Morgunblaðið - 04.01.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018FRÉTTIR
Samkeppnin á tryggingamarkaði er
hörð og þarf Auður Daníelsdóttir
svo sannarlega að vera á tánum.
Hún varð framkvæmdastjóri sölu
og ráðgjafar hjá Sjóvá á síðasta ári
en var þar áður framkvæmdastjóri
tjónasviðs og á að baki fimmtán ár í
vátryggingageiranum.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?
Það eru mjög spennandi tímar í
rekstri vátryggingafélaga og mikið
að gerast í tækniþróun og sjálf-
virknivæðingu sem mun stuðla að
enn betri þjónustu við viðskiptavini.
Við sjáum það fljótt á þeim nýju
lausnum sem við komum fram með
að þær auðvelda viðskiptavinum
ferlin til muna og gefa starfs-
mönnum svigrúm til að nýta tímann
betur í virðisaukandi þjónustu. Á
ráðstefnum erlendis og fundum
með erlendum aðilum kemur sterkt
fram hve mikið er verið að fjárfesta
í sjálfvirknivæðingu og einföldun
ferla sem mun koma viðskiptavin-
um til góða á fjölþættan hátt. Það er
spennandi að velta fyrir sér hvernig
heimurinn verður eftir fimm ár og
líklegt að við munum sjá talsvert
breytta mynd að þeim tíma liðnum.
Hver var síðasta ráðstefnan
sem þú sóttir?
Síðasta ráðstefnan sem ég sótti
var Sjávarútvegsráðsefnan í nóv-
ember sl. Áhugavert var að heyra
um áskoranir og þá þróun sem þar
er í gangi og þann mikla árangur
sem náðst hefur. Þar áður sótti ég
tvær ráðstefnur um markaðs- og
sölumál og IoT (e. Internet of
Things) og hvetjandi leiðtoga-
ráðstefnu í New York. Það er mikið
að gerast í upplýsingatæknimálum
og þróun í sjálfvirknivæðingu er
mikil. Áhugavert er að taka virkan
þátt í þessari fjórðu byltingu.
Hvaða bók hefur haft mest
áhrif á hvernig þú starfar?
Ég hef lesið margar bækur sem
tengjast stjórnun og hvernig best
er að ná árangri í síbreytilegu um-
hverfi. Það sem kemur fram hjá
Peter Senge í bókinni The Fifth
Discipline sem kom fyrst út 1990 er
mér ofarlega í huga því það á svo
vel við enn í dag. Í bókinni er farið
yfir Lærdómsfyrirtækið sem ein-
kennist af því að þar er stöðugt ver-
ið að læra hvernig best er að bregð-
ast við breytingum, hvernig við
nýtum þau tækifæri sem felast í
þeim til að eflast enn frekar og ná
enn meiri árangri.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
um líf þitt og afrek?
Samstarfsfólk mitt nefndi að
Jodie Foster gæti skilað verkinu
vel. Hún hefur ekki tekist á við hlut-
verk stjórnanda í tryggingafélagi
hingað til svo ég væri bara spennt
að sjá útkomuna.
Hvernig heldurðu þekkingu
þinni við?
Ég viðheld þekkingu minni með
því að vera í kringum allt þetta frá-
bæra fólk sem ég starfa með, svo
les ég viðskiptagreinar og bækur,
fer á ráðstefnur og sæki fyrirlestra.
Ég er í ýmsum áhugaverðum hóp-
um sem auðga hugann hver á sinn
hátt.
Hugsarðu vel um líkamann?
Ég hef mikinn áhuga á öllu
heilsutengdu og hugsa mikið um
þau mál, fer í reglulega í ræktina,
hitti öfluga félaga hjá KR skokki
þegar sólin er hærra á lofti, fer á
skíði og út að ganga.
Hvert væri draumastarfið ef þú
þyrftir að finna þér nýjan starfa?
Mér hefur alltaf fundist gaman
að vinna og flest þau störf sem ég
hef sinnt hafa verið draumastörfin á
hverjum tíma. Draumastarfið tekur
á rekstrarlegum þáttum þar sem
breytingar eru hluti af daglegu
starfi.
Hvað myndirðu læra ef þú fengir
að bæta við þig nýrri gráðu?
Ég er mjög sátt við það nám sem
ég hef valið og lokið við í HÍ, CBS
og IESE í Barcelona. Ef ég myndi
bæta við gráðu þá yrði það á þeirri
línu sem ég hef þegar fetað: MBA-
gráða í hlýju landi hljómar ágæt-
lega.
SVIPMYND Auður Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og ráðgjafar hjá Sjóvá
Tryggingafyrirtæki fjárfesta
mikið í einföldun ferla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Auður segir spennandi tíma í rekstri vátryggingafélaga og mikið að gerast í tækniþróun og sálfvirknivæðingu.
