Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
„Wow, í alvöru?“ …
Bónus opnar á brunareit …
Skoða hvort pissað verði á IKEA …
Punktafríðindin að renna út …
Lögðu verslanir H&M í rúst …
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Franska vélmennið Pepper kom
fram á starfsdegi Arion banka sem
haldinn var um nýliðna helgi og steig
meðal annars á svið með banka-
stjóra Arion banka, Höskuldi H.
Ólafssyni. Pepper, sem er í sinni
annarri heimsókn hér á landi, ræddi
m.a. við starfsfólk bankans um fram-
tíðina og tækniframfarir.
„Við vorum með árlegan starfsdag
okkar um helgina þar sem allt
starfsfólk bankans kom saman og
ræddi helstu áherslur og verkefni
ársins,“ sagði Gunnlaugur Bragi
Björnsson, sérfræðingur á sam-
skiptasviði bankans, í samtali við
ViðskiptaMoggann.
Hann segir að koma Pepper hafi
tengst áherslum starfsdagsins, en
þar veltu menn einkum fyrir sér
framtíðinni og hvernig stafrænar
lausnir eru nýttar til að veita við-
skiptavinum bankans þægilega
bankaþjónustu.
„Við leggjum áherslu á stafræna
þjónustu og höfum sett fjölda nýrra
lausna í loftið síðasta eitt og hálft ár
eða svo. Við sjáum að gervigreind er
að ryðja sér til rúms í sífellt meiri
mæli, og augljóst að hún mun hafa
áhrif í bankageiranum eins og öðr-
um geirum.“
Getur sárnað
Gunnlaugur segir að það að sjá og
eiga samskipti við Pepper sýni vel
hvernig tækninni fleygir fram.
„Pepper getur svarað spurningum,
tjáð tilfinningar og sárnar t.d. ef
maður er leiðinlegur.“
Pepper heilsaði einnig upp á gesti
og gangandi í nýju útibúi Arion
banka í Kringlunni, og fjöldi fólks
kom að hitta hann þar, að sögn
Gunnlaugs. „Það hentaði vel að fá
Pepper í Kringluna sem er okkar
framtíðarútibú og styður vel við okk-
ar þróun og stafrænu lausnir.“
Pepper segist hvorki vera strákur né stelpa, heldur bara róbóti.
Bankastjóri
ræddi við róbót
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Stafrænar lausnir og gervi-
greind voru áberandi á
starfsdegi Arion banka.
Vélmennið Pepper gaf fólki
innsýn í framtíðina.
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Ein mesta skattheimta innanOECD-ríkjanna er á Íslandi.
Af þeim sökum er ég ósammála orð-
um sem fjármálaráðherra lét falla á
Skattadegi Deloitte þess efnis að
ekki sé brýnt að lækka skatta í ljósi
efnahagsuppsveiflunnar. Vakin er
athygli á að horfur eru á að það
hægist á hagvexti í ár.
Ísland vermir annað sætið yfirskattfrekustu ríki OECD þegar
litið er til skatta sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu. Þeir eru
30% hærri en meðaltal OECD-
ríkjanna, samkvæmt greiningu
Samtaka atvinnulífsins. Vinstri
menn mættu vera hreyknari af
þessum árangri. Við hrepptum silf-
ur í skattheimtu.
Því miður eru stjórnmálamennsjaldan reiðubúnir til þess að
lækka skatta en þeim þykir oft til-
efni til þess að hækka þá. Eftir hrun
voru skattar hækkaðir til að takast
á við fjármálaáfallið. Nú stefnir hins
vegar í lengsta hagvaxtarskeið í
manna minnum en ekki hafa skattar
lækkað myndarlega. Hvenær gefst
færi á skattalækkunum?
Bent var á það í aðsendri grein íMorgunblaðinu á þriðjudaginn
að ríkisútgjöld hafi aukist um 170
milljarða króna á undanförnum sjö
árum. Báknið þenst út. Þeir sem
bera ábyrgð á því virðast ekki
kunna sér hóf. Umsvifamiklum rík-
isrekstri fylgir mikil sóun. Það er
segin saga að fólk fer ekki jafn vel
með annarra manna krónur og sínar
eigin. Ríkið á ekki að vera svona
frekt á fóðrum.
Silfur í
skattheimtu
Enn stefna forsvarsmenn Reykja-víkurborgar og nágrannasveit-
arfélaga að því hraðbyri að koma á
laggirnar svokallaðri borgarlínu sem
liggja mun þvert í gegnum borgina
og hafa afgerandi áhrif á skipulag
hennar til framtíðar. Eftir brautinni
endilangri mun ætlunin vera að
byggja stórhýsi þar sem hugmyndin
er sú að fólk hírist undir umferð-
arniði en geti sem snöggvast skotist
á milli borgarhluta meðan út-
hverfaliðið situr fast í umferð-
arþvögunni. Þungamiðja borg-
arinnar verður því í kringum línuna
miklu sem menn segja að leysa muni
hnútinn sem myndast inn og út úr
borginni á álagstímum.
Ráðamenn borgarinnar hafa hinsvegar þverskallast við að bæta
gatnakerfið á síðustu árum. Meðan
dýrmætum tíma hefur verið sóað og
fjármagni veitt í að reisa fuglahús á
miðjum akreinum og Snorrabrautin
er orðin svo hlykkjótt að Ingemar
Stenmark og Bode Miller myndu
veigra sér við að leggja á hana,
leggja yfirvöld á ráðin um brun-
brautina miklu.
Og eins og vera ber er fjár-munum hlaðið á ráðgjafa af
ýmsu tagi sem allir gapa yfir snilld-
inni. Þeir sjá mikil tækifæri í verk-
efninu og þá ekki síst frekari verk-
efni og þannig gengur verkefnið
sjálfala. Einn ráðgjafinn er hins
vegar opinskárri með áætlanirnar
en aðrir. Það er fyrirtækið COWI í
Danmörku sem veit fyrir víst að
það mun aldrei þurfa að standa skil
gjörða sinna eða horfa framan í ís-
lenska skattgreiðendur sem borga
munu brúsann.
Í nýjustu skýrslu COWI er bein-línis bent á mikilvægi þess að
þrengja enn frekar að lífsháttum
borgarbúa, eigi borgarlínan að
verða að veruleika. Þeir vilja að
hún fái allan forgang á aðra akandi
umferð og að þrengja þurfi veru-
lega að möguleikum fólks til að
leggja einkabílnum í borgarland-
inu.
Hvorki hagræn rök né lýðræð-isleg geta hnigið að því að
þvinga fólk til að nota samgöngu-
máta sem það hefur ekki áhuga á.
Línan mikla og langa
Origo hefur keypt
þann hluta starfsemi
AGR Dynamics sem
snýr að Microsoft
Dynamics NAV.
Dynamics NAV
fer til Origo
1
2
3
4
5
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti
WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn
í vélina. Innifalið er hraðferð um borð,máltíð, forfallavernd og sömuleiðis
BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni
til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz
kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða.
WOW Biz
Sumir þurfa einfaldlega
meira WOW en aðrir.
BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
er