Morgunblaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 kenna manni stafina og að lesa og læra kvæði og bara allt. Ég hef ekki alltaf kunnað að meta það, hvað þá að ég hafi verið spennt fyrir að hlusta á spólurnar sem þú tókst upp af mér að blaðra, en sannarlega hef ég kunnað að meta það í seinni tíð. Allt sem þú gerðir fyrir okkur og hvað þú varst stolt af okkur öllum. Við áttum það til að rífast en það entist aldrei lengi enda vorum við of vanar að tala saman til að við gætum bara hætt því al- veg, strengurinn togaði alltaf. Ég man hvað þér varð tíðrætt um hvað þú vildir að þú hefðir getað lært meira, tókst stundum nærri þér að hafa ekki meiri skólalærdóm að baki. Nú ætti ég kannski ekki að segja þetta sem kennari en allur sá lærdómur sem lífið gaf þér var ekkert síðri og þeim lærdómi deildirðu óspart með okkur svo við gætum lært af reynslunni. Þú hafðir alltaf svo miklar áhyggjur af því hvað ég væri mik- ill draslari. Ég er ekkert orðin betri í taka til jafnóðum en ég er alltaf að reyna. Í hvert sinn sem draslið safn- ast upp, þvottakarfan er full eða ekki búið að vaska upp heyri ég þig í huganum segja mér að það sé svo miklu auðveldara að gera þetta bara um leið. Þó að við séum líkar að mörgu leyti er þetta víst ekki eitt af því. Ég held þó áfram að reyna enda ómar röddin alltaf í huganum þegar ég veit að ég er ekki að sinna þessu. Þú gast sinnt vinnu og heimili og börnum og öllu í einu, auðvitað ættum við hin að geta það líka. Stundum skil ég samt ekki hvernig þú fórst að því, ég hefði líklega átt að vera duglegri að spyrja. Þó að það sé ótrúlega sárt að kveðja núna þá veitir það hug- arró að hugsa um að afi taki á móti þér á næsta stað. Hann í kjólfötunum, þú í sparifötunum með giftingarhringinn sem við mamma ákváðum að yrði að fara með þér. Það getur nefnilega ekki verið að ást sem var svona heit og innileg eins og ykkar stoppi bara hér, slíkt hlýtur að ná út yfir gröf og dauða. Bless í bili, hafðu þökk fyrir allt og allt Hulda María. Elskuleg amma mín er nú fall- in frá. Það var alltaf svo notalegt að koma í heimsókn til hennar og afa í Frostafoldina og skoða gamlar ljósmyndir og hlusta á ótrúlegar sögur frá uppvaxtarár- um þeirra. Amma Hulda var stoð og stytta Einars afa og það sást langar leiðir hvað þau voru ham- ingjusöm með hvort annað. Amma var með ótrúlegt minni og það kom aldrei fyrir að hún hringdi ekki í mig á afmælisdag- inn minn eða gleymdi hvað eitt- hvert af langömmubörnunum hét. Mér þykir sérstaklega vænt um þegar hún og Brynja komu að heimsækja okkur Braga þegar að dóttir okkar var nýfædd síðast- liðið sumar. Amma var með súr- efniskútinn með sér og göngu- grindina en lét það ekki stoppa sig í að koma að halda á nýjasta langömmubarninu. Takk fyrir allt, elsku amma Hulda, ég veit að nú ertu komin á betri stað og hittir loksins hann Einar þinn aftur. Hvíldu í friði. Þín Ragnheiður Perla Hjaltadóttir. Hulda, konan hans pabba, er dáin. Hún kom inn í líf mitt, þeg- ar ég var tíu ára og hún og pabbi fóru að vera saman. Þau fluttu fljótlega saman til Hólmavíkur og bjuggu þar í nokkur ár og þar var ég hjá þeim um tíma á sumrin, það var góður tími. Hulda var glaðlynd og hress kona; fannst gaman að syngja og dansa og spilaði á gítar. Það var alltaf líf