Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 74
74 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI
H
jónin Sverrir Þorsteinsson og Her-
dís Jónsdóttir stofnuðu Happy
Campers árið 2009. Þau fóru hægt í
sakirnar fyrst um sinn í rekstr-
inum, keyptu fimm gamla bíla til að byrja
með og hönnuðu og smíðuðu allar breytingar
á bílunum sjálf. Viðskiptavinirnir hafa tekið
rækilega við sér enda hugnast mörgum sá
kostur ferðabílanna að vera ekki einasta far-
kostur á ferð þeirra um landið heldur getur
fólk eldað í þeim mat og svo sofið í þeim á
nóttunni. Fyrirtækið er nú í hópi framúrskar-
andi fyrirtækja í fyrsta sinn – hverju skyldu
þau hjónin helst þakka það?
„Við þökkum því helst að hafa verið vakin
og sofin yfir rekstrinum frá því að við opn-
uðum fyrirtækið 2009 ásamt því að hafa haft
með okkur gott starfsfólk alla tíð,“ segir
Sverrir. „Árið 2017 var okkur gott ár, næg
eftirspurn og ánægðir viðskiptavinir.“
Áhersla á persónulega þjónustu
Allnokkur samkeppni er hér á landi á sviði
ferðabíla af því taginu sem Happy Campers
hafa til leigu en Herdís segist ekki í neinum
vafa um það hvar sérstaða þeirra liggur.
„Okkar sérstaða liggur helst í einfaldleik-
anum, mjög góðri og persónulegri þjónustu
við viðskiptavininn og síðast en ekki síst,
þeirri heildarímynd sem við bjóðum upp á
sem viðskiptavininum líkar vel við.“ Hún bæt-
ir því við að viðskiptamannahópurinn hafi
stækkað á hverju ári og nam aukningin um
30% á ári. „Mikilvægustu markaðssvæðin
okkar eru Norður-Ameríka og Evrópa, en að
sjálfsögðu fáum við líka fólk alls staðar að úr
heiminum.“
Öðru máli gegnir um heimamenn hvað
þennan ferðamáta varðar og Herdís brosir út
í annað þegar skiptinguna milli innlendra og
erlendra viðskiptavina ber á góma.
„Íslendingar eru sjaldséðir hrafnar hjá
okkur og eru því 99% viðskiptamanna okkar
útlendingar.“
Það hefur lengi verið keppikefli ferðaþjón-
ustunnar hér á landi að gera Ísland að heils-
árs-áfangastað. Sverrir segir ferðabílana frá
Happy Campers fullkomlega í stakk búna til
ferðalaga um Ísland allt árið um kring.
„Við erum með þrjú tímabil í gangi og eru
vor- og haustkúnnar alltaf að verða fleiri og
fleiri, þar sem það þykir eftirsóknarvert að
heimsækja Ísland á jaðartímum. Það er líka
fullkomlega raunhæft að „Camperar“ séu val-
kostur allt árið um kring eins og aðrir bíla-
leigubílar eða rútur, ef bílarnir eru vel útbúnir
og Vegagerðin heldur vegum opnum. Þarna
undanskil ég kannski einstaka óveðurstilfelli.
Okkar viðskiptavinir fara út vel upplýstir og á
vel útbúnum bílum og eru þar að auki með
upplýsingar um þau tjaldsvæði sem bjóða
gistingu allt árið en þeim fer fjölgandi á
hverju ári.“
Stór hluti flotans endurnýjaður
Það er því ekki að undra að það er hugur í
þeim hjónum í upphafi ársins 2018 að loknu
góðu ári í rekstrinum.
„Á næsta ári verðum við með svipaðan bíla-
flota og árið 2017 en höfum þó endurnýjað
góðan part af flotanum, selt gamla bíla og
skipt þeim út fyrir nýja,“ útskýrir Herdís.
„Við höfum alltaf lagt mjög mikla áherslu á að
veita viðskiptavinum okkar mjög góðar upp-
lýsingar varðandi allt sem tengist því að
ferðast um Ísland. Við höfum því betrumbætt
upplýsingahornið okkar þar sem við sýnum og
kennum þau atriði sem mikilvægust eru, og
höfum meðal annars bætt við gagnvirkum
stórum snertiskjá þar sem við komum þessum
skilaboðum vel til skila. Þar má telja upplýs-
ingar um færð og veður, vegi og vegleysur,
tjaldsvæði og verslanir, umgengni um íslenska
náttúru og margt fleira.“
Sverrir tekur undir þetta og bætir við:
„Það voru tímamót hjá okkur á síðasta ári
þegar Happy Campers opnaði útibú í Höfða-
borg í Suður-Afríku. Það eru spennandi tímar
þar framundan hjá okkur en um 10 milljónir
ferðamanna heimsækja landið árlega fyrir ut-
an heimamenn þar í landi sem eru duglegir að
notast við þennan ferðamáta.“
jonagnar@mbl.is
Sérstaðan liggur í einfaldleikanum
Morgunblaðið/Golli
387. sæti
Happy
Campers
Meðalstórt 177. sæti
Herdís Jónsdóttir og
Sverrir Thorsteinsson
„Við höfum alltaf lagt
mjög mikla áherslu á að
veita viðskiptavinum
okkar mjög góðar upp-
lýsingar varðandi allt
sem tengist því að
ferðast um Ísland,“
segir Herdís Jónsdóttir
hjá Happy Campers.
