Morgunblaðið - 29.01.2018, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. JANÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er sama hvar þú ferð, þú ert eins
og segull á fólk því þú nýtur þess að ræða við
það um alla heima og geima. Eitthvað óvænt
mun reka á fjörur þínar í dag.
20. apríl - 20. maí
Naut Þar sem er reykur þar er eldur en láttu
samt slúðrið á vinnustaðnum sem vind um
eyru þjóta því mest af því er mannskemm-
andi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gættu þess að lenda ekki í skugg-
anum af mönnum og málefnum og forðastu
að dragast inn í deilur annarra. Vertu bjart-
sýnn, ástvinur vill allt fyrir þig gera.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er notalegt að eiga samskipti við
fólk sem hugsar á sömu nótum. Reyndu að
ná utan um málin hvað sem það kostar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur ákveðið að hreinsa upp vitleys-
una eftir einhvern annan. Vertu óhræddur við
að segja hug þinn og fara eftir sannfæringu
þinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er nauðsynlegt að þekkja allar
hliðar mála áður en þú lætur til skarar skríða
því annars getur farið illa. Sígandi lukka er
best.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert einhvern veginn ekki alveg með
sjálfum þér og þarft því að taka þér tak. Láttu
ekki tilfinningar þínar villa þér sýn og koma
þér í ógöngur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er eitt og annað sem þú hef-
ur látið sitja á hakanum, en verður nú að
ganga frá. Brettu upp ermar og gakktu í mál-
in af öryggi en með fyrirhyggju að leiðarljósi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu fádæma gáfur þínar til að
greiða úr fjármálavanda. Hugsaðu þig tvisvar
um áður en þú sleppir hendinni af fé sem þú
þurftir að hafa mikið fyrir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skilaboð sem þér berast kunna að
reynast áhrifamikil ef þú ákveður að fara eftir
þeim. Þú munt kynnast nýrri hlið á gömlum
vini og samband ykkar mun taka breytingum
til hins betra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Öllu gríni fylgir einhver alvara svo
þú skalt gæta orða þinna og hafa aðgát í
nærveru sálar. Gakktu glaður að hverju verki
því allt mun ganga þér í haginn.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Allt hefur sinn tíma bæði starf og leik-
ur og að jafnaði gengur starfið fyrir. Notaðu
skynsemina þegar þú gagnrýnir og hafðu all-
ar staðreyndir á hreinu því annars er hætta á
að illa fari.
Björn Ingólfsson skrifaði í Leir-inn á fimmtudag að „þessa
dagana eru morgunverkin ekki bú-
in fyrr en pallurinn er mokaður og
komið gangfæri út á götu. Þetta er
ljómandi líkamsrækt sem veturinn
skaffar, þrælskemmtileg og hindrar
mann í því að leggjast í leti.
Þetta var ég að tauta við skófluna
í morgun;“
Af því fæ aldrei nóg,
orðinn þetta gamla hró
að kafa mjöll í mitti og þjó
og moka snjó.
Eftir streðið oft er þó
af því fró
að komast inn í kaffibolla
og korríró.
Helgi R. Einarsson þóttist þekkja
„mývetnska smámunasemi“ í sól-
inni á Fuenteventura;
Magnús því marki er brenndur
að mæra’ allar sólarstrendur.
Þó finnst þessum kalli
ferlegur galli
hve fátt er um mývetnskar endur.
„Hún“ er heiti þessarar limru eft-
ir Helga:
Ung og falleg er ’ún
af öllum hinum ber ’ún.
Allir þrá
í Þöll að ná
þegar tölta fer ’ún.
Davíð Hjálmar Haraldsson spyr á
Leir, hvort nokkur viti höfund
ljóðsins:
Inn við litla skrýtna skál
skeður margt í leyni
þar sem lítið leyndarmál
liggur undir steini.
Er í hugann meitluð mynd
sem mig um nætur dreymir
þar sem ylvolg lítil lind
leyndarmálið geymir.
Draumnum ekki get ég gleymt
né gleði mína falið.
Aftur hef ég endurheimt
yl í sálarkalið.
Það er alltaf skemmtilegt að rifja
upp Benedikt Jónsson Gröndal:
Hossir þú heimskum gikki,
hann gengur lagið á,
og ótal asna stykki
af honum muntu fá;
góðmennskan gildir ekki,
gefðu duglega á kjaft:
slíkt hefir, það ég þekki,
þann allra besta kraft.