og fjör í kringum hana og allt lék í hönd- unum á henni, henni féll sjaldan verk úr hendi. Hún var alltaf að búa eitthvað til, sauma prjóna, hnýta, smyrna, búa til listaverk úr hári og svona mætti lengi telja, það er ótrúlegt hvað hún afrekaði. Hún saumaði falleg föt á sjálfa sig, börnin sín og barnabörn, meira að segja þjóðbúninga. Fyrstu þrenn jólin hans Trausta míns var hann í fallegum jólafötum, sem hún Hulda saum- aði úr flaueli eða svörtu fallegu efni með gullhnöppum og fíniríi. Ógleymanleg eru jólaböllin, sem voru haldin í Unufellinu fyrir frændsystkin og barnabörn. Hulda vann ýmis störf um ævina og best leið henni að vinna með fólki, hún vann með börnum og fötluðum og veitti gleði inn í líf þeirra sem hún umgekkst. Félag- ið Bergmál naut krafta hennar og þar gladdi hún fólk með söng og gítarspili. Hún var einstaklega minnug á nöfn og afmælisdaga. Eftir að barnabörnum og barnabarna- börnum fór að fjölga, var ótrúlegt hvað hún fylgdist vel með öllum og mundi afmæli og nöfn allra. Hún hringdi eða var í sambandi í tölvunni, þegar sú tækni kom. Gestrisni, ættrækni og góð tengsl voru hennar aðalsmerki. Ein- stakt var að fylgjast með góðu sambandi hennar við systur sínar og alla fjölskylduna, enda hugs- uðu þau einstaklega vel um hana, þegar heilsan fór að bila síðustu árin. Líkaminn var slitinn og þreyttur, en hugurinn kvikur og hress og áhugi fyrir öllu, sem fjöl- skyldan var að gera. Alltaf var gaman að heimsækja hana eða spjalla í síma og fá fréttir af börn- um, barnabörnum, ættingjum og vinum. Ég á Huldu margt að þakka og ekki er víst að eins gott samband hefði haldist við pabba ef hennar hefði ekki notið við, hún mundi afmælisdagana og sá um gjafir og kveðjur til allra. Megi gæfan þig geyma, megi Guð þér færa sigurlag. Megi sól lýsa þína leið, megi ljós þitt skína sérhvern dag. Og bænar bið ég þér, að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. (Bjarni Stefán Konráðsson) Elsku Brynja, Gummi og fjöl- skyldur, þessa bæn sendi ég ykk- ur og er sannfærð um að nú geymir Guð Huldu í hendi sér. Vera Björk Einarsdóttir. Kær vinkona og ömmusystir barnanna minna, hún Hulda Ingi- mundar, hefur kvatt þetta líf eftir harðvítuga baráttu við krabba- mein og hún var sannkölluð hetja í þeirri baráttu, með bjartsýni, gleði og söng að vopni, en það var hennar eiginleiki. Við Halldór heitinn frændi hennar byrjuðum okkar búskap með henni og börnum hennar Gumma og Brynju að Hólmgarði 47 sem Hulda hafði fengið leigt og það leið varla sá dagur að ekki væri fundinn tími til að syngja og Hulda spilaði á gítar og ekki var nú áhuginn minni á handavinnu allskonar. Þar lærði ég nú ýmislegt því Hulda kunni allt eins og ég sagði svo oft. Hulda var af stórri fjöl- skyldu komin og systkinin mjög samrýnd; ættuð af Ströndum. Hún var systir tengdamóður minnar og alltaf mikill samgang- ur milli þeirra og því oftast mikið fjör þegar þau hittust. Og hver annar en Hulda hélt uppi fjörinu á ættarmótum með söng og gítarspili, sem var henn- ar aðalsmerki. Þessi litla og netta kona var al- gjör perla sem ég og börnin mín munum minnast með gleði í hjarta. Hafðu þökk fyrir allt og allt, elsku Hulda. Elsku Gummi, Brynja, syst- kini og aðrir ættingjar, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jóna