Morgunblaðið - 07.02.2018, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.02.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is Allt fyrir raftækni Hljómtæki Cambridge Audio YOYO S Bluetooth hátalari - 26.900 kr. 7. febrúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 100.02 100.5 100.26 Sterlingspund 141.17 141.85 141.51 Kanadadalur 80.5 80.98 80.74 Dönsk króna 16.745 16.843 16.794 Norsk króna 12.96 13.036 12.998 Sænsk króna 12.674 12.748 12.711 Svissn. franki 107.52 108.12 107.82 Japanskt jen 0.9102 0.9156 0.9129 SDR 145.55 146.41 145.98 Evra 124.65 125.35 125.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 151.2884 Hrávöruverð Gull 1344.65 ($/únsa) Ál 2201.5 ($/tonn) LME Hráolía 68.15 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Stjórn Arion banka hyggst leggja það fyrir hluthafafund í næstu viku að henni verði veitt heimild til þess að greiða út allt að 25 milljarða króna í formi arðgreiðslu til hluthafa. Tillag- an hangir saman við aðra tillögu þess efnis að bankanum verði heimilt að kaupa allt að 10% hlut í sjálfum sér á gengi sem gæti verið allt að 94,177 krónum á hvern hlut. Verði af slíkum viðskiptum, á því gengi, jafnast það á við að bankinn sé metinn á genginu 0,85 af bókfærðu eiginfé hans. Ef bankinn myndi fullnýta heimild sína í þessa veru gæti kaupverð eiginbréfa numið allt að 18,8 milljörðum króna. Samanlagt geta kaupin á eigin bréfum og arðgreiðslan hins vegar ekki numið hærri fjárhæð en sem nemur 25 milljörðum króna. Þá er einnig áskilið að hin sértæka arðgreiðsla muni ekki eiga sér stað nema Kaupskilum takist að selja að minnsta kosti 2% í bankanum fyrir dagslok 15. apríl næstkomandi. Ljóst er af tillögunni að þeir aðilar sem verða í hlutahafahópnum í kjöl- far þess að fyrrnefnd skilyrt sala á sér stað, munu njóta hlutdeildar í arð- greiðslunni í hlutfalli við eignarhlut sinn. Gulli slegin gulrót Heimildir Morgunblaðsins herma að tvíþætt markmið liggi að baki til- lögunni sem lögð verður fyrir hlut- hafafund á mánudag í næstu viku. Annars vegar sé talið brýnt að koma frekara skikki á fjármagnsskipan bankans sem sé afar vel fjármagn- aður um þessar mundir. Hins vegar sé tillagan til þess gerð að gera kaup lífeyrissjóða í bankanum álitlegri en ella væri. Þannig vinnur Kvika nú að því hörð- um höndum, fyrir hönd Kaupskila sem fara með 57% hlut í Arion banka, að fá lífeyrissjóði til þess að kaupa hlut í bankanum. Er það talið mikilvægt skref á þeirri vegferð að skrá bankann á markað hér heima og erlendis síðar á þessu ári. Í janúar sendi Kvika fyrir hönd Kaupskila tilboð á sjóðina þar sem miðað var við að sjóðirnir keyptu, samanlagt að minnsta kosti 5% hlut í bankanum og að gengið í viðskiptun- um væri um 0,8 af bókfærðu eigin fé bankans, eins og það stóð í lok þriðja ársfjórðungs í fyrra. Gætu fengið 14% strax til baka Nái Kvika að selja lífeyrissjóðum 5% hlut í Arion banka má gera ráð fyrir því að söluandvirðið verði um 8,9 milljarðar króna. Sú fjárhæð myndi hækka í hlutfalli við stærri eignar- hlut, yrði raunin sú að sjóðirnir vildu tryggja sér stærri hlut í bankanum. Yrði af hreinni arðgreiðslu úr bankanum að fjárhæð 25 milljarðar króna má gera ráð fyrir því að 1,25 milljarðar rynnu til hinna nýju eig- enda. Það þýddi að þeir fengju í einni svipan 14% kaupverðsins til baka í formi reiðufjár, skömmu eftir kaupin. Fremur áhugalausir að sinni Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eiga Kaupskil í viðræðum við nokkra sjóði um möguleg kaup þeirra í bankanum. Hins vegar hafa stærstu sjóðir landsins lítið sýnt á spilin. Áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins herma hins vegar að lífeyrissjóðurinn Gildi hafi hafnað fyrirliggjandi tilboði sem sjóðnum barst í lok janúar. Þá herma heim- ildir að margir sjóðanna líti svo á að á meðan bréf í bankanum séu ekki skráð á markað sé rétt að flýta sér hægt. Réttara kunni að vera fyrir sjóðina að bíða átekta og sjá hvort af skráningu hans á markað verður. Þá komi hins vegar vel til greina að stíga inn í hóp eigenda, þótt það kunni að gerast á hærra verði en bjóðist í dag. Arðgreiðsla fylgi með í kaupunum  Kaupskil flagga arðgreiðslutillögu í viðræðum við lífeyrissjóði í þeirri viðleitni að fá þá að Arion banka  Mismikill áhugi meðal sjóðanna á kaupum í bankanum áður en að skráningu hans kemur á markað Miklar sveiflur voru á hlutabréfa- mörkuðum víða um heim í gær. Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Asíu lækkuðu nokkuð og við opnun mark- aða lækkuðu vísitölur í Bandaríkjun- um. En lækkunin gekk svo til baka eftir því sem leið á daginn og gott betur. Hækkaði Dow Jones-vísitalan um 2,3% þegar upp var staðið í gær og S&P 500-vísitalan um 1,7%. Evrópska vísitalan Euronext 100 lækkaði um 2,5% í gær, japanska vísitalan Nikkei 225 um 4,7% og Hang Seng-vísitalan í Hong Kong lækkaði um 5%. Þá lækkaði Úrvals- vísitalan á Íslandi um 1%. Óttast hærri vexti Hlutabréfamarkaðir víða um heim tóku að lækka þegar nýjar launatöl- ur í Bandaríkjunum birtust á föstu- dag. Meiri hækkun en búist var við olli ótta hjá fjárfestum um auknar líkur á meiri verðbólgu og að banda- ríski seðlabankinn myndi bregðast við því með hækkun stýrivaxta hrað- ar en áður var talið. Á mánudaginn héldu bandarísk hlutabréf áfram að lækka og hafa þau ekki fallið meira á einum degi í sex ár. Olli það því að gengishagn- aður ársins þurrkaðist út. S&P 500 lækkaði um 4,1% þann dag og Nas- daq um 3,8%. Á sama tíma jókst virði skuldabréfa og hafa þau ekki verið hærri í fjögur ár. Léttvægt í samhengi hlutanna Ray Dalio, stofnandi vogunar- sjóðsins Bridgewater Associates, sagði við það tækifæri að um væri að ræða smávegis leiðréttingu sem væri léttvæg í hinu stóra samhengi hlut- anna. Nóg væri af fjármagni á hlið- arlínunni sem gæti gripið inn í. Það sem gerðist næst skipti sköpum. Víða í Evrópu hafa ríkisskuldabréf borið neikvæða vexti en þeim fer þó fækkandi, enda verður slíkt ekki tal- ið eðlilegt ástand. Fjárfestar hafa notið þess í lengri tíma að fjár- magnskostnaður hefur verið lágur, verðbólga lítil og verðbréfamarkaðir hafa lítið sveiflast, eins og þeirra er þó von og vísa. Á síðasta ári gerðist það í fyrsta skipti í sögu S&P-vísitöl- unnar að hún lækkaði ekki um meira en 3% að minnsta kosti einn dag yfir árið. Slegin hafa verið met á hluta- bréfamörkuðum frá því að Donald Trump var kjörinn forseti Banda- ríkjanna vegna væntinga um skatta- lækkanir sem myndu koma atvinnu- lífinu vel. Fram kemur í fréttaskeyti AFP- fréttastofunnar að undirliggjandi hagtölur fyrir hagkerfi heimsins bendi til að lækkun hlutabréfa sé ekki komin til að vera. helgivifill@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Markaðir Sveiflur voru miklar í hlutabréfaverði vestanhafs í gær. Miklar sveiflur á mörkuðum  Bandarísk hlutabréf hækkuðu á ný ● Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar, hefur ver- ið ráðin til Bláa lónsins og hefur störf 1. júní næst- komandi. Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að Helga muni verða framkvæmdastjóri Blue Lagoon Journeys ehf., dótturfélags Bláa lónsins sem vinnur að þróunarverk- efnum félagsins á sviði ferðaþjónustu. Einnig segir að ráðningin styðji auknar áherslur Bláa lónsins á þeim vettvangi. „Umhverfi ferðaþjónustunnar er nú að taka byltingarkenndum breytingum, ekki síst vegna stafrænnar þróunar og það er afar ánægjulegt að hafa fengið Helgu til liðs við Bláa lónið til að leiða mjög áhugaverð verkefni á þeim vettvangi,“ segir Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, í tilkynningunni. tobj@mbl.is Helga Árnadóttir ráðin til Bláa lónsins Helga Árnadóttir Sú skilyrta arðgreiðsla sem stjórn Arion banka hefur ákveðið að leggja fyrir hluthafafund í næstu viku mun, gangi fyrirætlanir stjórnarinnar eftir, færa ríkissjóði milljarða króna í formi greiðslu inn á skuldabréf sem er í eigu þess. Skuldabréfið sem um ræðir var gefið út af Kaupþingi í tengslum við hin svokölluðu stöðugleikaskil- yrði. Þau skilyrði voru lögð fram og samþykkt af hálfu kröfuhafa föllnu viðskiptabankanna þriggja þegar ríkissjóður greiddi götu þeirra að samþykkt nauðasamn- inga á árinu 2015. Hluti þeirra skilyrða sem sneru að Kaupþingi var fyrrnefnt skulda- bréf sem var liður í svokölluðu fjársópsákvæði. Það felur í sér að Kaupþingi ber að greiða skulda- bréfið upp á þremur árum með fjármunum sem falla til vegna arð- greiðslna út úr Arion banka eða söluandvirðis á hlutum í bank- anum. Þannig leiðir ákvæðið til þess að hlutdeild Kaupskila/Kaupþings í arðgreiðslunni sem nú er fyrir- huguð mun renna sem innborgun á skuldabréfið. Með sama hætti mun kaupvirði þess hlutar sem bankinn er reiðubúinn að ráðast í á eigin bréfum renna inn á skulda- bréfið ef seljandi hlutarins verður Kaupskil. Þannig má gera ráð fyrir að ef lífeyrissjóðir kaupa 5% í bank- anum af Kaupskilum og arð- greiðslan verður 25 milljarðar, þá muni 13 milljarðar renna inn á skuldabréfið. Sem stendur eiga Kaupskil enn eftir að greiða 35 milljarða inn á fyrrnefnt skuldabréf en það ber 5,5% vexti samkvæmt stöðug- leikasamkomulaginu sem gert var um mitt ár 2015. Arðgreiðsla og sala munu færa ríkinu milljarða króna RÍKISSJÓÐUR FÆR MIKLA FJÁRMUNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.