Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.01.2018, Blaðsíða 23
fjölmiðlar þrástagast á, nema hringnum sé þá sómasamlega lok- að. Staðreyndin er sú að leiðin milli Siglufjarðar og Fljóta er skelfileg og raunar hættuleg og vegir í Fljótunum yfirleitt afleitir. Við Fljótamenn leggjum einnig áherslu á að göng frá Siglufirði opnist að vestanverðu inn af Hraunum.“ Trausti fékk snemma áhuga á skíðaíþróttinni og var formaður Skíðafélags Fljótamanna um árabil. Hann var margfaldur Íslandsmeist- ari í skíðagöngu og keppti fyrir Ís- lands hönd á Vetrarólympíuleik- unum í Innsbruck 1976. Hann var sæmdur gullmerki ÍSÍ og SKÍ fyrir störf í þágu skíðaíþróttarinnar. Trausti hefur sinnt ýmsum trún- aðarstörfum fyrir sína sveit, sat m.a. í hreppsnefnd í tólf ár og í stjórn Mjólkursamlags Kaupfélags Skagfirðinga. Fjölskylda Eiginkona Trausta er Sigurbjörg Bjarnadóttir, f. 2.1. 1948, kennari við Grunnskólann á Siglufirði. Hún er dóttir Bjarna Marinós Þor- steinssonar, síldarsöltunar- og fisk- vinnslumanns, og Fjólu Guðfríðar Þorsteinsdóttur, húsfreyju, fiskvinnslukonu og fiskmatskonu á Siglufirði. Börn Trausta og Sigurbjargar eru 1) Bjarni Heimir Traustason, f. 10.10. 1966, sjávarútvegsfræðingur og starfsmaður hjá Salmar í Þránd- heimsfirði í Noregi en kona hans er Sigríður Sóley Kristinsdóttir, leik- skólakennari og sjúkraliði, og eru börn þeirra Eyþór Trausti, Fanney Ósk, Kristinn Rafn og Sigurbjörg Una; 2) Sveinn Rúnar Traustason, f. 17.9. 1969, landslagsarkitekt og háskólakennari í Sogndal í Noregi en kona hans er Marcela Andrea Ceron Ravello, frá Chile, kennari við alþjóðaskóla í Sandefjord í Nor- egi og eru synir Sveins Rúnars og Lísu Gail Shannen, Sindri Týr Shannen Sveinsson og Svanur Freyr Shannen Sveinsson en stjúp- sonur Sveins Rúnars og sonur Lísu er Stephen Thomas Shannen en dóttir Marcelu er Elise; 3) Fjóla Guðbjörg Traustadóttir, f. 13.12. 1985, skrifstofumaður í Reykjavík en maður hennar er Eiður Ágúst Kristjánsson, lagerstjóri hjá Vín- búðunum, og eru börn þeirra Lilja Þöll og Eiður Nói. Systkini Trausta: Lilja Sveins- dóttir. f. 4.3. 1929, d. 19.1. 2017, var lengi búsett á Sauðárkróki; Þuríður Ásdís Sveinsdóttir, f. 10.2. 1935, d. 17.4. 2016, var húsfreyja á Brún í Biskupstungum; Sigurbjörg Sveins- dóttir, f. 19.7. 1936, d. 10.5. 2015, var búsett á Syðsta-Mói í Fljótum, og Guðmundur S. Sveinsson, f. 14.12. 1940, húsasmiður í Reykja- vík. Foreldrar Trausta voru Sveinn Halldór Jónsson, f. 28.1. 1899, d. 10.3. 1995, bóndi á Bjarnargili frá 1924-65, og k.h., Guðrún Sveins- dóttir, f. 13.9. 1909, d. 8.4. 1993, húsfreyja á Bjarnargili. Trausti Sveinsson Sumarrós Sigurðardóttir húsfr. í Hólum Jóhannes Gunnlaugsson b. í Hólum í Fljótum Sigurbjörg Jóhannesdóttir húsfr. í Lundi Sveinn Steinsson b. í Lundi í Stíflu Guðrún Sveinsdóttir húsfr. á Bjarnargili Guðrún Sveinsdóttir húsfr. í Tungu Steinn Jónsson b. í Tungu í Stíflu Guðbjörn Jónsson b. á Reykjarhóli Óskar Guðbjörnsson b. á Stóru-Þverá í Fljótum Hermann Guðbjörnsson húsasmiður í Rvík Guðbjörg Jónsdóttir húsfr. í Saurbæ í Fljótum Þór Jónsson póstur og minkabani í Saurabæ Lilja Jónsdóttir húsfr. á Kvíabekk í Ólafsfirði Sigurður Jóhannesson b. á Vermundarstöðum í Ólafsfirði Helgi Jóhannesson b. í Syðstabæ í Ólafsfirði Steinunn Stefánsdóttir húsfr. á Siglufirði, í Rvík og Garðabæ Bogi Nilsson fyrrv. ríkislögreglustj. og ríkissaksóknari Ólafur Nilsson fyrrv. skattrannsóknarstj. Anna Jóhannesdóttir húsfr. á Stóragrindli og á Siglufirði Hermann Jónsson b. og sjóm. í Vík í Haganesvík í Fljótum Guðmunda Hermannsdóttir húsfr. á Ysta-Mói í Fljótum Sóley Sveinsdóttir húsfr. á Akureyri Sigríður Sveinsdóttir húsfr. á Siglufirði Helgi Sveinsson bílstj. í Ólafsfirði Guðný Halldórsdóttir húsfr. í Skagafirði Sveinn Sveinsson b. á Molastöðum í Skagafirði Viktoría Lilja Sveinsdóttir húsfr. á Reykjarhóli Jón Hermannsson b. á Reykjarhóli í Fljótum Guðbjörg Margrét Þorkelsdóttir húsfr. á Reykjarhóli Hermann Þorsteinsson b. og smiður á Reykjarhóli í Fljótum Úr frændgarði Trausta Sveinssonar Sveinn Halldór Jónsson b. á Bjarnargili í Fljótum Afmælisbarnið Trausti með barna- barni sínu á góðri stundu. ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018 90 ára Herdís Tryggvadóttir Þuríður Fanney Sigurjónsdóttir 80 ára Baldur Guðmundsson Eiríkur Skjöldur Þorkelsson 75 ára Ársæll Þórðarson Lilja Una Óskarsdóttir Skúli Kristjánsson Trausti Sveinsson Valgerður Erla Friðleifsdóttir 70 ára Aðalheiður Jónsdóttir Margrét S. Sigurmonsdóttir Ólafía Sigríður Hansdóttir Stefán Lárusson Þórhildur Þorleifsdóttir 60 ára Drífa Leifsdóttir Guðlaugur Einarsson Gunnar Ásgeir Jósefsson Harry Þór Hólmgeirsson Hulda Svavarsdóttir Inga Kristín Sveinbjörnsdóttir Ingibjörg Jóhanna Erlendsdóttir Ingvar Ásgeirsson Ingvar Garðarsson Kristjana S. Vilhelmsdóttir Óskar Hafsteinn Friðriksson Rósa Björk Barkardóttir Sigríður Margrét Magnúsdóttir Unnur Þorsteinsdóttir Vilborg Norðdahl 50 ára Arnar Guðlaugsson Erna Sylvía Árnadóttir Gerða Gunnarsdóttir Gunnar Rúnar Halldórsson Helgi Árnason Jóhannes Jónsson Jón Brynjar Sigurðsson Runólfur Vigfús Jóhannsson Rúnar Ingvi Eiríksson Sædís Kristjana Gígja Valdimar Pálsson 40 ára Ágústa Á. Arnardóttir Friðrika Hjördís Geirsdóttir Ingólfur Haukur Ingólfsson Margrét Víkingsdóttir Mariusz Józef Dudzik Monika A. Saniewska Sigurbjörg Stella Gunnarsdóttir Úlfar Þorsteinsson Þorbjörn Sigurbjörnsson 30 ára Aðalsteinn K. Gunnarsson Arna Hrund Baldursd. Bjartmars Birna Hrund Björnsdóttir Birta Kristín Hjálmarsdóttir Damian Wicik Gísli Óskarsson Guðfinna Magnúsdóttir Guðfinnur Ýmir Harðarson Guðmundur Lárus Guðmundsson Irena Björk Filimonova James R. Sigurjónsson Jón Sigurður Pétursson Kristinn Baldursson Lárus Freyr Lárusson Mateusz Emil Kozaczuk Nína Óladóttir Olga Möller Svanfríður Harpa Magnúsd. Tomasz Lukasz Mucha Zofia Janina Borysiewicz Til hamingju með daginn 40 ára Ágústa er Reyk- víkingur en býr í Kópa- vogi. Hún er sálfræðingur á Þroska- og hegðunar- stöð heilsugæslunnar. Maki: Rúnar Þór Bjarna- son, f. 1976, kennari í Salaskóla. Börn: Tómas Örn, f. 2005, Hjalti Snær, f. 2008, og Kári Steinn, f. 2014. Foreldrar: Örn Herberts- son, f. 1940, og Lilja Þor- bergsdóttir, f. 1940. Ágústa Ásgerð- ur Arnardóttir 