Morgunblaðið - 07.02.2018, Síða 17

Morgunblaðið - 07.02.2018, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Pappelina gólfmotta, 70 x 90 cm Verð 11.900 kr. laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Forseti hæstaréttar Maldíveyja var handtekinn í gær ásamt öðrum dóm- ara eftir að forseti landsins, Abdulla Yameen, lýsti yfir neyðarástandi og fyrirskipaði hernum að ráðast inn í dómhús réttarins. Áður hafði forsetinn neitað að verða við fyrirmælum dómstólsins um að láta pólitíska andófsmenn lausa úr fangelsi og veita tólf þing- mönnum sæti á þinginu að nýju. Yameen hafði svipt þá þingsætunum eftir að þeir sögðu sig úr flokki hans. Fái þeir sætin aftur verða andstæð- ingar forsetans með þingmeirihluta og það gæti orðið til þess að þingið samþykkti málshöfðun á hendur honum til embættismissis. Andstæð- ingar forsetans hafa sótt í sig veðrið að undanförnu og krafist þess að hann verði sviptur embættinu fyrir spillingu. Yameen lýsti yfir neyðarástandi í fimmtán daga, fyrirskipaði að starf- semi þingsins yrði stöðvuð og herinn fékk fyrirmæli um að koma í veg fyr- ir að forsetanum yrði vikið frá. Yameen sagði í sjónvarpsávarpi að dómarar hæstaréttar hefðu tekið þátt í samsæri um valdarán. „Ég varð að lýsa yfir neyðarástandi vegna þess að það var engin önnur leið til að rannsaka þessa dómara,“ sagði hann. Nær allir keppinautarnir í fangelsi Yameen varð forseti Maldíveyja árið 2013 og hefur sætt vaxandi gagnrýni fyrir að hefta málfrelsi og skerða sjálfstæði dómstóla. Hann hefur reynt að kveða niður pólitískt andóf með harkalegum hætti og nú er svo komið að nær allir pólitískir keppinautar hans og helstu stuðn- ingsmenn þeirra eru í fangelsi. Hæstiréttur eyjanna hafði meðal annars ógilt fangelsisdóm yfir stjórnarandstöðuleiðtoganum Mohamed Nasheed, sem er nú í út- legð, og gert honum kleift að snúa aftur heim til að bjóða sig fram til forseta í kosningum sem eiga að fara fram á næsta ári. Nasheed varð fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Maldíveyja árið 2008 en beið ósigur fyrir Yameen í umdeildum kosn- ingum 2013. Eftir að Yameen lýsti yfir neyðar- ástandi handtók lögreglan annan fyrrverandi forseta, Maumoon Abdul Gayoom, sem gegndi embætt- inu í 30 ár. Gayoom er áttræður og hefur hallast á sveif með stjórnar- andstöðunni í deilunum við Yameen. Yfirmaður hers Maldíveyja hefur lýst yfir stuðningi við forsetann og sagt að hann myndi ekki hlíta „ólög- legum fyrirmælum“ hæstaréttar landsins. Stjórnmálaskýrendur telja þó að handtaka Gayooms geti leitt til klofnings í hernum og lögreglunni því að hann njóti enn mikillar virð- ingar þar. Ferðamenn varaðir við Yameen hefur lagt áherslu á aukið samstarf við stjórnvöld í Kína og Sádi-Arabíu og bæði ríkin hafa ráð- ist í miklar fjárfestingar á Maldív- eyjum, að sögn fréttaveitunnar AFP. Nokkur ríki, þ. á m. Bandaríkin, Bretland, Indland og Kína, hafa var- að fólk við því að ferðast til Maldív- eyja vegna hættunnar á átökum. Ferðaþjónustan er helsta atvinnu- grein eyjanna, sem hefur oft verið lýst sem paradís ferðamanna. Það gæti því haft alvarlegar afleiðingar fyrir efnahags landsins ef stjórn- málakreppan verður til þess að paradísarsælunni lýkur nú þegar aðalferðamannatíminn er hafinn. Hernum beitt gegn hæstarétti  Forseti Maldíveyja reynir að afstýra því að hann verði sviptur embætti Abdulla Yameen forseti neitar að verða við fyrirmælum hæstaréttar landsins um að leysa andófsmenn úr haldi 6. febrúar5. febrúar4. febrúar3. febrúar1. febrúar 2. febrúar Forseti hæstaréttarins, Abdulla Saeed, handtekinn vegna deilunnar Yameen lýsir yfir 15 daga neyðar- ástandi Hæstiréttur landsins fyrirskipar forsetanum að fara að fyrirmælunum um andófs- mennina og þingmennina Yfirvöldin tilkynna að þingfundum hafi verið frestað af „öryggis- ástæðum“ Forsetinn vék nýjum ríkislögreglu- stjóra frá Íbúafjöldi: 417.500 (Stærð eyjanna er ekki í réttu hlutfalli) Fyrrverandi forseti, Mohamed Nasheed, sem er í útlegð, segist ætla að bjóða sig fram til forseta Forsetinn vék ríkislögreglu- stjóranum frá Abdulla Yameen hefur verið forseti eyjanna frá 2013 og staðið fyrir hörðum aðgerðum gegn andstæðingum sínum Maumoon Abdul Gayoom var forseti í 30 ár til 2008, hefur snúist á sveif með stjórnar- andstöðunni og lagst gegn Yameen Hæstiréttur landsins skipar forsetanum að: Lögreglan handtekur fyrrverandi forseta, Maumoon Abdul Gayoom Hermenn ráðast inn í dómhús hæstaréttar landsins Harka færist í stjórnmálakreppuna á Maldíveyjum 500 km INDLANDSHAF