Morgunblaðið - 07.02.2018, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 32. tölublað 106. árgangur
SINFÓNÍUNNI
STJÓRNAÐ MEÐ
TÖFRASPROTA
FRÁSÖGN SEM
KALLAST Á VIÐ
FYRRI TÍMA
HEILSA, HUGUR
OG NÚVITUND
MARKÞJÁLFA
TÁKN OG VÍSANIR 31 LÆKNINGAMÁTTUR 12ÆVINTÝRATÓNLEIKAR 30
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Kvartanir flugfarþega til Samgöngu-
stofu hafa aldrei verið eins margar
og í fyrra. Þá barst 1.121 kvörtun,
langflestar vegna seinkana á flugi,
eða 808. Þá bárust 180 kvartanir nú í
janúar, 45 þeirra eru vegna Primera
Air. Kemur það m.a. til vegna fyrir-
hugaðra aðgerða Samgöngustofu
gagnvart flugfélaginu.
Samgöngustofa hefur ákveðið að
beita sér í máli flugfarþega sem urðu
fyrir miklum töfum á nokkrum flug-
leiðum Primera Air í fyrra og hafa
ekki enn fengið greiddar skaðabæt-
ur. Flugfélagið viðurkenndi bótarétt
en hefur ekki staðið við að greiða
bæturnar til farþeganna sem um það
sóttu. Samgöngustofa hefur ákveðið
að taka ákvörðun um greiðslufrest,
fyrir hvert flug fyrir sig, þar sem
flugfélaginu er gefinn frestur til að
ganga frá greiðslu og sé hann ekki
virtur verður gripið til dagsekta.
Ekki hefur áður þurft að ganga
svona langt gagnvart flugfélagi enda
hefur sambærilegt vandamál ekki
komið upp áður, samkvæmt upplýs-
ingum frá Samgöngustofu.
Hrafn Þorgeirsson, framkvæmda-
stjóri Primera Air, segist ekki halda
að þau hafi verið að draga neitt á
langinn. „Við vinnum samkvæmt
lögum og reglum og greiðum öllum
sem eiga rétt á bótum,“ segir Hrafn.
Kvartanir fóru á flug í fyrra
1.121 kvörtun barst frá flugfarþegum til Samgöngustofu 2017 Flestar vegna
seinkana Aðstoða flugfarþega við að fá greiddar skaðabætur frá Primera Air
MGreiðslur skaðabóta… »6
Seinkanir í flugi
» Ef seinkun er meiri en þrjár
klukkustundir er hægt að
sækja um 400 evrur í bætur.
» Mikil aukning varð á kvört-
unum sem bárust til Sam-
göngustofu frá flugfarþegum í
fyrra, en þær fóru úr 424 árið
2016 í 1.121 árið 2017.
Óánægðir sjálfstæðismenn í Vest-
mannaeyjum ræða um að bjóða fram
sérlista við komandi bæjarstjórnar-
kosningar. Ástæðan er óánægja með
að ekki skuli hafa verið ákveðið að
efna til prófkjörs við val á lista
flokksins.
Elís Jónsson, einn af þeim sem
ræða framboð, telur yfirgnæfandi
líkur á að af því verði. Ákvörðun hafi
þó ekki verið tekin.
Elís er tilbúinn að taka að sér for-
ystu nýs framboðs. Einnig hefur
verið rætt um framboð við Írisi Ró-
bertsdóttur, fulltrúa í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi
varaþingmann í Suðurkjördæmi, en
hún vill ekki svara því af eða á hvort
það komi til greina.
Tillaga um prófkjör var felld með
28 atkvæðum gegn 26 á fundi full-
trúaráðsins í síðasta mánuði. Raðað
verður á lista Sjálfstæðisflokksins
síðar í mánuðinum.
Forystu Sjálfstæðisflokksins hef-
ur verið sagt frá deilunum, sam-
kvæmt heimildum blaðsins. Ein-
hverjir sem utan við þær standa
hafa rætt hvort hægt væri að leysa
málið með því að fá hreinni línur í
vilja fólks um aðferð við val á fram-
boðslistann. »4
Ræða nýtt
framboð
í Eyjum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vestmannaeyjar Sjálfstæðismenn
hafa lengi verið með meirihluta.