40 ára Stella er Garðbæ- ingur og býr á Álftanesi. Hún er viðskiptafræð- ingur og vinnur á fjár- málasviði LS Retail. Maki: Samúel Ívar Árna- son, f. 1974, íþróttakenn- ari í Álftanesskóla og meistaranemi við HÍ. Börn: Óli Fannar, f. 2000, Viktoría Unnur, f. 2014, og Rebekka Kristín, f. 2014. Foreldrar: Gunnar Óla- son, f. 1954, og Kristín Sigurðardóttir, f. 1955. Sigurbjörg S. Gunnarsdóttir 30 ára Jón Sigurður ólst upp í Cornwall-skíri á Englandi. Hann er jarð- fræðingur að mennt með master í sjálfbærum orkuvísindum. Hann er verkefnastjóri við HÍ. Maki: Ingunn Katrín Jónsdóttir, f. 1994, nemi í sjúkraþjálfun og starfar á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Foreldrar: Herdís Dögg Sigurðardóttir, f. 1968, og stjúpfaðir er Kristinn Johnsen, f. 1966. Jón Sigurður Pétursson  Ragesh Kumar T. Puthiyaveettil hefur varið doktorsritgerð sína í efna- fræði við raunvísindadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Hlutverk lágorkurafeinda í niðurbroti tvímálma og kísilinnihaldandi efna til notkunar í örprentun yfirborða með skörpum raf- eindageislum: HFeCo(CO)12, H2FeRu3 (CO)13, SiC5H10Cl2 SiC5H12 og Si3C3H12. Leiðbeinandi var Oddur Ingólfsson, prófessor við HÍ. Örprentun með skörpum rafeinda- geisla (e. Focused Electron Beam Induced Deposition, FEBID) er aðferð sem nota má til að prenta þrívíða strúktúra á yfirborð efna með raf- eindahvötuðu niðurbroti svokallaðra forverasameinda. Það eru þó enn þó nokkrar hindranir sem standa í vegi fyrir almennri notkun FEBID, þar á meðal óhreinindi í útfellingum og breikkun þeirra. Þessar hindranir má að miklu leyti rekja til dreifingar lág- orkurafeinda (rafeinda með hreyfiorku undir 50 eV) út fyrir brennipunkt rafeindageislans og ófullkomið nið- urbrot á forvera- sameindunum. Í þessari ritgerð er sjónum beint að tvímálma for- verasameindunum HFeCo3(CO)12 og H2FeRu3(CO)13 og kísilinnihaldandi sameindunum SiC5H10Cl2, SiC5H12 og Si3C3H12. Fram- kvæmdar voru gasfasa- og yfirborðs- mælingar sem og tilraunir með ör- prentun yfirborða. Auk mælinga voru skammtafræðilegir útreikningar fram- kvæmdir til að meta líklegustu raf- eindadrifnu niðurbrotsleiðir þessara efna. Niðurstöður þessara rannsókna auka skilning okkar á þeim ferlum sem eiga sér stað við örprentun yfirborða með skörpum rafeindageislum og nýt- ast þannig við að bæta hönnun forverasameinda fyrir þetta ferli. Ragesh Kumar T. Puthiyaveettil Ragesh Kumar T. Puthiyaveettil fæddist 16. ágúst 1988 í Kerala, Indlandi. Hann lauk meistaragráðu í ljóseindafræði árið 2010 frá National Institute of Techno- logy, Kalkútta, Indlandi. Eftir meistaragráðuna, vann hann sem ljóseindafræð- ingur í 1 ár. Árið 2014 hóf Ragesh doktorsnám við Háskóla Íslands og er núna nýdoktor við HÍ. Ragesh er giftur Anju Viswanath. Doktor Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Þessir einu sönnu gæða hitablásarar. Bjóðum úrval alvöru hitablásara bæði fyrir gas og diesel/steinolíu. Eigum líka hitastilla fyrir MASTER hitablásara. Viðurkennd viðgerða- og varahlutaþjónusta. HITABLÁSARAR ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.