Morgunblaðið - 07.02.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 07.02.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Al- þingis ákvað í gær að gera hlé á rann- sókn nefndarinnar á embættisfærslu Sigríðar Á. Andersen dómsmála- ráðherra við skipun dómara við Landsrétt. Að sögn Helgu Völu Helgadóttur, formanns nefndarinnar og þingmanns Samfylkingarinnar, er hlé gert á meðan málið er til skoð- unar hjá umboðsmanni Alþingis. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd mun síðan meta stöðuna þegar niður- staða umboðsmanns liggur fyrir og ákveða hvert framhald málsins hjá nefndinni verður. Ekki hefur komið fram að umboðs- maður Alþingis hefji frumkvæðis- rannsókn á þessu máli. Hann óskaði eftir upplýsingum frá ráðherra til að undirbúa sig fyrir fund sem hann var boðaður til hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í janúar. Þá vissi hann ekki hvert yrði viðfangsefni fundarins eða til hvers væri ætlast af honum. Tryggvi Gunnarsson umboðsmaður sagði þá í samtali við mbl.is að sú starfsregla gilti að umboðsmaður fjallaði ekki um sömu atriði og Al- þingi sjálft væri að athuga. Því myndi hann ekki huga frekar að málinu nema þá eftir að nefndin hefði af- markað verkefnið. Hlé á rann- sókn dóm- aramáls  Beðið viðbragða umboðsmanns Mokstur Ekkert lát virðist vera á snjókomu á landinu og þurfa landsmenn því enn að hafa skóflurnar við höndina til þess að greiða leiðina að heim- ilum sínum. Talsverð snjókoma hefur verið undanfarna daga og hafa ef- laust margir þurft að grípa til skóflunnar líkt og þessi vaski maður. Leiðin greidd í gegnum snjó síðustu daga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Barnaverndarnefnd Reykjavíkur harmar mjög að starfsmaður á veg- um nefndarinnar hafi beitt börn kyn- ferðislegu ofbeldi. Í yfirlýsingu legg- ur nefndin ríka áherslu á að allir fletir þessa máls verði kannaðir rækilega í samvinnu við innri endur- skoðun borgarinnar. Framkvæmt verður sérstakt áhættumat á allri starfsemi Barnaverndar Reykja- víkur og allir verkferlar varðandi ábendingar og tilkynningar til henn- ar endurskoðaðir með það að mark- miði að koma í veg fyrir að mistök eins og þessi endurtaki sig. Fram kemur að á vegum Reykja- víkurborgar verði kannað sérstak- lega hvers vegna ekki var brugðist við tilkynningu sem barst til borgar- innar með símtali árið 2008. Ekki hafi fengist staðfesting frá þeim sem kunni að hafa sent inn hliðstæða til- kynningu árið 2002. Áhættumat á starf- semi Barnaverndar  Harma mjög ofbeldi starfsmanns Morgunblaðið/Eggert Ofbeldi Unnið er að úrbótum hjá Barnavernd Reykjavíkur. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkti samhljóða á fundi sínum í gær að vísa tillögu borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins um að hefja undir- búning að gerð neðanjarðarstokks á Miklubraut til borgarráðs. Borgar- stjóra er þar falið að leita þegar í stað eftir samstarfi við ríkið og verði með- al annars skoðað hvort hagkvæmt sé að vinna verkið í einkaframkvæmd. „Mér finnst þessi tillöguflutningur til marks um það að þeir vilji vera með í þessu máli. Það er jákvætt að eindrægni og samstaða sé um það. Stokkurinn er í aðalskipulaginu og það hefur verið unnið að útfærslu hans, meðal annars í samráði við íbúa í Hlíðum, í tengslum við gerð hverfa- skipulags. Að það sé samstaða í borg- inni ætti að styrkja málið og auðvelda næstu skref,“ segir Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri. Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem flutti tillöguna, segir að sjálfstæðis- menn fagni því að borgarstjóri hafi tekið vel í tillöguna og samþykkt að vísa henni til borgarráðs, í trausti þess að meirihlutanum sé alvara að vinna í málinu. Meirihlutinn að kúvenda? Kjartan segir að borgarstjóri og flokkarnir í meirihlutanum hafi tafið þetta mál í mörg ár. Dregið hafi verið úr vægi stokks við síðustu breytingar á aðalskipulagi og á árinu 2012 hafi núverandi borgarstjóri staðið fyrir því að gerður var sérstakur samning- ur Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu við ríkið um að fresta ýmsum stór- framkvæmdum í þágu samgöngu- mála í Reykjavík um óákveðinn tíma. Þar hafi umrædd stokkalausn á Miklubraut verið látin fjúka. „Svo virðist sem borgarfulltrúar meirihlutans ætli nú að kúvenda í af- stöðu sinni til slíkra samgöngubóta á Miklubraut og er það ánægjulegt í sjálfu sér. Vonandi er að hugur fylgi máli en að ekki sé um að ræða ein- hvers konar bragð í aðdraganda kosninga,“ segir Kjartan. Dagur segir að það sé misskilning- ur að framkvæmdum við Miklu- brautarstokk hafi verið frestað með samningunum árið 2012. Fram- kvæmdir sem getið er um á minn- isblaði með samningunum hafi aldrei verið á samgönguáætlun. „Núna þeg- ar útfærslan er komin, þá er grund- völlur kominn til að sækja þetta mál í viðræðum við ríkið og koma því til framkvæmda.“ Hann neitar því að áform um Miklubrautarstokk séu til marks um stefnubreytingu Samfylkingarinnar í uppbyggingu umferðarmannvirkja. Mislæg gatnamót flytji bara vandann á milli gatnamóta. Stokklausn veiti hins vegar gegnumstreymisumferð undir og gefi kost á rólegri umferð á yfirborði. Hafist verði handa við stokk  Allir borgarfulltrúar stóðu að því að vísa tillögu um að hefja nú þegar undirbúning að stokk á Miklubraut til borgarráðs  Flutningsmaður vonar að jákvæðni meirihlutans sé ekki kosningabragð Kjartan Magnússon Dagur B. Eggertsson Ólöf Ragnarsdóttir olofr@mbl.is Til stóð að flytja Sunnu Elviru Þor- kelsdóttur, sem lamaðist eftir fall í Malaga á Spáni fyrir rúmum tveim- ur vikum, á bæklunarspítala í To- ledo í gær en ekki varð af því sökum þess að spítalinn segist ekki hafa pláss fyrir hana. Þetta segir Jón Kristinn Snæhólm, talsmaður Sunnu, í samtali við Morgunblaðið. Einum og hálfum tíma áður en flytja átti Sunnu var þeim tjáð að ekki væri hægt að taka við henni í Toledo. „Það var verið að búa hana undir flutning og bíllinn klár og all- ur pakkinn og þá segjast þeir ekki hafa pláss fyrir hana,“ segir Jón Kristinn. Hann segir alla steinhissa á þessum fréttum og erfitt sé að skilja að ekkert sjúkrahús á Spáni geti tekið við lamaðri konu. Þá segir hann batahorfur Sunnu undir því komnar að hún fái viðunandi með- ferð. Jón Kristinn segist sjálfur hafa verið viðstaddur þegar læknar á sjúkrahúsinu í Malaga lýstu því yfir að ekki væri mögulegt að veita Sunnu viðeigandi meðferð þar og báðu um að fundið yrði pláss fyrir hana þar sem hún fengi þá með- höndlun sem hún þarfnast. Kemst ekki heim til Íslands Vegabréf Sunnu var tekið af henni í kjölfar handtöku eiginmanns hennar í tengslum við fíkniefna- smygl og er hún í farbanni að ósk lögregluyfirvalda á Spáni. „Núna er bara boltinn hjá spænskum stjórn- völdum og utanríkisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið hljóta núna að grípa harkalega í taumana,“ segir Jón Kristinn að lokum. Sunna enn föst í Malaga  Ekki varð af flutningnum sökum plássleysis  Fær enn ekki viðeigandi meðhöndlun  Batahorfur hennar í húfi Föst Sunna Elvira hefur enn ekki fengið nauðsynlega læknishjálp.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.