Klofningur meðal
sjálfstæðismanna
Talsverðar verðsveiflur einkenndu fjármálamarkaði austan hafs og vestan
í gær og skapaði það taugatitring á mörkuðunum. Þessir verðbréfasalar í
Kauphöllinni í New York höfðu nóg fyrir stafni. Sérfræðingar eru ekki á
einu máli um ástæðurnar en margir telja að um eðlilega framvindu sé að
ræða eftir stöðugar hækkanir um margra mánaða skeið. Þá spili vænt-
ingar um vaxtahækkanir í Bandaríkjunum inn í. »16
Taugatitringur á fjármálamörkuðum
AFP
Ráðgert er að hafrannsókna-
skipið Árni Friðriksson haldi til
loðnumælinga norðvestur af land-
inu um leið og veður leyfir. Mark-
miðið er að kanna hvort bæst hafi í
loðnugöngur á þessum slóðum frá
mælingum í lok janúar. Að sögn
Þorsteins Sigurðssonar, sviðsstjóra
á Hafrannsóknastofnun, hefur hluti
hrygningargöngunnar komið seint
inn á landgrunnskantinn norð-
vestur af landinu síðustu ár. »10
Frekari mælingar
á loðnustofninum
Forsvarsmenn Kaupskila, sem
eiga 57% hlut í Arion banka,
reyna nú til þrautar að fá sem
flesta lífeyrissjóði að eignarhaldi
bankans í aðdraganda þess að
hann verður skráður á markað. Í
því skyni hefur stjórn Arion banka
lagt fram tillögu um 25 milljarða
arðgreiðslu út úr bankanum sem
renna mun í hlutfalli til nýrra eig-
enda hans, gangi kaup sjóðanna
eftir.
Þrátt fyrir þetta hefur reynst
minni áhugi meðal sjóðanna á að-
komu að bankanum en búist var
við. Nokkrir af stærstu lífeyris-
sjóðum landsins hafa lítinn áhuga
á að kaupa hlut í bankanum í að-
draganda skrán-
ingarinnar þótt
þeir útiloki ekki
kaup í honum af
því tilefni.
Í tilboði sem
Kaupskil sendu
lífeyrissjóðunum í
janúar var miðað
við að sjóðirnir
keyptu að lág-
marki 5% hlut. Í
tillögu að hinni
skilyrtu arðgreiðslu sem nú er
stefnt að er aðeins gerður áskiln-
aður um að Kaupskil losi um 2%
hlut í bankanum fyrir 15. apríl
næstkomandi. »16
Áhugi lífeyrissjóða á aðkomu að Arion
banka hefur reynst minni en vænst var
Arion Bankinn er
í söluferli.
Sala á sígarettum dróst umtals-
vert saman hér á landi á síðasta ári.
Samdrátturinn var nærri tíu pró-
sent því árið 2016 seldist ríflega ein
milljón kartona af sígarettum hér
en árið 2017 seldust rétt ríflega 900
þúsund karton. Á sama tíma hefur
landsmönnum fjölgað og ferða-
menn eru á hverju strái.
Hins vegar fjölgaði þeim sem
nota rafsígarettur daglega úr 3%
árið 2016 í 4% árið 2017. Alls nota
8% landsmanna rafsígarettur, eða
veip, að einhverju marki samkvæmt
tölum frá Embætti landlæknis.
Tíu ár eru nú liðin frá því að
reykingabann var sett á veitinga-
og skemmtistöðum. Tíðni daglegra
Tíu prósenta samdráttur í sölu á sígarettum
milli ára en æ fleiri reykja rafsígarettur
Morgunblaðið/Ásdís
Reykingar Minna selst af sígarettum en
áður, en fleiri eru farnir að veipa.
reykinga fullorðinna hefur dregist
saman um helming á þessum tíu ár-
um, var í kringum 20% en mælist í
dag rúmlega 10%. »18