Morgunblaðið - 18.01.2018, Page 1
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
KOSTNAÐUR AF REGLUVERKISELDU BREYTANLEG BRÉF
ni útsendingu frá líkamsræktarstöð í NewYork. 4
Unnið
Kerecis er á hraðri siglingu og seldi
fjárfestum nýlega breytanleg skuldabréf
fyrir þrjár milljónir bandaríkjadala. 6
VIÐSKIPTA
4
Kjartan Smári Höskuldsson hjá Íslandssjóðum segir
fokdýrt að uppfylla kröfur evrópsks regluverks
fyrir markaði af allt annarri stærðargráðu.
ein
í sa
Æft í b
mvinnu vi Vilja gagnaver á Akranes
Tveir fjárfestahópar, einn frá Kína og
annar frá Þýskalandi, eiga nú í við-
ræðum við hérlenda aðila um mögu-
lega uppbyggingu gagnavera á Akra-
nesi. Talið er að einkum sé horft til
svokallaðrar „námuvinnslu“ rafmynta
í gagnaverunum, en það er starfsemi
þar sem menn sækjast eftir ódýrri en
stöðugri raforku, en ekki sé gerð eins
rík krafa um stöðuga gagnatengingu.
Ekki ný hugmynd
Horft er til uppbyggingar á nýju
iðnaðarsvæði Akurnesinga, hinu svo-
kallaða Flóasvæði, rétt utan bæjarins,
við afleggjarann í átt að Borgarnesi.
Hugmyndir um gagnaver eru ekki
nýjar af nálinni á Akranesi. Fyrir sjö
árum lá fyrir viljayfirlýsing við Akra-
nesbæ um slíka uppbyggingu, en
ekkert varð af þeim áformum á þeim
tíma. Einn þeirra aðila sem tengdust
því verkefni var fyrirtækið Securs-
tore, sem á þeim tíma var meðal ann-
ars í eigu Bjarna Ármannssonar fjár-
festis, sem ættaður er frá Akranesi.
Samkvæmt heimildum var helsta
ástæðan fyrir því að áformin náðu
ekki fram að ganga á þeim tíma tví-
þætt. Í fyrsta lagi var HB Grandi með
meiri og orkufrekari starfsemi á
Akranesi en nú er og öfluga spenni-
stöð vantaði í bæinn til að tryggja
flæði rafmagns til gagnaversins. Þá
voru gagnaleiðslur ekki eins full-
komnar og þær eru orðnar í dag.
Hvorutveggja er nú komið í lag, en ný
spennistöð var opnuð á Akranesi í
byrjun árs 2016.
Utan hamfarasvæða
Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri
á Akranesi, staðfestir að áhugi sé til
staðar hjá aðilum á uppbyggingu
gagnavera, bæði á Akranesi og Grund-
artanga. „Við höfum áhuga á slíkri
starfsemi í nágrenni Akraness og
myndum styðja við það með ráðum og
dáð,“ segir Sævar í samtali við Við-
skiptaMoggann.
Sævar segir að Akranes gæti verið
áhugaverður kostur fyrir uppbygg-
ingu sem þessa þar sem bærinn sé ut-
an hamfarasvæða.
Frakkar til Grundartanga
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu fyrr í vikunni þá áforma
franskir aðilar að reisa og reka gagna-
ver á Grundartanga, en heimild var
gefin á fundi stjórnar Faxaflóahafna
síðastliðinn föstudag, að tímabundnu
vilyrði fyrir skilyrtri úthlutun lóðanna
Tangavegur 9 og Tangavegur 11, sam-
tals um 3.700 fermetrar að flatarmáli.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Akranes er talið vel í sveit
sett fyrir rekstur gagna-
vera. Tveir hópar fjárfesta
hafa sýnt áhuga á slíkri
uppbyggingu á hinu svo-
kallaða Flóasvæði.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gagnaver gætu risið í náinni framtíð á Akranesi og/eða á Grundartanga, í
nágrenni Akraness. Talið er að verin muni sinna námuvinnslu rafmynta.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
2.000
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
18.7.‘17
18.7.‘17
17.1.‘17
17.1.‘17
1.767,14
1.741,87
130
125
120
115
110
122,05
126,0
„Leiðakerfið vestur um haf er í
raun orðið ótrúlega öflugt. Það er
aðeins British Airways sem býður
upp á fleiri áfangastaði en við í
Norður-Ameríku,“ segir Björg-
ólfur Jóhannsson, forstjóri Ice-
landair Group. Hann segir að fé-
lagið sæki nú fram í kjölfar
mikillar uppstokkunar á skipulagi
þess. Meðal þess sem nú sé skoð-
að sé að hefja flug inn á nýja og
fjarlægari markaði.
„Við erum einnig að skoða
ákveðna möguleika í Asíu og einn-
ig að fara dýpra inn í Evrópu.
Asía er spennandi, líkt og Afríka
að því marki að þar er vöxturinn
gríðarlegur. Það er að skapast
eftirspurn eftir flugi til og frá
þessum heimsálfum og við viljum
skoða möguleika á því að sækja
sneið af þeirri köku, annað hvort
sjálf eða í samstarfi við
aðra aðila.“
Kanna möguleika á flugi til Asíu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgólfur segir félagið vel búið
undir harðari samkeppni í fluginu.
Icelandair kannar nú
möguleika á flugi til Asíu
samhliða fjölgun áfanga-
staða í Bandaríkjunum.
8
Í nánast öllum atvinnugrein-
um virðist samruni vera eina
lausnin til þess að geta keppt
við stærstu tækni-
fyrirtækin.
Stjörnufyrirtækið
tekur völdin
10
Á síðasta ári var metsala á bíl-
um í Bandaríkjunum en nú
undirbúa framleiðendur sig,
og markaðinn, und-
ir að hægja fari á.
Hægir á hjá bíla-
framleiðendum
11
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.