Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 14
Í efsta sæti lista Creditinfo í ár, í flokki meðalstórra fyrirtækja, er eignarhalds- félagið Randver, sem hélt utan um eignar- hlut Jóhanns Páls Valdimarssonar í Forlag- inu. „Nafnið er engin tilviljun enda félagið nefnt eftir stjórnarformanni eignarhaldsfélags- ins og Forlagsins, kettinum Randver sem féll frá á síðasta ári og var yndislegt dýr,“ útskýrir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri For- lagsins. Randver heldur ekki lengur utan um hlut Jóhanns, en Forlagið keypti á síðasta ári 42,5% hlut Jóhanns í fyrirtækinu og eru einu eigendur bókaútgáfunnar nú Egill og Bók- menntafélagið Mál og menning. Bókaútgáfan Forlagið hefur líka ratað ofar- lega á lista Creditinfo allt frá því fyrst var tekið upp á því að velja framúrskarandi fyrirtæki. Að komast á listann er afrek út af fyrir sig, en þyk- ir enn merkilegra í ljósi þess að Forlagið starf- ar í grein sem hefur átt erfitt uppdráttar. „Rekstur Forlagsins, og þar áður JPV útgáfu, hefur gengið vel og skilað hagnaði allt frá fyrsta starfsári,“ segir Egill, en reksturinn varð til árið 2001 með stofnun JPV-útgáfu og starfar enn á sömu kennitölu. Árið 2007 sam- einaðist JPV útgáfuhluta Eddu og stækkaði fyrirtækið umtalsvert við það. Blómleg bókabúð Í dag gefur Forlagið út fjölda bóka af ýmsum toga og er útgáfustarfsemin langsamlega fyrir- ferðarmest í rekstrinum, en fyrir nokkrum ár- um var ákveðið að hefja að auki rekstur bóka- búðar á Fiskislóð þar sem bókalager fyrir- tækisins er geymdur. „Við ákváðum að sér- kenni búðarinnar yrði gott úrval, enda hefur úrvalið í íslenskum bókabúðum dregist töluvert saman á undanförnum árum. Við vildum bjóða upp á bókabúð þar sem væri hægt að finna all- ar þær bækur sem fáanlegar eru hverju sinni og þannig er hægt að finna þar yfir 7.000 titla frá öllum útgefendum,“ útskýrir Egill. Eins og gefur að skilja geta prýðileg sam- legðaráhrif verið fólgin í því fyrir stóra bókaút- gáfu að reka eigin bókaverslun, en Egill segir jafnframt greinilegt að vöntun hafi verið á verslun af þessu tagi þar sem áherslan er á mikið úrval og vandaða þjónustu við við- skiptavinina. „Á síðasta ári jókst sala í bóka- búðinni okkar um tugi prósenta. Er það einkar ánægjulegt í ljósi þess hve mikið bókabransinn hefur átt í vök að verjast.“ Smíða hljóðbókaforrit Forlagið hefur líka tekið tæknina í sína þjón- ustu og opnaði fyrir ári nýja og fullkomna net- verslun þar sem kaupa má alla þá titla sem eru til sölu í bókabúðinni á Fiskislóð. „Á síðasta ári margfölduðum við líka framboð rafbóka og létu viðbrögð kaupenda ekki á sér standa því um 500% aukning varð í sölu rafbóka hjá Forlaginu í fyrra. Mætti því áætla að ástæðan fyrir því að rafbókamarkaðurinn á Íslandi hafi ekki enn náð því flugi sem hann hefur gert í flestum ná- grannalöndunum hafi verið að framboðið var ekki verið nægjanlegt.“ Næst á dagskrá er að efla hljóðbókaútgáfuna og síðar á árinu mun Forlagið gefa út snjall- forrit fyrir farsíma og tölvur þar sem hægt verður að streyma hljóðbókum yfir netið. „Við teljum að útgáfa hljóðbóka á geisladiskum sé ekki lengur skynsamleg, einfaldlega vegna þess að geisladiskaspilarar finnast varla á heimilum, og ljóst að með snjallsímavæðing- unni mun streymi hljóðbóka verða framtíðin.