir á vefnum
tix.is.
Bryndís Schram
lítur yfir farinn veg
Á þriðjudag Austlæg átt, 8-13 m/s, snjókoma eða slydda með
köflum S- og V-lands, annars bjartviðri. Norðlægari og él á annesj-
um N-lands um kvöldið. Frostlaust syðst, allt að -12°C fyrir norðan.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í suðaustan 5-10 m/s í kvöld. Víða
frostlaust með S- og V-ströndinni, en frost annars 1 til 10 stig,
kaldast NA-til.
VEÐUR
Fyrri keppnishelgi Reykja-
víkurleikanna fór fram um
helgina. Júlían J.K. Jó-
hannsson setti nýtt Evr-
ópumet í réttstöðulyftu
þegar hann lyfti 372,5 kg í
klassískum kraftlyftingum
og var það hápunktur helg-
arinnar. Sex Íslandsmet
féllu í ólympískum lyft-
ingum og Íslendingar sóp-
uðu að sér verðlaunum í
sundi, júdó, karate og fleiri
greinum. »1,4,5
Evrópumet og
flottur árangur
„Ég sagði upp samningi mínum við
Stjörnuna eftir síðasta tímabil og ég
er búin að vera samnings-
laus síðan þá. Það voru
þrjú lið sem komu til
greina, Stjarnan, Breiða-
blik og Valur. Ég heyrði
aðeins í Val en að lok-
um valdi ég á milli
Breiðabliks og Stjörn-
unnar,“ sagði Agla
María Albertsdóttir,
landsliðskona í knatt-
spyrnu, eftir að hún
ákvað að söðla um og
ganga til liðs við
Breiðablik. »1
Agla María segir þrjú lið
hafa komið til greina
Spánverjar urðu í gærkvöldi Evr-
ópumeistarar í handknattleik karla.
Þeir unnu sænska landsliðið, sem er
undir stjórn Kristjáns Andréssonar, í
úrslitaleik í Zagreb Arena, 29:23. Sví-
ar réðu lögum og lofum í fyrri hálfleik
en í þeim síðari snerist taflið við.
Þetta er í fyrsta sinn sem Spánn
verður Evrópumeistari í handknatt-
leik karla. »2
Kristján og lærisveinar
máttu bíta í súra eplið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Mikilvægast af öllu er að koma börnunum
okkar til fullorðinsára með heilar tennur.
Það er ótrúlega gott veganesti fyrir alla,“
segir Elín Sigurgeirsdóttir, formaður Tann-
læknafélags Íslands.
Í dag hefst árleg tannverndarvika sem
Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Ís-
lands standa fyrir.
Skilaboðin til landsmanna nú sem fyrr
eru að huga betur að tannheilsunni og
leggja enn meiri áherslu á góða tannhirðu.
Skipuleggjendur hvetja fyrirtæki sem flytja
inn tannhirðuvörur til að kynna vörur sínar
í vikunni og stjórnendur verslana eru
hvattir til að bjóða frekar afsláttarkjör af
hollum mat og tannhirðuvörum í stað sæt-
inda.
Að þessu sinni er lögð áhersla á yngstu
og elstu íbúa landsins. „Tilfinning okkar
tannlækna er sú að tannheilsa barna hafi
tekið stakkaskiptum frá árinu 2013 þegar
gjaldfrjálsar tannlækningar voru teknar
upp í áföngum. Þær ná nú til allra barna á
aldrinum 0-18 ára,“ segir Elín.
Vilja hefja forvarnir sem fyrst
„Börnin okkar og unglingar voru orðin
illa stödd. Það var svo kostnaðarsamt fyrir
barnafjölskyldur að koma með börnin í
eftirlit og endurgreiðslur voru af skornum
skammti að það var í sjálfu sér fjárhagsleg
hindrun. Við sem fagfólk erum ótrúlega
ánægð með þá breytingu sem hefur orðið.
Nú fáum við bara einstaka slæm tilfelli inn
til okkar,“ segir Elín en nú er lagt upp með
að hefja forvarnir sem fyrst.
„Við hvetjum foreldra til að koma með
börnin inn um tveggja ára aldur. Það er
ekki endilega til að láta barnið gapa heldur
til að veita foreldrum fræðslu, aðlaga barn-
ið, leyfa því að finna tannlæknalyktina og
átta sig á því að það er ekkert til að vera
hræddur við. Því fyrr sem við sáum þeim
fræjum, þeim mun betra. Það vill loða við
alla ævi ef börn eru hrædd við tannlækna.“
Aldraðir hafa dregist aftur úr
Elín segir það fagnaðarefni að 500 millj-
ónir hafi verið eyrnamerktar til endur-
greiðslu tannlækninga fyrir aldraða og ör-
yrkja á þessu ári.
„Sá hópur hefur dregist aftur úr. Það
eru 20 ár síðan ráðherragjaldskráin var
sett. Samkvæmt lögunum er hún sett
tímabundið, tæplega kallast 20 ár tíma-
bundið. Þessi ráðherragjaldskrá var síðast
hækkuð 2004. Aldraðir fá endurgreidd
75% af gjaldskránni en þurfa samt að
borga uppsett verð hjá tannlækni og þar
er allt önnur gjaldskrá sem hefur verið
uppfærð reglulega eftir verðlagi og vísi-
tölu. Niðurstaðan er að aldraðir fá allt
niður í 15-20 prósent endurgreidd og það
er ekki gott ástand. Þetta verður til þess
að eldra fólk, lífeyrisþegar sem hafa
kannski úr litlu fjármagni að spila veigra
sér við að fara til tannlæknis. Þar af leið-
andi er tannheilsa lífeyrisþega komin í
óefni að mati okkar.“
Tveggja ára börn til tannlæknis
Morgunblaðið/Eggert
Tannverndarvika Elín Sigurgeirsdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, segir að tannheilsa barna
hafi tekið stakkaskiptum en aldraðir og öryrkjar hafi dregist aftur úr og að bæta þurfi úr því ástandi.
Tannverndarvika hefst í
dag Tannheilsa barna tek-
ið stakkaskiptum síðustu ár
Í tannverndarviku eru stjórnendur leik-, grunn- og
framhaldsskóla hvattir til að leggja áherslu á fræðslu,
umfjöllun og viðburði sem tengjast tönnum og tann-
heilsu. Fræðsluefni og myndbönd um tannhirðu má
nálgast á landlaeknir.is og heilsuvera.is þar sem ungt
fólk er hvatt til þess að huga betur að tannheilsunni.
Stjórnendur leikskóla eru enn fremur hvattir til að
kalla eftir upplýsingum um skráðan heimilistann-
lækni og upplýsa foreldra um að börn yngri en þriggja
ára eiga nú rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum.
Foreldrum og forráðamönnum barna er bent á að
panta tíma í tannskoðun fyrir börn sín ef ekki er búið
að ganga frá skráningu heimilistannlæknis.
Áhersla á fræðslu
TANNVERNDARVIKA GENGUR Í GARÐ