NÁM: Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík. Cand. oecon frá
Háskóla Íslands. Erasmus-styrkþegi við Copenhagen Business
School (CBS), eitt ár. Diplómanám í mannauðsstjórnun og AMP-
stjórnendanám við IESE-skólann í Barcelona.
STÖRF: Mitt fyrsta alvöru starf var flugfreyjustarf hjá Icelandair
meðfram námi. Eftir útskrift frá HÍ var ég eitt ár í reikningshaldi
hjá Samskipum, fór þaðan í starfsmannaráðgjöf hjá PwC í fjögur
ár. Hef svo starfað hjá Sjóvá frá árinu 2002 þegar ég varð starfs-
mannastjóri. Á árinu 2004 varð ég framkvæmdastjóri mannauðs-
og rekstrarmála og síðan framkvæmdastjóri tjónasviðs Sjóvár
frá 2007 í 10 ár eða þar til ég varð framkvæmdastjóri sölu og ráð-
gjafar í ágúst sl.
ÁHUGAMÁL: Fyrir utan góðar stundir með fjölskyldu og vinum
eru það ferðalög utan- og innanlands, skíðaferðir í Alpana og
veiðiferðir sem standa upp úr.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Sverri Sigurðssyni verkfræðingi og
við eigum tvær dætur í MR.
HIN HLIÐIN
GRÆJAN
Núna er sá tími árs þegar skíða-
brekkurnar fyllast af hraustlegu fólki
með roða í kinnum, spanandi um á
skíðum og snjóbrettum. Skíðin eru af
fínustu gerð og snjóbrettin líka,
hjálmarnir fullkomnir og fatnaðurinn
þannig gerður að njóta má vetrar-
íþróttanna án þess að finna fyrir kuld-
anum.
En það þarf meira til en það til að
fá eins mikið og hægt er út úr vetr-
inum – því hvað ef viðrar vel til skíða-
ferða tvo daga í röð og skíðaskórnir
eru rennandi blautir eftir ævintýri
dagsins á undan?
DryGuy-skíðaskóþurrkarinn er
tæki sem gæti verið ógalið að fjár-
festa í. Eins og sést á myndinni er um
frekar einfalda græju að ræða, með
viftu sem dælir heitu lofti eftir tveim-
ur hólkum, beint ofan í skíðaskóna.
Að sögn framleiðandans þarf ekki
nema eina klukkustund til að gera
fóðrið innan í skónum þurrt og nota-
legt viðkomu, en þurrkunin hjálpar til
við að halda sveppum og bakteríum í
skefjum svo að skórnir endast lengur
og byrja ekki að lykta illa.
DryGuy-þurrkarann má að sjálf-
sögðu líka nota á venjulega skó og
getur hann komið í góðar þarfir þegar
stigið er í poll í uppáhaldsstriga-
skónum eða þegar þurrka þarf
gönguskóna eftir góðan sprett um
holt og hæðir á ekta íslenskum
blautviðrisdegi. Tækið
kostar 50 dali
á Amazon.
ai@mbl.is
Í skrauf-
þurrum
skíðaskóm
Þurrkunin tekur
klukkustund.
Í KAFFIKRÓKINN
Það þykir æskilegt að fyrirtæki
bjóði starfsmönnum upp á einhvers
konar leikaðstöðu. Víða hefur verið
farin sú leið að fjárfesta í fússball-
borði, og koma því fyrir á
góðum stað þar sem taka má
stuttan leik með vinnufélög-
unum, treysta böndin og
koma blóðinu á hreyfingu.
En hvað ef starfsliðið er af
þeirri sortinni sem sættir sig
aðeins við fínasta fússball-
borð sem völ er á? Þá hefur
innkaupastjórinn varla um annað að
velja en að skjótast til Parísar, og
panta þar fússball-borð frá Hermés.
Handverksmenn Hermés smíða
þessi forláta fússball-orð úr hlyni og
Þegar starfsmennirnir
vilja aðeins það besta
Leðurklætt og
kostar á við góðan bíl.
klæða með kálfskinni. Í
stað knattspyrnumanna eru
litlir knapar sem halda sér
fast í snúnings-stangirnar
sem þvera borðið, enda
liggja rætur Hermés í
smíði hnakka fyrir franska hesta-
menn.
Hermés fússball-borðið kostar
68.300 dali, eða um 7,1 milljón
króna. ai@mbl.is
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Sími 540 1818 | Skemmuvegi 4 | Kópavogi | midaprent@midaprent.is
Framleiðum allar gerðir límmiða
• Áprentaðir límmiðar
• Skilalímmiðar
• Viktarmiðar thermal
• Auðir, blanco thermal límmiðar
• Stafrænir límmiðar á rúllum
• Límmiðaskammtarar
Snögg
og góð
þjónusta