“ Hljóðbókaútgáfan verður stórt stökk fyrir Forlagið og ekki ódýr tilraun. „Það er rétt að útgáfa hljóðbóka getur verið töluvert kostn- aðarsöm enda þarf að borga fyrir lesturinn og greiða tæknimanni. Þá verður að auki að streyma efninu, sem kostar sitt, og halda utan um tæknilegu hliðina. Er kostnaðurinn af hljóðbókaútgáfu því töluvert meiri en af að gefa út rafbók,“ segir Egill. Ekki háð jólabókaflóðinu Spurður hvað geti skýrt góðan rekstur bóka- útgáfuhlutans segir Egill að þar spili fjölmargir þættir inn í. „Við höfum haft frábæra höfunda og líka frábært starfsfólk og alltaf sýnt mikið aðhald í rekstri. Í sögulegu tilliti hefur ekki gengið vel hjá útgefendum, og það er alltaf mikilvægt að missa ekki sjónar á rekstrarhluta útgáfunnar samhliða því að reyna að gefa út bækur sem eiga erindi við almenning og geta selst.“ Það ætti líka að hafa hjálpað Forlaginu að bókaútgáfunni er dreift yfir allt árið og fyrir- tækið ekki jafn háð jólabókavertíðinni og marg- ir keppinautarnir. „Flestir útgefendur eiga lík- lega allt sitt undir því hvernig salan gengur á þriggja vikna kafla, og hætt við að illa fari ef hlutirnir ganga ekki upp í aðdraganda jóla. Eitt helsta keppikefli okkar eftir stofnun var að gefa út bækur á öðrum árstímum og breikka þannig tekjugrunninn. Það hefur gengið vel og er nú svo komið að aðeins minnihluti tekna Forlagsins verður til í jólabókaflóðinu, eða um þriðjungur. Hjá mörgum öðrum útgáfum hygg ég að hlutföllunum sé jafnvel öfugt farið og að 80% eða allt upp í 90% af tekjunum verði til í desember.“ ai@mbl.is „Höfum alltaf sýnt mikið aðhald í rekstri“ Morgunblaðið/Styrmir Kári 88. sæti Randver Meðalstórt 1. sæti Egill Örn Jóhannsson 14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Bókaforlögin hafa átt erfitt uppdráttar og segir Egill að skömmu eftir hrun hafi tekjur bókaútgefenda byrjað að dragast saman. „Flesta aðra geira sem upplifðu sams kon- ar samdrátt hefur tekist að styrkja á ný, en bókaútgáfan hefur ekki enn fundið við- spyrnuna,“ segir Egill og bendir á að að- gerðir ríkisins hafi ekki hjálpað til: „Ríkið létti álögum á fjölmargar greinar í kjölfar hrunsins, og má t.d. nefna verslun með skó og fatnað, og ýmsar undanþágur og stuðn- ing sem skapandi greinar hafa notið. Þegar kom að bókaútgáfu voru álögurnar þvert á móti auknar og hefur það gert okkur erf- iðara fyrir.“ Nú gæti loksins verið komið að viðsnún- ingnum sem beðið hefur verið eftir: „Í stjórnarsáttmála nýju ríkisstjórnarinnar stendur að afnema skuli skatta á bókum og trúi ég að svo verði á árinu. Það getur kom- ið til með að hafa grundvallaráhrif til batn- aðar fyrir bókaútgáfu á landinu.“ Þrengt að frekar en létt undir „Í sögulegu tilliti hefur ekki gengið vel hjá útgefendum, og það er alltaf mikilvægt að missa ekki sjónar á rekstrarhluta útgáf- unnar samhliða því að reyna að gefa út bækur sem eiga erindi við almenning og geta selst,“ segir Egill Örn Jóhannsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.