Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.01.2018, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2018 VIÐSKIPTAMOGGINN FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI Þ að eru margvíslegar áskoranir sem tryggingafélög standa frammi fyr- ir, bæði í tengslum við fram- kvæmdir og breytta umferðar- menningu, segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár. Tækifærin eru þó ekki síðri og styrkurinn felst í frábæru starfs- fólki, en hjá Sjóvá starfar hópur á breiðu aldursbili, með mikla reynslu og góða kynjaskiptingu. „Góðan árangur þökkum við fyrst og fremst frábæru starfsfólki. Hjá Sjóvá starf- ar góður hópur fólks, kynjaskipting er jöfn, aldursdreifing góð og þekking og reynsla afar fjölbreytt,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár. „Við státum af afburða starfsanda og fyrirtækjamenningu sem við erum stolt af, enda felast í því mikil verð- mæti. Að undanförnu höfum við lagt mikla áherslu á frumkvæði í samskiptum við við- skiptavini okkar, að fara yfir trygginga- vernd þeirra og benda á það sem betur má fara. Við finnum vel að viðskiptavinir okkar kunna að meta þetta.“ Með á nótunum í deiglunni Hermann bætir því við að starfsfólk Sjó- vár leggi sig líka fram um að vera vel með á nótunum í því sem er að gerast í sam- félagsumræðunni hverju sinni. „Þannig fórum við t.d. vandlega yfir alla okkar ferla og vinnulag sem eru til staðar hjá okkur í kjölfar Metoo-umræðunnar í lok síðasta árs. Við höfðum reyndar fengið sjálfstæða ráðgjafa fyrir tveimur árum til að framkvæma viðamikla könnun á meðal starfsfólks á vellíðan, svokallað sálfélags- legt áhættumat, sem meðal annars tók út einelti og kynferðislega áreitni. Að mati þessara sérfræðinga var staða okkar í þess- um málum með því betra sem þeir höfðu kynnst og er það þakkarvert. Það þýðir þó ekki að hægt sé að afgreiða mál sem þessi út af borðinu í eitt skipti fyrir öll. Það þarf stöðugt að halda umræðunni gangandi og gefa skýr skilaboð.“ Tökum breyttu umhverfi fagnandi „Við viljum marka okkur sérstöðu með góðu þjónustustigi sem sniðið er að þörfum hvers og eins,“ útskýrir Hermann. „Þegar talað er um þarfir viðskiptavina er ljóst að þær eru að breytast hratt og við þurfum að fylgja þeim. Krafa um rafræn samskipti og við- skipti hefur vaxið umfram það sem við þó bjóðum upp á að svo stöddu,“ bætir hann við. „Við höfum tekið auknum kröfum og breyttu umhverfi fagn- andi því ný hugsun viðskiptavina er ekkert annað en tækifæri fyrir okkur til að verða betra tryggingafélag. Þessu kalli erum við að svara og eru það meðal annars stóru verkefnin framundan.“ Forvarnir og ávinningur þeirra Spurður um starfsumhverfi fyrirtækisins með tilliti til þróunar tjóna segir Hermann að Sjóvá fari ekki varhluta af því að það er uppsveifla í þjóðfélaginu. „Við þekkjum það vel að þegar hraðinn í samfélaginu eykst og framkvæmdir eru á fullu fjölgar tjónum því miður. Tjónatíðni hefur aukist og það er mikilvægt að reyna sporna við þeirri þróun eins og hægt er. Þar koma forvarnir til sögunnar,“ bendir hann á. „Við finnum til dæmis vel fyrir því að þau fyrirtæki sem eru í viðskiptum við okkur og skuldbinda sig til forvarna- samstarfs hafa náð miklum árangri í fækk- un tjóna. Sjóvá hefur mikið að bjóða á þessu sviði því við búum að áratuga reynslu af forvörnum og það er ávinningur að því að fækka tjónum og koma í veg fyrir óhöpp og slys. Starfsánægja eykst og traust til fyrirtækisins, auk þess sem færri slys og tjón hafa bein áhrif á kostnað.“ Það blasa við miklar áskoranir er varða öryggi í umferðinni og umferðamenningu, að mati Hermanns. Notkun snjalltækja undir stýri er því miður allt of mikil. „Taka verður á þessum vanda með öllum ráðum og eitt af því er að hækka sektir verulega,“ segir Hermann með áherslu. „Að sama skapi verðum við að ná betur utan um viðhald og endurnýjanir á öllum helstu vegum landsins þar sem umferð- arþungi hefur stóraukist ár frá ári. Sjálfum finnst mér sorglegt að okkur hafi ekki tek- ist að fá alla þá erlendu ferðamenn sem aka um vegi landsins til að greiða sinn hlut í notkun á vegakerfinu eins og algengt er í löndunum allt í kringum okkur.“ Framundan hjá Sjóvá Á nýju ári mun Sjóvá svo halda áfram að gera vörur fyrirtækisins og þjónustu ein- faldari og aðgengilegri, að því er Hermann segir. „Við munum halda áfram að sýna frum- kvæði í samskiptum við viðskiptavini ásamt því að bjóða lausnir sem koma til móts við sífellt breyttar þarfir, tækninýjungar og þjóðfélagsbreytingar. Svo má geta þess að Sjóvá rekur starfsemi sína allt aftur til árs- ins 1918 sem þýðir að félagið fagnar 100 ára afmæli á þessu ári. Þó að slík tímamót séu ánægjulegur áfangi er umhverfið að breyt- ast hratt og þessi tímamót minna okkur á mikilvægi þess að vera vakandi og taka af skarið og gera þær breytingar sem við- skiptavinir og umhverfið kallar eftir.“ jonagnar@mbl.is Sniðið að þörfum hvers og eins Morgunblaðið/Kristinn Magnússon 18. sæti Sjóvá Hermann Björnsson Við munum halda áfram að sýna frum- kvæði í sam- skiptum við viðskiptavini. „Við höfum tekið auknum kröfum og breyttu umhverfi fagnandi því ný hugsun viðskiptavina er ekkert annað en tækifæri fyrir okkur til að verða betra tryggingafélag. Þessu kalli erum við að svara og eru það meðal annars stóru verkefnin fram undan,“ segir Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.