H
ugbúnaðarfyrirtækið dk hugbún-
aður féll út af lista Creditinfo eftir
að ráðist var í mikla uppstokkun á
rekstrinum árin 2012 og 2013. „Á
þeim tíma tókum við þá ákvörðun að loka
starfsstöðvum okkar erlendis og einbeita okk-
ur að íslenska markaðnum. Þegar mest var
vorum við með starfsemi í Uppsölum, Malmö
og þrjár á Englandi en upp úr hruninu varð
úr að hætta allri starfsemi á Norðurlöndunum
og erum við núna aðeins með eitt útibú utan
Íslands sem þjónustar þau bresku fyrirtæki
sem nota hugbúnaðinn frá dk,“ segir Dag-
bjartur Pálsson, annar tveggja fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Vaxa með sama hraða
Uppstokkunin skilaði tilætluðum árangri.
Reksturinn hefur dafnað vel og komst dk hug-
búnaður fljótt aftur á listann yfir framúrskar-
andi fyrirtæki. „Allt frá árinu 2001, þegar við
byrjuðum að selja hugbúnaðinn okkar, hefur
vöxturinn verið um það bil 15% að jafnaði ár
hvert og sveiflast frá 11% til 20% milli ára.
Fyrirtækið hélt áfram að vaxa með sama
hraða á meðan við vorum í útrás en kostn-
aðurinn við útrásina var einfaldlega of mikill
og ljóst að breytinga var þörf. Eftir að við
endurskipulögðum reksturinn hefur það sýnt
sig að vöxturinn hefur haldið áfram með sama
hraða,“ segir Dagbjartur en á síðasta ári velti
dk hugbúnaður um það bil 1,34 milljörðum
króna. Árið á undan var veltan 1,14 milljarðar.
Fjögur þúsund í skýinu
Rúmlega sex þúsund fyrirtæki hér á landi
nota hugbúnað frá dk, þar af um fjögur þús-
und sem nýta sér skýjalausnir dk, en vöru-
framboðið inniheldur m.a. bókhaldskerfi,
framleiðslukerfi, verslunarkerfi, launakerfi,
verkkerfi og hótelkerfi. Dagbjartur segir
harða samkeppni á markaðnum og þarf dk
hugbúnaður m.a. að etja kappi við Navision og
Tok auk þess sem reglulega skjóta upp koll-
inum metnaðarfullir sprotar. „Við þurfum að
fylgjast vel með og vinna stöðugt að því að
auka og bæta vöruframboðið. Það höfum við
m.a. gert með hugbúnaði fyrir snjalltæki og
vefinn, svo að viðskiptavinir dk hugbúnaðar
hafa meira val hvar og hvernig þeir nota for-
ritin okkar,“ útskýrir Dagbjartur. „Á þessu
ári verða liðin 20 ár frá stofnun dk hugbún-
aðar og við vinnum nú hörðum höndum að
veglegri afmælisútgáfu okkar lykilvara sem
verður gefin út síðar á árinu og við bindum
miklar vonir við þær nýjungar og breytingar
sem því fylgja.“
Njóta góðs af uppsveiflu
Stefnt er að því að fyrirtækið vaxi áfram
með sama hraða og segir Dagbjartur ill-
mögulegt að vaxa hraðar öðruvísi en með
samrunum og yfirtökum. Horfurnar eru góðar
og þó svo að ekki verði miklar breytingar á
markaðshlutdeild dk hugbúnaðar þá fer kak-
an stækkandi. „Sú þensla sem hefur verið í at-
vinnulífinu undanfarin ár, ekki síst í ferða-
mannaiðnaðinum, hefur orðið til þess að fjölga
þeim fyrirtækjum sem þurfa á alls kyns hug-
búnaðarlausnum að halda og verið okkur
mjög til hagsbóta.“
ai@mbl.is
Vaxið að jafnaði um 15% ár hvert
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dagbjartur Pálsson og Magnús Pálsson deila með sér framkvæmdastjóri dk hugbúnaðar.
138. sæti
dk hugbúnaður
Meðalstórt 12. sæti
Dagbjartur Pálsson
Hjá dk hugbúnaði starfa í dag 58 manns
og þar af sex hjá útibúi fyrirtækisins á
Akureyri. Félagið þarf á snjöllum forrit-
urum að halda og segir Dagbjartur að
vissulega geti verið hörð samkeppni um
hæfasta fólkið. „Það er ekkert leyndar-
mál að til að halda í starfsfólkið þurfum
við að borga góð laun enda enginn hörg-
ull á freistandi atvinnutækifærum,“ segir
Dagbjartur. „Ástandið er þó ekki eins
slæmt í dag og það var tvö síðustu árin
fyrir hrun, þegar bankarnir löðuðu til sín
fólk og gerðu hugbúnaðarfyrirtækjunum
erfitt um vik.“
Þurfa að geta
boðið góð laun