Morgunblaðið - 18.01.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 18.01.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018FRÉTTIR ©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim. Af síðum Það virðist skrifað í skýin að Oprah Winfrey, óopinber forseti hluttekn- ingarinnar í Bandaríkjunum, myndi koma fram sem draumaframbjóðandi demókrata til þess að leggja Donald Trump árið 2020. Sem hörundsdökk kona höfðar hún til fjölda hags- munahópa og pólitískra mála sem tengjast sjálfsvitund, allt frá #MeToo-byltingunni yfir í Black Lives Matter-hreyfinguna. En með eigið sjónvarps-, kvik- mynda- og tímaritaveldi, og verandi sú kvenkyns fjölmiðlastjarna sem náð hefur til breiðasta hóps fólks í Bandaríkjunum á undanförnum ára- tugum, þá talar hún ekki síður til þeirra sem eru á miðju litrófi stjórn- málanna. Oprah er, líkt og núverandi forseti Bandaríkjanna, alþjóðlegt vörumerki, og það segir okkur ýmis- legt. Við lifum í stórstjörnuhagkerfi, þar sem fólkið og fyrirtækin á toppn- um, og jafnvel tiltekin landsvæði, raka til sín bróðurpartinum af öllum völdum, auði og athygli. Samþjöppun auðs og valda Frá því seint á tíunda áratugnum höfum við séð stórstjörnufyrirtækið (e. the superstar company) verða allsráðandi. Samkvæmt tölum McKinsey Global Institute hefur hagnaður í þremur geirum, þ.e. tækni-, fjármála-, og heilbrigðis- og lyfjageirum, nærri þrefaldast síðan þá, og nemur hann núna um 45% af heildarhagnaði bandarískra fyrir- tækja (samþjöppun í þessum grein- um fer líka vaxandi, þó í minna mæli hjá öðrum ríkum þjóðum). Í Bandaríkjunum endurspeglast þróunin ekki bara í atvinnugrein- unum sem byggjast á hugverkum, heldur í vaxandi mæli í hagkerfinu öllu. Eins og bent er á í nýlegri skýrslu frá Brookings Institution, hefur á undanförnum tveimur ára- tugum orðið aukin samþjöppun á auði og áhrifum í meira en 75% at- vinnugreina í Bandaríkjunum. Ef við berum tölurnar nú saman við ástand- ið eins og það var eftir seinna stríð, þegar bandaríska hagkerfið óx hvað hraðast, þá er munurinn sláandi. Ár- ið 1954 stóðu 60 stærstu fyrirtækin á bak við 20% af landsframleiðslunni. Í dag mynda 20 stærstu fyrirtækin meira en 20% landsframleiðslunnar. Áhrif alþjóðasamkeppni Hvað er það sem veldur? Vitaskuld er alþjóðleg samkeppni ein ástæðan, en hún hefur skapað þrýsting á bandarísk fyrirtæki og leitt þau af þeirri braut sem áður tíðkaðist, þeg- ar kökunni var skipt jafnar á milli starfsmanna, fyrirtækja og nærsam- félags. Breyting á lögum um hringa- myndun er önnur skýring. Það er engin tilviljun að nýjar reglur um einokunarstarfsemi, sem alríkis- dómarinn Robert Bork bar mesta ábyrgð á, breiddust út á 9. áratugn- um einmitt þegar samkeppni við út- lönd var að aukast. Bork-hugmynda- fræðin, sem gengur út á það að á meðan verð til neytenda er á niður- leið þá sé enginn samkeppnisvandi til staðar, hefur staðið í vegi fyrir því að stjórnvöld hafi getað stemmt stigu við samþjöppun að sama krafti og gert var á „gullöldinni“ seint á 19. öld og á árunum eftir seinna stríð. En stærstu og valdamestu atvinnugreinarnar starfa ekki með sama hætti í dag og þær gerðu hér áður fyrr. Oft eru vörur þeirra ódýr- ar eða ókeypis, svo að það verð sem neytendur þurfa að greiða dugar ekki lengur sem mælikvarði á hvort samkeppnin geti talist eðlileg. Kerf- isleg áhrif valda því að þau fyrirtæki sem ná stærstri markaðshlutdeild geta á undraskömmum tíma náð ráð- andi stöðu, stundum að því er virðist á einni nóttu (Amazon, sem dæmi, tók