MALDÍVEYJAR Mohamed Nasheed, leiðtogi stjórnar- andstöðunnar og fyrrverandi forseti (2008 til 2012) var dæmdur í 13 ára fangelsi árið 2015. Hann er í útlegð og fékk hæli í Bretlandi Leysa níu andófsmenn úr haldi Veita 12 þingmönnum sæti á þinginu að nýju. Yameen hafði vikið þeim af þingi eftir að þeir sögðu sig úr flokki hans Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur samþykkt einróma að birta nýtt minnisblað demókrata þar sem vísað er á bug ásökunum repúblikana í nefndinni um að alríkislögreglan FBI og dóms- málaráðuneytið hafi misbeitt valdi sínu í pólitískum tilgangi. Donald Trump Bandaríkjaforseti getur hindrað birtingu minnisblaðsins og hefur fimm daga til að ákveða hvort hann geri það. Demókratar í leyniþjónustunefnd- inni skrifuðu tíu síðna minnisblað til að svara fjögurra síðna minnisblaði sem formaður nefndarinnar, repú- blikaninn Devin Nunes, skrifaði ásamt samstarfsmönnum sínum. Nunes, sem er bandamaður Trumps, sakar þar embættismenn FBI og dómsmálaráðuneytisins um að hafa misbeitt valdi sínu þegar þeir óskuðu eftir heimild sérstaks dómstóls til að njósna um Carter Page, sem var um tíma ráðgjafi Trumps í utanríkismál- um í kosningabaráttunni árið 2016. Trump heimilaði birtingu minnis- blaðsins frá Nunes, þótt FBI og dómsmálaráðuneytið hefðu lagst gegn því. Alríkislögreglan kvaðst hafa miklar áhyggjur af því að í skjalinu væri sleppt „mikilvægum staðreyndum sem hafa áhrif á ná- kvæmni minnisblaðsins í grund- vallaratriðum“. Í minnisblaði Nunes eru yfirmenn FBI og embættismenn ráðuneytis- ins sakaðir um að hafa ekki veitt dómurum, sem heimiluðu njósnirnar um Page, nægar upplýsingar um gögnin sem beiðnin um heimildina var reist á. Hún byggðist að minnsta kosti að hluta á upplýsingum frá fyrrverandi breskum leyniþjónustu- manni, Christopher Steele. Margir hafa dregið þessar upplýsingar í efa og skýrt hefur verið frá því að Steele fékk greiðslur frá tveimur fyrirtækj- um sem demókratar höfðu fengið til að afla gagna sem gætu skaðað Trump í kosningabaráttunni. Nunes segir að með því að upplýsa ekki dómstólinn um þessi tengsl Steele við demókrata og andstöðu hans við Trump hafi embættismenn FBI og dómsmálaráðuneytisins leynt póli- tískum ástæðum beiðninnar. Í minnisblaðinu segir m.a. að Steele hafi sagt hátt settum embættis- manni í ráðuneytinu að hann hygðist láta einskis ófreistað til að koma í veg fyrir að Trump yrði forseti. The Wall Street Journal segir hins vegar að embættismenn FBI og ráðuneytisins hafi sagt dómurum frá því að rannsóknin á Page tengdist mönnum eða hópum sem hefðu pólit- ískra hagsmuna að gæta eða tengd- ust stjórnmálum. Heimildin endurnýjuð þrisvar The Wall Street Journal segir að bandarískir leyniþjónustumenn hafi fylgst með Page frá árinu 2013 þegar rússneskir njósnarar hefðu reynt að fá hann í þjónustu sína. Blaðið bend- ir á að FBI óskaði eftir heimildinni til að njósna um Page í október 2016, rúmum mánuði eftir að hann lét af störfum sem ráðgjafi Trumps eftir að fjölmiðlar sögðu frá meintum tengslum hans við Rússa. Í minnis- blaði Nunes kemur einnig fram að dómstóllinn endurnýjaði njósna- heimildina þrisvar næstu mánuðina og það bendir til þess að fleiri en einn dómari hafi komið að málinu og talið að njósnirnar hefðu borið árangur. Page hefur þó ekki verið ákærður fyrir lögbrot. Trump hefur sagt á Twitter að minnisblað Nunes afsanni ásakan- irnar um að aðstoðarmenn hans hafi tengst stjórnvöldum í Rússlandi. Nokkrir repúblikanar hafa dregið þá fullyrðingu í efa, þ.á m. fulltrúa- deildarþingmaðurinn Trey Gowdy, sem sagði að rannsóknin á Rúss- landsmálinu héldi áfram „án skjal- anna frá Steele“. Hann kvaðst bera mikið traust til FBI og dómsmála- ráðuneytisins. Ásökunum Devins Nunes vísað á bug  Njósnarar Rússa reyndu að fá Page í þjónustu sína 2013 Óttast að Trump ljúgi » Lögfræðingar Trumps for- seta hafa hvatt hann til að neita að svara spurningum Ro- berts Muellers, sérstaks sak- sóknara, sem rannsakar meint tengsl aðstoðarmanna Trumps við stjórnvöld í Rússlandi. » Blaðið hefur eftir fjórum heimildarmönnum að lögfræð- ingarnir hafi meðal annars áhyggjur af því að forsetinn veiti rangar upplýsingar og verði ákærður fyrir að ljúga að rannsóknarmönnum. Kötturinn James, með bindi og flibba, geispar við glugga sendiráðs Ekva- dors í Lundúnum þar sem Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, hefur dvalið til að komast hjá því að verða handtekinn og framseldur. AFP Fínn sendiráðsköttur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.