Hér yrkir Benedikt um gömul
sannindi:
Að verma í barmi vondan snák
veldur sjaldan happi,
því illt hafa menn af illum strák
eins og Þráinn Hrappi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Snjóþyngsli og mývetnsk
smámunasemi
„ÉG ER UPP MEÐ MÉR, EN ÞÚ ÁTTIR
BARA AÐ SEGJA „HVERSU HÁTT?““
„ÉG SEGI ENN AÐ VIÐ ÆTTUM AÐ
GRAFA OKKUR ÚT.“
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera alveg sama
um það hversu oft hún
skiptir um skoðun.
DÆS… ÉG ÞARF AÐ VERÐA AÐ ÞEIM
MANNI SEM LÍSA Á SKILIÐ
TÆKNILEGA SÉÐ VÆRI ÞAÐ
ALLT ANNAR MAÐUR
ÉG VERÐ KJÖR-
INN… EF ÉG FER Í
PÓLITÍK!
OG HVAÐ HEFUR ÞÚ
UPP ÚR KRAFSINU?
ÉG HEITI HRÓI HÖTTUR! ÉG STEL FRÁ
ÞEIM RÍKU OG GEF ÞEIM FÁTÆKU!
HVER ERT
ÞÚ?!
Mörg þeirra mála sem eru í deigl-unni á hverjum tíma eru endur-
tekning. Ýmislegt slíkt góðgæti af
þessum toga hefur verið borið fram
að undanförnu og viðtökur við krás-
unum hafa verið alla vega. Þannig er
nýlega komið fram á Alþingi frum-
varp frá Píratanum Helga Hrafni
Gunnarssyni til breytinga á áfeng-
islögum þar sem lagt er til að bann
við framleiðslu áfengis til einka-
neyslu verði afnumið. Nú kunna efa-
laust einhver góð rök að vera fyrir
framangreindum sjónarmiðum, en
Víkverji telur ósennilegt að breyt-
ingarnar nái í gegn. Fyrirstöðurnar
eru margar og er nærtækt að nefna
óteljandi tilraunir sem einkum og
helst nýliðar á Alþingi hafa gert til
þess að rýmka verslunarfrelsið, það
er að heimila sölu á guðaveigum í
matvöruverslunum. Satt að segja
eru allar slíkar tilraunir orðnar
gamlar lummur og að leyfi fáist fyrir
heimabruggi er auðvitað borin von.
x x x
Þegar krakkar eru ungir, reiðir ogróttækir langar þá að stjórna
heiminum og telja sig í fullum fær-
um til þess sem sjálfsagt er rétt í
einhverjum tilvikum. En hvað ætli
oft hafi verið lagt til að lækka kosn-
ingaaldur, nú úr átján árum í sextán
eins og frumvarp Andrésar Inga
Jónssonar þingmanns VG gerir ráð
fyrir? Allt er þetta kunnuglegt í
huga Víkverja sem minnist líka til-
lagna fyrr á tíð um að hækka bílpróf-
saldurinn úr sautján árum í átján og
að öll aldurstengd borgaraleg rétt-
indi miðist við þann aldur. En að
krakkar fari sextán ára að blanda
sér í stjórnmálin er óheppilegt að
mati Víkverja; svo grimm eru hjaðn-
ingavígin í stjórnmálunum í dag að
fullþroska fólk gefst upp, hvað þá ef
óharðnaðir unglingar ættu í hlut.
x x x
Í síðustu viku var tekinn á Alþingienn einn snúningurinn í umræðu
um hvar nýr Landspítali skuli vera.
Jú, fólk getur rifist endalaust um
hús og staðsetningu þeirra. Má þar
minnast deilna um til dæmis Ráð-
húsið, Perluna og Hallgrímskirkju,
allt byggingar sem sátt er um í dag
og eru sannkallaðar fyrirmyndir og
borgarprýði. vikverji@mbl.is
Víkverji
Komið til mín, öll þér sem erfiðið og
þunga eruð hlaðin, og ég mun veita
yður hvíld.
(Matt: 11:28)
Við notum ekki MSG í súpuna okkar.
Hún fæst í öllum helstu matvöruverslunum og stórmörkuðum landsins.
Súpan er fullelduð og aðeins
þarf að hita hana upp