Morgunblaðið - 04.01.2018, Side 2

Morgunblaðið - 04.01.2018, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2018FRÉTTIR SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is Mesta hækkun Mesta lækkun VIKAN Á MÖRKUÐUM AÐALMARKAÐUR ÁLVERÐ ($/tonn) BRENT OLÍUVERÐ ($/tunnu) GRND -2,71% 34,05 TM +0,31% 32,8 S&P 500 NASDAQ +1,52% 7.055,922 +0,75% 2.707,82 +0,68% 7.674,51 FTSE 100 NIKKEI 225 4.7.‘17 4.7.‘173. 1.‘17 3. 1.‘17 1.700 652.300 1.928,0 2.246,12 Unnið í samstarfi við IFS.Hreyfingar frá upphafi viku til kl. 16 í gær. 49,61 67,55 -0,56% 22.764,94 45 Erlendar fjárfestingar hingað til lands voru fyrir hrun einkum tengdar orkuháðum iðnaði. Frá hruni hafa þær orðið fjölbreyttari. Á síðasta ári voru fjárfestingar áberandi í þremur atvinnugreinum; ferðaþjónustu, gagnaverum sem stunda bitcoin-gröft og aðra aflfreka vinnslu og smáþör- ungaframleiðslu. Þetta segir Þórður H. Hilmarsson, forstöðumaður er- lendra fjárfest- inga hjá Íslands- stofu. „Það hefur orð- ið veruleg aukning á erlendri fjárfest- ingu í ferðaþjón- ustu á und- anförnum tveimur árum samhliða vexti í atvinnuveg- inum,“ segir hann í samtali við Við- skiptaMogggann. „Ég get upplýst að það eru nokkur verkefni í pípunum á nýju ári sem tengjast lúxushótelgist- ingu og afþreyingarþjónustu.“ Tugir ferðaþjónustufyrirtækja Að sögn Þórðar hafa nokkrir tugir ferðaþjónustufyrirtækja fengið inn erlenda fjárfesta á undanförnum tveimur árum, sem sé mun meira en áður hefur þekkst. „Fyrirtækin eru allt frá litlum bókunarþjónustum upp í hótel. Áhuginn kemur til vegna þeirrar stærðar sem ferðaþjónustan hefur náð og erlendir fjárfestar telja að hún haldi áfram að vaxa þótt ef til vill hægi á vextinum.“ Í nóvember var til dæmis upplýst að alþjóðleg fjármögnun hefði verið tryggð fyrir FlyOver Iceland sem hyggst sýna íslenska náttúru í sýn- ingarsal með ýmsum tæknibrellum. „Það er umfangsmikið verkefni sem kosta mun yfir einn milljarð króna,“ segir Þórður. Að hans sögn er vaxandi áhugi á hátækniþörungarækt. Ástæðan er hreint vatn, endurnýjanleg orka á hagkvæmu verði og aðgengi að koltvísýringi frá háhitavirkjunum og kælivatni. Fram hefur komið í Viðskipta- Mogganum að ísraelskt sprotafyrir- tæki á sviði líftækni, Algaennovation, í samvinnu við íslenska fjárfesta, hyggst byggja hér og starfrækja eitt afkastamesta framleiðslufyrirtæki í heimi á sviði smáþörungaræktar í auðlindagarði Orku náttúrunnar á Hellisheiði. Fyrstu árin mun áhersl- an verða á framleiðslu frumfóðurs fyrir klakstöðvar í fiskeldi. Auk þess hefur bæjarstjórn Ölfuss veitt já- kvæða umsögn um áform nýsköpunarfyrirtækisins Omega Algae sem hyggst koma upp fram- leiðsluaðstöðu í nágrenni Hellisheið- arvirkjunar. „Þrjú félög voru stofnuð um ný gagnaver á síðasta ári. Ekki síst í kringum bitcoin-gröft,“ segir hann. Íslandsstofa horfir einkum til þess að laða að verkefni sem fela í sér nýja þekkingu, eru umhverfisvæn og arð- söm og skapa verðmæt störf. „Við horfum því í þessu sambandi einkum á tækifæri á sviði þekkingariðnaðar og þá ekki síst í upplýsingatækni og líftækni.“ Hann segir að nokkuð erfitt sé að meta endanlegan árangur af starf- seminni enda „snertir endanleg ákvarðanataka fjárfestanna marga þætti sem ekki eru á okkar valdi. Ætli megi ekki segja að við getum á hverjum tíma búist við að 1-5% þeirra verkefna sem koma til skoðunar verði að veruleika, ekkert ósvipað og er í hefðbundinni nýsköpun hér á landi. Hvert verkefni sem gengur upp er hins vegar tiltölulega verðmætt“. Erlendar fjárfesting- ar nú fjölbreyttari Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Erlendar fjárfestingar hafa að undanförnu einkum ver- ið á sviðum ferðaþjónustu, gagnavera og smáþör- ungaframleiðslu. Morgunblaðið/RAX Ísraelskt sprotafyrirtæki hyggst starfrækja smáþörungarækt á Hellisheiði. SJÁVARÚTVEGUR Skinney – Þinganes vinnur að því að kaupa aflaheimildir Storms Seafood, einkum fyrir þorsk. Kaupin munu ekki vera frágengin. Þetta staðfestir Aðalsteinn Ingólfsson, forstjóri Skinneyjar-Þinganess, í samtali við ViðskiptaMoggann. Miðað við um- fang kaupanna er ljóst að virði kvót- ans hleypur á nokkrum milljörðum, að sögn sérfræðinga á