til sín 44% af allri netverslun í Bandaríkjunum árið 2017). Digrir sjóðir gera þeim kleift að kaupa upp hugsanlega keppinauta. Monsanto, stærsti efnaframleiðandi til landbún- aðar í Bandaríkjunum, hefur keypt nærri 30 fyrirtæki á undanförnum áratug, viðskiptahugbúnaðarfram- leiðandinn Oracle hefur hrifsað til sín meira en 80 fyrirtæki og Google meira en 120. Í nánast öllum öðrum atvinnugreinum – allt frá matar- og drykkjarframleiðslu yfir í banka, neytendavörur og fjölmiðla – þá virð- ast samrunar vera lausnin, svo fyrir- tækin geti náð nægilegri stærð til þess að eiga möguleika í samkeppni við stærstu fyrirtæki tæknigeirans. Það virðist ljóst að umfjöllun fjöl- miðla um minnkaðan þrótt sprota- fyrirtækja og frumkvöðla í Banda- ríkjunum er tengt vaxandi samþjöppun valds hjá örfáum gráð- ugum risum. Skattaleg sérmeðferð Í kringum stórstjörnu-fyrirtækin má finna þyrpingar af stórstjörnu- fjárfestum og -starfsmönnum. Skoð- um til dæmis fjölgun svokallaðra „pass-through“ fyrirtækja sem hlutu jafnvel enn betri skattalega sér- meðferð með nýlegum skattabreyt- ingum Trumps. Þetta eru fyrirtæki sem greiða sömu skattprósentu og einstaklingurinn sem á þau. Saman standa þau á bak við 50% af heildar- tekjum allra bandarískra fyrirtækja (og er það tvöfalt stærri hlutur en ár- ið 1980), og flest heyra þau undir fólk sem starfar í greinum sem reiða sig á hugverk, svo sem í tækni, lögfræði- og fjármálageira. Þau standa líka að baki um það bil 40% þeirrar aukn- ingar á ójöfnuði sem fræðimenn á borð við Thomas Piketty hafa fjallað um. Ekki ætti að koma á óvart að þessi samþjöppun efnahagslegs afls hafi leitt til þess að landfræðilegt vald hefur þjappast saman. Í skýrslu Economic Innovation Group frá árinu 2016 var leitt í ljós að meira en 50% af öllum nýjum störfum urðu til í aðeins 75 af meira en 3.000 sýslum Bandaríkjanna. Þessi þróun mun bara halda áfram að stigmagnast, því hæfileikaríkasta unga fólkið þyrpist í nokkrar borgir, ýtir upp fasteigna- verðinu og veldur því að erfiðara verður fyrir þá sem ekki eru í stór- stjörnu-klúbbnum að ná fótfestu í hinni samfélagslegu fæðukeðju. Það er út af þessu sem ég er ekki viss um að ég vilji sjá Opruh í Hvíta húsinu, þó svo ég kunni að meta hana og þá tilfinningalegu andstöðu við núverandi forseta sem hún stendur fyrir. Demókratarnir velta sér mikið upp úr því hvernig vald safnast sam- an eftir litarhætti og kyni. En það sem raunverulega þarf að gefa gaum er staða ólíkra stétta, þó ég vilji ekki hljóma eins og Marxisti. Ég myndi gjarnan vilja að næsti forseti væri einhver sem léti sig miklu varða að skilja stórstjörnuhagkerfið og brjóta það á bak aftur, enda er það að kæfa möguleikann á jafnari og sjálfbærari efnahagsbata. Ég er einfaldlega ekki sannfærð um að milljarðamæringur og fjöl- miðlastjarna sé rétta mann- eskjan til að gera það. Stórstjörnufyrirtækið er að taka yfir Eftir Rönu Foroohar Á undanförnum tveimur áratugum hefur orðið auk- in samþjöppun á auði og áhrifum í meira en 75% atvinnugreina í Bandaríkj- unum þar sem umfang stórra stjörnufyrirtækja fer sífellt vaxandi. AFP Greinarhöfundur vill að næsti forseti Bandaríkjanna brjóti á bak aftur stórstjörnuhagkerfið sem sé að kæfa jafnari og sjálfbærari efnahagsbata, en milljarðamæringur eins og Oprah Winfrey sé kannski ekki rétta manneskjan til þess. Miðhrauni 13 - Garðabæ - Sími 555-6444 - www.maras.is YANMAR Aðalvélar 9 - 6200 hö. Mynd: Landhelgisgæslan

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.