Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018 Handritshöfundarnir ogleikstjórarnir OlivierNakache og Eric Tole-dano sýndu það og sönn- uðu með kvikmyndinni Intouchables eða Ósnertanlegir frá árinu 2011 að þeir eru býsna lunknir að segja góð- ar sögur á skemmtilegan hátt. Nýj- asta mynd þeirra, gamanmyndin Le sens de la fête eða Svona er lífið, var opnunarmynd Frönsku kvik- myndahátíðarinnar 2018 sem hófst í síðustu viku og stendur fram á sunnudag. Hér segir af Max (Jean-Pierre Bacri) sem í áratugi hefur starfað í veitingabransanum við góðan orðstír. Myndin gerist á tæpum sól- arhring í lífi Max þar sem hann er að leggja lokahönd á og stýra öllu utanumhaldi um mannmarga og virðulega brúðkaupsveislu Pierre (Benjamin Lavernhe) og Hélénu (Judith Chemla) á glæsilegu 17. ald- ar óðalssetri. Max hefur skipulagt allt í þaula, allt frá blómaskreyting- unum og flugeldunum til tónlistar- flutningsins – svo ekki sé minnst á matseðilinn og framreiðsluna. Í fyrri hluta myndar sjáum við und- irbúninginn og síðan tekur sjálf veislan við sem endist fram í morg- unsárið. Þó að Max sé eðlilega í forgrunni er persónugalleríið stórt og margar litríkar og skemmtilegar persónur kynntar til leiks. Meðal þeirra er hægri hönd Max, Adèle (Eye Haid- ara), sem langar að takast á við aukna ábyrgð en á stundum aðeins of erfitt með skapið í sér – sérstaklega gagnvart hinum sjálf- umglaða söngvara James (Gilles Lellouche) sem reynist undir hrjúfu yfirborði vera hinn ljúfasti; mágur Max, fyrrverandi frönskukennarinn Julien (Vincent Macaigne) sem glímt hefur við þunglyndi en reynir að sinna þjónshlutverkinu af alúð á milli þess sem hann hjálpar sam- starfsfélögum af erlendum uppruna með pappírsvinnu þeirra í sam- skiptum við hið opinbera; sam- starfs- og ástkona Max, Josiane (Suzanne Clément), sem er ósátt við að hvað hann dregur það lengi að skilja við eiginkonuna þó að hjóna- bandið virðist dauðadæmt og reynir að gera ástmann sinn afbrýðisaman með því að leita sér huggunar í faðmi ungs lögreglumanns, Patrice (Kévin Azaïs), sem vinnur sem þjónn í hjáverkum; hrokafulli við- skiptavinurinn Pierre sem veit fátt betra en að tala um eigið ágæti á milli þess sem hann skammast yfir lélegri frammistöðu annarra; hrak- fallabálkurinn Samy (Alban Ivanov) sem þykist kunna að þjóna til borðs en hefur afgerandi áhrif á veislu- kvöldið með klaufaskap sínum og ekki síst ljósmyndarinn Guy (Jean- Paul Rouve) sem glímir við kulnun í starfi og vill fremur einbeita sér að kræsingum hlaðborðsins eða föngu- legum konum en að smella af í gríð og erg. Max og starfsmenn hans eru á þönum alla myndina og er annríki þeirra undirstrikað á snjallan hátt með samspili tónlistar Avishai Cohen, þar sem takfastur trommu- leikur er í aðalhlutverki, góðrar kvikmyndatöku Davids Chizallet og hraðra klippinga Dorian Rigal- Ansous milli skota. Á móti koma fal- legar senur í hápunkti veislunnar þar sem teygt er á tímanum með því að sýna senur hægar en í eðlilegum hraða og birtist þetta skýrt þegar servíettur fara á flug. Sem betur fer var myndin sýnd án hlés á sérstakri forsýningu í síðustu viku, því það myndi skemma uppbyggingu henn- ar allverulega ef framvindan væri rofin í miðju kafi. Handrithöfundarnir fá sérstakt hrós fyrir hversu vel þeir undirbúa marga af bestu bröndurum mynd- arinnar og rýnir skemmti sér kon- unglega yfir vandræðaganginum í seinni hluta myndarinnar. Ein- hverjir munu mögulega sakna þess að ekki gefist tími til að fara meira