Morgunblaðið - 04.01.2018, Side 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Kaupir heila blokk
Spánverjar kaupa á Granda …
Fordæmalaust góðæri við …
Stærstu vistaskiptin 2017
Eigandi Fossa kaupir í …
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Forval, sem er í eigu hjónanna
Haraldar Jóhannssonar og Fjólu G.
Friðriksdóttur, sendi á dögunum
3,5 tonn af íslensku salti til Dan-
merkur, sem framleitt er af Salt-
verki á Reykjanesi við Ísafjarð-
ardjúp. Saltið verður notað í nýja
dekur-baðvörulínu Forvals sem
markaðssett verður undir nafninu
Spa of Iceland. „Þetta er mjög
spennandi verkefni. Varan fer í
framleiðslu í þriðju viku mánaðar-
ins,“ segir Fjóla í samtali við Við-
skiptaMoggann.
Fjóla og Haraldur hafa nú þegar
skrifað undir dreifingarsamninga
sem tryggja dreifingu vörunnar í
Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu.
„Við erum búin að vera svo mörg ár
í þessum snyrtivöruheimi og búum
að góðum samböndum þar. Okkar
gömlu samstarfsaðilar tóku okkur
vel. Ísland er heitt, og héðan kemur
ekki mikið af vörum af þessu tagi.“
Alls verða 14 vörur settar á
markað núna. „Þetta verða m.a.
tveir líkamsskrúbbar, hvítur freyð-
andi saltskrúbbur og svartur
lava-saltolíuskrúbbur, sem er alveg
nýtt og mjög spennandi,“ segir
Fjóla og bætir við að baðlínan sé
hugsuð sem falleg lína inn á bað-
herbergið og ætluð fyrir allan lík-
amann.
Mikil áhersla á vegan-vottun
Forval vinnur alla þróunar- og
hönnunarvinnu með dönskum fram-
leiðanda sem er gamall samstarfs-
aðili Forvals, og framleiddi aðrar
vörur fyrir fyrirtækið um 10 ára
skeið. „Línan er með vegan-vottun
og inniheldur 95% náttúruleg inni-
haldsefni en við lögðum mikla
áherslu á að fá þessa vottun. Það
sem er þó mest um vert er að okkur
finnst þetta svakalega skemmtilegt
verkefni,“ sagði Fjóla að lokum.
Hreint íslenskt steinefnaríkt salt er m.a. hægt að nota í baðsalt, sjampó,
sturtusápur og handsápur. Spa of Iceland notast við salt frá Saltverki.
3,5 tonn af salti
til Danmerkur
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Nýjar vegan-vottaðar bað-
vörur úr íslensku salti eru
væntanlegar á markaðinn
með vorinu og alþjóðleg
dreifing hefur verið tryggð.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Það var ánægjulegt að þungavigt-ar-þingkona úr röðum Vinstri
grænna hóf árið með því að upplýsa á
síðum Morgunblaðsins að lækka ætti
veiðigjöld á minni og meðalstórar út-
gerðir með því að afkomutengja þau.
Í þeim orðum endurspeglast skiln-
ingur á að háar opinberar álögur eru
þeim fjötur um fót.
Því miður hefur komið fram í fjöl-miðlum að mögulega muni auð-
lindagjaldið hækka enn frekar á
stærri útgerðir. Það er hættuspil.
Gengi krónu er firnasterkt og há laun
í erlendri mynt hafa gert fyrir-
tækjum í greininni lífið leitt að und-
anförnu. Gullaldarár sjávarútvegs í
þessari hagsveiflu eru að baki og
efnahagslífið er í aðflugi.
SFS telur að tekjuskattur að við-bættu veiðigjaldi verði um 60%
af hagnaði í ár miðað við óbreytt
veiðigjald. Það er með ólíkindum.
Auðlindagjaldið er óskynsamlegt.Önnur lönd leggja ekki slíka
skattheimtu á sín fyrirtæki, en út-
gerðir keppa á alþjóðamörkuðum.
Landsmenn njóta góðs af velgengni
þeirra. Það fer oft lítið fyrir skilningi
á því.
Skattheimtan bitnar á samkeppn-ishæfni þeirra og dregur úr
þeim sóknarkraftinn. Það er ekki
gefið að íslenskur sjávarútvegur
verði í forystu á heimsvísu um ár og
aldir. Traust fyrirtæki falla alltaf
fyrr eða síðar. Skynsamlegra er að
létta skattbyrði útgerða til þess að
þau geti sótt fram í stað þess að
mjólka þau enn frekar.
Erfiðleikar
útgerða
Íslendingar geta stundum veriðfullnýjungagjarnir og of mikið
með á nótunum sem getur brotist
út í hömlulausu lífi, sem ekki er
hollt fyrir nokkurn mann. Sem bet-
ur fer höfum við alltaf alvitur
stjórnvöld sem halda okkur á mott-
unni og passa að við förum okkur
ekki að voða.
Þó að einstaka útlenskar nýj-ungar hafi fengið sæmilegt
brautargengi hér á landi á síðustu
misserum, nýjungar eins og Spot-
ify, Facebook, AirBnB, Costco og
Netflix, hafa stjórnvöld í gegnum
tíðina oft haft horn í síðu „nýj-
unga“ og jafnvel brugðið fyrir þær
fæti. Þar má nefna bjór, frjálst út-
varp og sjónvarp, þyrilsnældur,
matvörur ýmiss konar og lága
vexti.
Sem dæmi um útlenska nýjungsem stjórnvöld hér á landi
virðast ætla að vernda okkur gegn,
fyrirbæri sem Íslendingar á ferðum
sínum í útlöndum nota ótæpilega
og útlendingar enn meira, er
leigubílaþjónusta sem notast við
hið svokallaða deilihagkerfi. Eins
og greint hefur verið frá í Við-
skiptaMogganum nýtur íslenski
leigubílamarkaðurinn enn verndar
gegn þessum vágesti vegna reglu-
gerðar frá árinu 2003 um sérleyfi.
Vandinn nú er hins vegar sá að
leyfunum hefur ekki fjölgað í takt
við fjölgun landsmanna, hvað þá
heldur ferðamanna, sem hefur
fjölgað um 600% síðan 2003 en
leigubílaleyfunum einungis um
11%.
Hræðsla við nýjungar hefurfylgt manninum frá örófi
alda, en þó þykir það almennt við-
urkennt að ekki borgar sig að
standa í vegi fyrir framþróun. Eins
og Samtök atvinnulífsins hafa bent
á eru áhyggjur af framþróun á
leigubílamarkaði óþarfar, enda sýni
rannsóknir að bæði sjálfstætt starf-
andi bílstjórum og starfandi bíl-
stjórum á stöðvum hafi fjölgað þar
sem Uber, Lyft og aðrar slíkar
deilihagkerfisleigubílaþjónustur fá
að þrífast.
Vernd gegn framtíðinni
Um 40% líkur eru á
því að Apple kaupi
efnisveituna Netflix að
mati greinenda Citi-
group.
Apple kaupi
Netflix
1
2
3
4
5
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti
WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn
í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis
BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni
til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz
kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða.
WOW Biz
Sumir þurfa einfaldlega
meira WOW en aðrir.
BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
er