Morgunblaðið - 04.01.2018, Page 1
SJÁLFVIRKNI OGTÆKNIVÆÐINGAFVEF Í BARNES & NOBLE
ssballborð frá Hermés fyrir vandláta vinnustaði. 4
Unnið í sam
Nordic Style Magazine fór úr því að
vera veftímarit yfir í prentað tímarit
sem selt er í Barnes & Noble. 14
VIÐSKIPTA
Auður Daníelsdóttir hjá Sjóvá segir mikið að gerast
í tækniþróun og sjálfvirknivæðingu til að auka
þjónustuna hjá vátryggingafélögum. 4
Fú
vinnu við
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018
Arðsemi eigin fjár 53% minni
Arðsemi eigin fjár íslenskra fyrir-
tækja minnkaði mikið að meðaltali á
milli áranna 2016 og 2015, sam-
kvæmt tölum sem Creditinfo hefur
tekið saman fyrir ViðskiptaMogg-
ann. Samkvæmt tölunum, sem unn-
ar voru upp úr ársreikningum rúm-
lega 31 þúsund fyrirtækja, og að
undanskildum þrotabúum föllnu
bankanna, minnkaði arðsemi eigin
fjár fyrirtækjanna um 53% á milli
ára, eða úr því að vera 18,1% árið
2015 í 11,8% árið 2016.
Samanlagt eigið fé fyrirtækjanna
lækkaði einnig og fór úr því að vera
7,8 þúsund milljarðar árið 2015 nið-
ur í 7,2 þúsund milljarða árið 2016.
Sömuleiðis lækkaði meðal eigið fé
félaganna úr því að vera 249 millj-
ónir árið 2015 niður í 228 milljónir
2016. Meðaltal eiginfjárhlutfalla
félaganna stóð nánast í stað milli ára
og var um 44%.
Skuldirnar fara lækkandi
Heildarskuldir íslenskra fyrir-
tækja hafa farið stiglækkandi sam-
kvæmt sömu samantekt. Árið 2010
voru heildarskuldirnar rúmir 13
þúsund milljarðar króna en voru
komnar niður í rúma níu þúsund
milljarða árið 2016. Sé horft til með-
alskuldsetningar fyrirtækjanna er
sömu sögu að segja þar. Að meðal-
tali skulduðu íslensk fyrirtæki árið
2010 487 milljónir króna en árið 2016
eru skuldirnar komnar niður í um
290 milljónir króna, sem er 67%
minnkun meðaltalsins á tímabilinu.
Eignastaða íslenskra fyrirtækja
gaf nokkuð eftir á árinu 2016. Heild-
areignir námu þá um 16,2 þúsund
milljörðum króna og minnkuðu úr
17,9 þúsund milljörðum árið 2015.
Eignastaðan hefur verið á svipuðu
reki síðan árið 2010, eða um og yfir
15 þúsund milljörðum króna, en náði
hámarki árið 2015 í fyrrnefndum
17,9 þúsund milljörðum.
Eignir fyrirtækjanna að meðaltali
minnkuðu úr því að vera 566 millj-
ónir króna árið 2015 í 518 milljónir
árið 2016.
EBITDA-hagnaður eykst
Sé horft til EBITDA-hagnaðar,
það er hagnaðar fyrir afskriftir og
fjármagnsliði, þá hefur hann farið
stighækkandi síðan árið 2013. Það ár
var meðal EBITDA-hagnaður ís-
lenskra fyrirtækja rúmar 18 millj-
ónir króna, en hækkar svo jafnt og
þétt og er orðinn tæpar 32 milljónir
árið 2016. Ef skoðuð er heildar-
EBITDA félaganna 31 þúsund, þá
nam hún 990 milljörðum króna árið
2016 og hafði þá hækkað um 13%
milli ára, en árið 2015 var saman-
lagður EBITDA-hagnaður fyrir-
tækjanna 876 milljarðar króna.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Á sama tíma og arðsemi
eigin fjár íslenskra fyrir-
tækja hrapaði 2016 lækk-
uðu heildarskuldir og
EBITDA-hagnaður jókst.
Þróun ársreikningsstærða fyrirtækja 2010-2016
14
12
10
8
6
4
2
0
þús. milljarða 40%
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
17,6%
9,1
7,2
13,1
2,8
Skuldir alls
Eiginfjárhlutfall
– meðaltal
Eigið fé alls
44,1%Að undanskildum þrotabúum gömlu bankanna
Heimild: Creditinfo
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
4.7.‘17
4.7.‘17
3. 1.‘17
3. 1.‘17
1.729,75
1.622,93
130
125
120
115
110
116,75
125,1
Ísraelskum ferðamönnum sem aka
sjálfir um landið í svokölluðum „Self
Drive Tours“ hefur fjölgað mikið síð-
ustu ár hér á Íslandi og þá að miklu
leyti fyrir tilstilli ferðaþjónustufyrir-
tækisins Another Iceland, sem er í
eigu Guys Guitraimans.
Guy segir í viðtali við Viðskipta-
Moggann að samkvæmt Wikipedia
dveljist ísraelskir ferðamenn lengst
allra á landinu. „Fólk frá Bandaríkj-
unum og Evrópu eyðir að jafnaði fimm
til sex dögum hér á landi, en Ísraelar
tveimur til þremur vikum. Líklega er
þetta út af því að ferðalagið hingað er
langt og menn vilja fá sem mest út úr
því.“ Guy segir viðbrögðin mjög já-
kvæð. „Erlendis eru svo margir staðir
eins og svo lengi sem menn fá ekki þá
tilfinningu á Íslandi dregur það að. Við
megum aldrei komast á þann stað að
fólki finnist við bara vilja hirða sem
mesta peninga af gest-
unum.“
Ísraelar dvelja lengst á landinu
Morgunblaðið/RAX
Guy segir viðskiptavinina hrifna af
landi og þjóð og gefi góð meðmæli.
Another Iceland selur þús-
undum Ísraela Íslandsferðir
ár hvert og hefur fyrirtækið
vaxið hratt frá stofnun.
8
Fjármálastofnanir í Evrópu
hafa haldið að sér höndum í
samrunum frá efnahagshruni
en nú má ætla að
breyting verði á.
Bankarnir að fara
að kaupa á ný
10
SpaceX er þekktast fyrir
fyrirhugaðar geimferðir en
tekjur fyrirtækisins munu að
mestu koma frá
neti gervitungla.
Lex: Geimferðir
og gervitungl
11
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.