á dýptina í persónusköpun og pirra sig á því að sumar persónur tak- markast við staðalmyndir, en rétt er að geta þess að myndin er afar vel leikin á öllum póstum. Fremstur þar í flokki fer Jean-Pierre Bacri sem í hlutverki Max tekst að miðla mikilli hlýju samhliða skiljanlegum pirringi. Styrkur myndarinnar felst fyrst og síðast í þeirri samofnu heild atburða og persóna sem Olivier Nakache og Eric Toledano hafa skapað. Með einni stórfenglegri, kaotískri og litríkri veislu tekst þeim að fanga hið marglaga og flókna líf manneskjunnar. Í brúð- kaupsveislunni kemst Max að því að þótt hann reyni að skipuleggja allt í þaula kemur lífið manni stöðugt á óvart. Fólk ruglast og gerir mistök, en yfirleitt er sem betur fer hægt að gera gott úr hlutunum – ef allir setja ágreining sinn til hliðar og leggjast á eitt. Le sens de la fête býður upp á notalega kvöldstund þar sem einkunnarorð Íslendinga fá að njóta sín til fulls – því þetta redd- ast allt! Óþol Jean-Paul Rouve í hlutverk atvinnuljósmyndarans Guy sem þolir ekki þegar fólk tekur snjallsímamyndir. Og áfram heldur veislan Frönsk kvikmyndahátíð í Háskólabíói Svona er lífið / Le sens de la fête bbbbn Leikstjórn og handrit: Olivier Nakache og Eric Toledano. Tónlist: Avishai Co- hen. Kvikmyndataka: David Chizallet. Klipping: Dorian Rigal-Ansous. Leikarar: Jean-Pierre Bacri, Suzanne Clément, Jean-Paul Rouve, Gilles Lellouche, Eye Haidara, Vincent Macaigne, Manmathan Basky, Alban Ivanov, Hélène Vincent, Benjamin Lavernhe og Judith Chemla. 117 mín. Frakkland, Kanada og Belgía 2017. Sýnd með íslenskum texta. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR KVIKMYNDIR Mán. 29. jan. kl. 21.30 Þri. 30. jan. kl. 17.30 og 22 Mið. 31. jan. kl. 17.30 og 22.10 Fim. 1. feb. kl. 19.30 Fös. 2. feb. kl. 19.50 Lau. 3. feb. kl. 18.10 og 20 Sun. 4. feb. kl. 18.10 og 20.30 Nýjasta kvikmynd Baltasar Kor- máks, Adrift, verður tekin til sýn- inga vestanhafs 1. júní næstkom- andi. Greint er frá því í kvik- myndatímaritinu Variety. Þessari nýjustu afurð leikstjórans er lýst sem „rómantísku drama“ en í aðal- hlutverkum eru Shailene Woodley og Sam Claflin. Kvikmyndin bygg- ist á sannri sögu pars, Tami Old- ham og Richard Sharp, sem hafði ástríðufullan áhuga á skútusigl- ingum og lagði árið 1983 upp í ferð yfir Kyrrahafið en þau sáu ekki fyr- ir að þau myndu sigla inn í einn öfl- ugasta fellibyl sem um getur. Þegar stormurinn gekk niður fann Old- ham Sharp illa slasaðan. Skútan var orðin stefnulaust og mölvað rekald og Oldham þurfti að leggja allan sinn styrk í að bjarga þeim, eins og sögunni er lýst í Variety. Með aðstoð sextants tókst henni að stýra fleytunni á 41 degi til Hawaii og lifði á dósamat og hnetusmjöri. Baltasar leikstýrir kvikmyndinni Adrift Baltasars tekin til sýninga í júní Leikstjórinn Baltasar ásamt kvik- myndatökumanninum Robert Richardson. eftir handriti Aaron Kandell og Jordan Kandell, en þeir þrír fram- leiða hana einnig. FRÍSKANDI BRAGÐ OG FULLT AF HOLLUSTU LÝSI MEÐMYNTU- OG SÍTRÓNUBRAGÐI Lýsi með myntu- og sítrónubragði er ný vara frá Lýsi sem innheldur omega-3 fitusýrurnar EPA og DHA og er þar að auki auðugt af A-, D- og E-vítamínum. LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR NÝ F E R S K T O M Y N T U- OG SÍTRÓN U B R A G Ð V E R T ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 6, 9 Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 8, 10.30 Sýnd kl. 7.50 Sýnd kl. 5.30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.