Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 11

Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Smáforrit sem notuð eru í þeim til- gangi að blekkja fólk með fölskum símtölum eru að hrella fólk þessa dagana. Dæmi er um mann sem fékk símtal úr númeri bróður síns. Erlend rödd á hinum endanum kvaðst hafa fundið símann og krafð- ist fundarlauna fyrir að skila honum. En síminn var hvorki týnd- ur né hafði lent í höndum óprútt- inna aðila. Vill kaupa hundinn þinn Að sögn lögreglu er um að ræða hrekkjaforrit sem hægt er að ná sér í á netinu. „Við höfum heyrt um nokkur dæmi, t.d. um erlenda rödd sem segir þig hafa ekið utan í bílinn sinn og rödd sem óskar eftir að fá að kaupa hundinn þinn,“ segir Gísli Jökull Gíslason rannsóknarlög- reglumaður, segir að ekki sé hægt að gera mikið í þessu, en mælir með að fólk sé á varðbergi, hrekkirnir séu afar hvimleiðir fyrir þá sem fyr- ir þeim verði. Skv. netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar (CERT) eru þessi forrit t.d. Fake Caller ID, Fake Call, Prank Dial. Bluff My Caller ID, Funcall. Allmörg séu í boði á Google Play og App Store. „Við höfum þó engar heimildir um hvort einhver af ofangreindum for- ritum hafa verið notuð í tilvikum hérlendis,“ segir Kristján Valur Jónsson hjá CERT. „Dæmi eru um að slík forrit hafi reynt að fá fólk til að gefa upp banka- og kortaupplýsingar og vill stofnunin vara fólk sérstaklega við að gefa slíkar upplýsingar sé hringt og beðið um þær að fyrra bragði,“ segir Þorleifur Jónasson hjá Póst- og fjarskiptastofnun, sem vill einnig meina að það sé ólöglegt að villa á sér heimildir á þennan hátt en erfitt geti verið að finna sökudólgana. Smáforrit notuð í blekkingarleik  Hrekkir úr þekktum símanúmerum Auðfundin Mörg hrekkjaforrit fundust undireins í App Store. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt að heim- ila umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við frágang frjálsíþróttavallar og byggingu þjón- ustuhúss á svæði ÍR í Suður-Mjódd. Áætlaður kostnaður er 400 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að fram- kvæmdir geti hafist í næsta mánuði. Ljúka á frágangi frjálsíþróttavallar- ins sumarið 2018 og áætlað er að þjónustuhúsið verði fullgert vorið 2019. Fram kemur í minnisblaði Ámunda Brynjólfssonar, skrif- stofustjóra framkvæmda og viðhalds hjá borginni, að þessar fram- kvæmdir séu í samræmi við samning Reykjavíkurborgar og Íþróttafélags Reykjavíkur sem samþykktur var í borgarráði í janúar 2017. Jarðvinnu á svæðinu lokið Jarðvinnu á ÍR-svæðinu er lokið, en kostnaður við hana var 180 millj- ónir króna. Heildarkostnaður við völlinn og þjónustuhús er því áætl- aður 580 milljónir króna. Á hinum nýja velli verður hægt að iðka allar greinar frjálsra íþrótta. Lögleg hlaupabraut, 400 metra löng, mun umlykja völlinn. Í miðju svæðisins verða m.a. lendingarsvæði kastgreina og utan hlaupabrauta verða svæði fyrir stökkgreinar. Völlurinn mun uppfylla alþjóðlegar kröfur sem gerðar eru til keppnis- valla. Aðkoma að vallarsvæðinu verður frá félagsheimili ÍR. Í þjónustuhúsinu verður aðstaða til mótahalds s.s. tímatöku – og mótsstjórn. Einnig verður þar veit- ingasala, snyrtingar, aðstaða fyrir notendur vallarins og geymslur. Byggingin verður tvær hæðir og að hluta grafin inn í landið. Þak hússins á að nýtast fyrir áhorfendur á mót- um. Heildarflatarmál hússins er 442,8 fermetrar. Í fyrrnefndum samningi borgar- innar og ÍR er gert ráð fyrir frekari framkvæmdum af hálfu borgar- innar. Þar á m.a. að reisa knatthús sem og íþrótta- og keppnishús með lög- legum völlum fyrir körfubolta og handknattleik. Aðstaða í félagsheim- ilinu verður bætt og búningsaðstaða endurbætt. Loks var í samkomulaginu gert ráð fyrir að hefja undirbúning að byggingu fimleikahúss. Uppbygging þess á að hefjast í framhaldi af byggingu knatthússins og íþrótta- hússins. Nýr frjálsíþróttavöllur ÍR í Mjódd boðinn út  Heildarkostnaður við völl og þjónustuhús 580 milljónir Nýi völlurinn Þarna verður hægt að iðka allar greinar frjálsra íþrótta. ÍR er í dag stórveldi í íþróttagreininni. Þjónustuhúsið Byggingin verður tvær hæðir og að hluta grafin inn í landið. Þar verður aðstaða fyrir mótahald. Þakið á að nýtast fyrir áhorfendur. Morgunblaðið/Eggert Framför Aníta Hinriksdóttir og aðrir ÍR-ingar fá 1. flokks aðstöðu. Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín Bragðgott, ho llt og næringa rríkt Við erum á Facebook Laugavegi 82 | 101 Reykjavík Sími 551 4473 Útsala Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra átti á mánudag fund með António Guterres, aðalframkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuð- stöðvum stofnunarinnar í New York. Á fundinum lýsti utanríkisráðherra stuðningi íslenskra stjórnvalda við áherslur Guterres og mikilvægi þess að stofnunin geti sinnt því hlutverki sem henni er ætlað í að tryggja frið og öryggi og sjálfbæra þróun. Guterres lagði áherslu á að Ísland gæti haft mikil áhrif á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, þar sem oft væri litið til Ís- lands sem sáttasemjara, enda væri það forysturíki á sviði jafnréttis og mannréttinda sem nyti trausts. Hann þakkaði einnig mikilvæg framlög til lykilstofnana. Ráðherra hitti einnig forseta allsherjarþingsins og yfir- mann stjórnmáladeildar. Fundaði með fram- kvæmdastjóra SÞ  Ísland forysturíki á sviði jafnréttis Ljósmynd/utanríkisráðuneytið Funduðu Guðlaugur og Guterres.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.