Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 18.01.2018, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018SJÓNARHÓLL Greinarhöfundur hefur áður á þessum vettvangifjallað um markaðssetningu íslenskra sjáv-arafurða og fært markaðsfræðileg rök fyrir því að þar sé víða pottur brotinn. Það er hins vegar ánægjulegt frá því að segja að undanfarið hefur grett- istaki verið lyft í markaðssetningu íslensks lambakjöts sem margir mættu draga lærdóm af. Mörg undanfarin ár hefur vandamálið í greininni verið að miklar birgðir af kindakjöti hafa safnast saman í landinu. Nýlega birti Gallup niðurstöður úr könnun meðal erlendra ferðamanna þar sem fram kom að rúmlega helmingur þeirra borðar ís- lenskt lambakjöt þegar þeir eru staddir á landinu. Um 50% þeirra borða lambakjöt á veitingastöðum og 13% neyta lambakjöts sem keypt er í búð. Einnig sýndi könn- unin að 27% erlendra ferða- manna þekktu vörumerki Icelandic lamb sem var markaðssett á síðasta ár. Af þeim sagðist tæplega helm- ingur hafa mjög jákvætt við- horf til þess. Þetta sýnir, svo ekki verð- ur um villst, að markaðs- setning íslensks lambakjöts gagnvart erlendum ferða- mönnum hefur tekist afar vel. Sama gildir um vörumerki Icelandic lamb. Þessu til frekari staðfest- ingar jókst sala á kindakjöti innanlands umtalsvert í fyrra eftir nokkur samdráttarár í röð. Nú stendur yfir markaðsátak í Japan og Þýskalandi þar sem fyrstu viðbrögð lofa mjög góðu um framhaldið. Það verður að teljast gott framtak hjá forsvars- mönnun Icelandic lamb að byrja á því að beina mark- aðsspjótum sínum að erlendum ferðamönnum. Í því skyni hefur verið ýtt af stað samstarfsverkefni með 100 innlendum veitingastöðum þar sem lambakjötið er í öndvegi auk þess sem vörumerkinu er haldið á lofti. Einnig hafa nýjar vöruumbúðir verið hannaðar með það fyrir augum að auðvelda sölu í matvörubúðum til erlendra ferðamanna. Áætlað er að fjöldi erlendra ferðamanna hér á landi verði um 3 milljónir á þessu ári. Gera má ráð fyrir því að þeir ferðamenn sem borða íslenskt lambakjöt beri orðspor þess að einhverju leyti til heimalanda sinna sem getur auðveldað markaðssetningu í þeim löndum. Mörg íslensk fyrirtæki mættu því taka markaðs- nálgun Icelandic lamb sér til fyrirmyndar, ekki síst fyrirtæki í sjávarútvegi. Þar starfar hver í sínu horni og því er ekki um neina heilsteypta markaðsstefnu að ræða. Lambakjötsgreinin hefur hingað til treyst of mikið á ódýrari afsetn- ingarmarkaði og því er mikilvægt að forsvarsmenn hennar myndi sér aðra framtíðarsýn sem byggir grunn sinn á betur borgandi mörk- uðum. Næsta skref hjá Icelandic lamb er því væntanlega að setja stefnuna inn á ákveðnar markaðs- syllur (e. niche) erlendis, jafnframt því sem áherslan þarf að vera á að styrkja vörumerkið enn frekar til að auðvelda hærri verðlagningu (e. premium price). Þetta þýðir að skapa þarf ís- lensku lambakjöti sérstöðu á sérvöldum erlendum há- gæðamörkuðum. Sterk vörumerki hafa þann ótvíræða kost að aðgreina sig frá vörum keppinauta, þannig að ímyndin verður hluti af því verði sem markaðurinn er tilbúinn að greiða. Þetta kallar meðal annars á stefnu- miðaða vörumerkjastjórnun. Ef vel til tekst ætti þetta að hafa í för með sér að hærra verð fæst fyrir íslenskt lambakjöt sem yrði þá meira í samræmi við sérstöðu þess og gæði fram yfir lambakjöt frá öðrum löndum. Sérstaklega þarf að halda sérstöðu íslensks lambakjöts á lofti eins og að um náttúruafurð sé að ræða (villibráð), hreint land, sáralitla notkun sýklalyfja og að engin erfðabreytt efni séu í fóðri, svo eitthvað sé nefnt. MARKAÐSMÁL Þorsteinn Þorsteinsson, rekstrarhagfræðingur og framkvæmdastjóri Markaðsrýni. Markaðssetning íslensks lambakjöts ” Gera má ráð fyrir því að þeir ferðamenn sem borða íslenskt lamba- kjöt beri orðspor þess að einhverju leyti til heimalanda sinna sem getur auðveldað mark- aðssetningu í þeim löndum. VEFSÍÐAN Eitt það ergilegasta við starf graf- ískra hönnuða og vefsíðuhönnuða er að vinna úr athugasemdum við- skiptavina og samstarfsfólks og reyna að skilja nákvæmlega hvað það er sem þau vilja. Oft vill mikill tími og orka fara í tölvupóstsendingar, símhringingar og fundi og heljarinnar föndur við að fá á hreint hverju á að breyta og hvar má bæta. Fizzl (fizzl.io) er nýtt verkfæri sem hönnuðir ættu að taka fagn- andi, en um er að ræða vefforrit sem nota má til að senda teikningar og skyssur hratt og vel á milli manna. Notendur geta, á hand- hægan hátt, krotað og merkt inn á hönnunina og þannig gefið mjög skýrt til kynna hvað þeim líkar, hvað þeim líkar ekki, og hvar þarf að gera alls kyns minniháttar lag- færingar. Margir geta fiktað í sömu teikn- ingunni á sama tíma, og hægt að sjá hver gerði hvaða tillögu. Hönnuður- inn getur líka tiltekið ákveðinn tímafrest, svo að athugasemdirnar séu ekki of lengi á leiðinni, og Fizzl getur skimað athugasemdirnar til að búa til orðaský svo að hönnuður- inn sjái betur hvaða atriði það eru sem brenna mest á þeim sem hafa rýnt í hönnunina. ai@mbl.is Samstarfið við hönn- uðinn gert léttara HARI Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhella 9 | 221 Hafnarfjörður Sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is www.kvarnir.is 1996 2016 20 ÁRA RUSLAGÁMUR STEYPU SÍLÓ GEYMSLUBOX Galvaniseraðir ruslagámar Til á lager Auðveldar steypuvinnu. Til í ýmsum stærðum Frábær lausn til að halda öllu til haga á byggingarsvæði. Aukahlutir fyrir byggingakrana Kvarna-tengi 70 kr stk m/vsk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.