markaði. Eft- ir því sem ViðskiptaMogginn kemst næst eru aflaheimildir einhvers staðar í kringum 1.400 tonn. Skinney-Þinganes gerir út tvö uppsjávarskip, tvö togveiðiskip, einn línubát og þrjú fjölveiðiskip. Þá rek- ur það tvær vinnslur í Höfn og aðra í Þorlákshöfn. Fram kom í ViðskiptaMogganum í síðasta mánuði að eigendur Storms hefðu ákveðið í fyrravetur að selja allt sitt í sjávarútvegi. Stormur Sea- food gerði út tvö skip sem hafa verið seld, sem og frystihús. Fyrir tveim- ur árum pantaði útgerðin nýtt neta- og línuskip knúið rafmagni og dísel- olíu, sem kom til landsins fyrir skemmstu og er nú til sölu. Steindór Sigurgeirsson á meiri- hluta í Storm Seafood en 44% á breskur sjóður í eigu Jason Whittle og barna hans. Afi Jasons var Frank Whittle sem fann upp þotuhreyfil- inn. helgivifill@mbl.is Skinney-Þinganes að kaupa kvóta Storms Morgunblaðið/Ómar Virði kvótans hleypur á nokkrum milljörðum, segja sérfræðingar. VERÐBRÉFAVIÐSKIPTI Arion banki var með mestu hlutdeild í hlutabréfaviðskiptum á Aðalmark- aði Kauphallarinnar á síðasta ári, eða 24%. Landsbankinn var næstur í röðinni með 20% og Fossar mark- aðir voru þriðju umsvifamestir með 15%, Kvika banki var með 14%, Ís- landsbanki 12% og Arctica Finance 11%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni. Á skuldabréfamarkaði var Lands- bankinn með mestu hlutdeildina eða 18%. Íslandsbanki fylgdi í kjölfarið með 17%, Arion banki kom fast á hæla með tæplega 17%, Kvika banki með 15%, Fossar markaðir voru með 12% og Arctica Finance með 6%. Fram hefur komið í Morgun- blaðinu að velta á hlutabréfamarkaði jókst um 13% á síðasta ári, sem má að einhverju leyti rekja til aukinnar þátttöku erlendra fjárfesta á mark- aði. Velta á skuldabréfamarkaði dróst hins vegar saman um 15% á árinu. helgivifill@mbl.is Arion banki umsvifa- mestur í hlutabréfum Morgunblaðið/Einar Falur Hlutdeild Arion banka í hlutabréfa- viðskiptum nam tæplega fjórðungi. VINNUMARKAÐUR Nú er unnið að því að birta í fyrsta sinn úttekt á atvinnuþátttöku út- lendinga sem ekki eru með lögheim- ili á Íslandi, fólks sem kemur hingað til að vinna til skemmri tíma meðal annars í ferðamennsku og bygging- ariðnaði, að sögn Ólafs Más Sigurðs- sonar, sérfræðings hjá Hagstofu Ís- lands. „Þetta er fólk sem við náum ekki til í okkar vinnumarkaðsrann- sókn, þar sem við byggjum þá rann- sókn á úrtaki úr þjóðskrá og fólki sem er með lögheimili á Íslandi,“ segir Ólafur í samtali við Viðskipta- Moggann. Atvinnuleysi 1,7% í nóvember Í nýrri vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands sést, þegar skoð- aður er samanburður mælinga fyrir nóvember 2016 og 2017, að vinnuafl á landinu hefur dregist saman um 1.000 manns og hlutfall þess af mannfjölda lækkað um 3,5 prósentu- stig. Ólafur segir að þessi fjöldi sé innan vikmarka. Í rannsókninni kemur fram að 198.100 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í nóvember 2017, sem jafngildir 80,5% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 194.700 starfandi og 3.400 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starf- andi af mannfjölda var 79,2% og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 1,7%. Samkvæmt rannsókninni stendur fjöldi starfandi nánast í stað en hlut- fall þeirra af mannfjölda lækkaði þó um 2,9 prósentustig. Atvinnulausir eru um 1.200 færri en á sama tíma árið 2016 og hlutfall þeirra lækkaði um 0,6 prósentustig. Alls voru 47.900 utan vinnumarkaðar og fjölg- aði þeim um 10.100 frá því í nóv- ember 2016. Ólafur vill skoða þann hóp betur. „Mig langar að skoða hvað einkennir hann.“ tobj@mbl.is Úttekt á erlendu vinnuafli væntanleg Morgunblaðið/Hanna Hlutfall atvinnulausra af vinnuafli er um 1,7% að mati Hagstofunnar. „Ef til vill er stærsta hindrunin sú að Ísland er enn sem komið er til- tölulega óþekkt sem „fjárfest- ingaland“ þótt almennt sé landið vel þekkt á öðrum sviðum,“ segir Þórður. „Á þessu þarf að ráða bót ef við viljum fullnýta tækifæri okk- ar til að laða hingað til lands þekkingarmiðuð verkefni og al- þjóðlega nýsköpun.“ Ísland er óþekkt fjárfestingaland Þórður H. Hilmarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.