Þorkelsdóttir og fjölskylda, Grindavík. ✝ Baldur ViðarGuðjónsson fæddist í Reykjavík 3. október 1936. Hann lést 29. jan- úar 2018 á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi. Foreldrar hans voru Guðjón Sím- onarson, f. 20. jan- úar 1911, d. 1. októ- ber 2001, og Soffía Magdal Sigurðardóttir, f. 28. nóvember 1912, d. 11. febrúar 1992. Systkini Baldurs eru Gróa Sigríður, f. 21. ágúst 1934, og er Guðrún Jónsdóttir, f. 15. júlí 1961. Hulda Margrét, f. 30. júlí 1962, eiginmaður Guðmundur Ingi Kristinsson, f. 14. júlí 1955. Baldur Viðar, f. 21. ágúst 1967, eiginkona Guðlaug Rafnsdóttir, f. 22. maí 1966. Barnabörnin eru 10 og langafabörnin 9. Baldur ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur, lengst af á Bræðra- borgarstíg 26 (Móberg). Hann fór til sjós 16 ára gamall á togar- ann Neptúnus. 1957 fór Baldur í Stýrimannaskólann og lauk meira fiskimannaprófi árið 1959. Hann var stýrimaður á togurum og bátum þar til hann kom í land árið 1971. Þá hóf hann störf hjá Álverinu í Straumsvík (Ísal), þar sem hann starfaði í rúm 32 ár. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag, 7. febrúar 2018, klukkan 13. Sigurður, f. 3. októ- ber 1943. Baldur kvæntist Herthu Sylvíu And- ersen, f. á Siglufirði 22. nóvember 1939, hinn 20. des 1958. Foreldrar Herthu voru Georg Ander- sen, f. 20. nóvember 1886, d. 1. febrúar 1970, og Margrét Jónsdóttir And- ersen, f. 19. mars 1910, d. 10. ágúst 1989. Börn þeirra eru Guðjón, f. 12. september 1958, eiginkona hans Baráttu föður míns við erfið veikindi er lokið, pabbi var dugn- aðarforkur, elskaði lífið og gerði alltaf sitt besta með mömmu sér við hlið. Það var honum afar dýrmætt að fá að fylgjast með yngstu meðlimum fjölskyldunnar enda mikill barnakarl og í lokin þegar hann gat ekki lengur leikið við langafabörnin sín vildi hann bara fá að sjá þau eins og hann orðaði það sjálfur. Mér er minnisstætt úr æsku minni þegar við fjölskyldan fór- um sumar eftir sumar til Þing- valla og vorum viku til tíu daga hvernig sem viðraði, þá var farið með rútunni því ekki áttu pabbi og mamma bíl á þessum tíma. Þrjú börn, tjald og allt sem fylgdi því að fara í útilegu í marga daga – ekki var verið að kvarta yfir því. Yndislegri minningar er ekki hægt að eiga frá æskunni en þær að veiða með pabba, fá gott að borða hjá mömmu og þegar rign- ingin buldi á tjaldinu var spilað á spil og farið í sjóorrustu eins og það tíðkaðist þá. Já, við systkinin vorum lánsöm vegna kærleika, fyrirhyggju og natni foreldra okkar. Pabba varð tíðrætt um hversu gott starfsfólk Landspítalans var honum í veikindum hans og vil ég þakka öllum sem komu að og hjálpuðu honum kærlega fyrir. Elsku pabbi, takk fyrir allt og góða ferð, þín dóttir Hulda Margrét. Elsku tengdapabbi minn, hann Baldur Viðar Guðjónsson, er látinn. Baldur var dásamlegur tengdafaðir, ég kynntist honum þegar ég var 18 ára og ég kom inn í fjölskylduna. Tengdapabbi reyndist mér alltaf vel í gegnum árin og höfum við farið ófáar ferðir innanlands með þeim hjón- um, t.d. veiðiferðir, útilegur og að tína ber svo eitthvað sé nefnt. Þessar ferðir voru mjög skemmtilegar og dýrmætar fyrir alla fjölskylduna. Það er gott að geta minnst þeirra stunda. Einn- ig áttum við ófáar stundir hér á pallinum í Fjallalindinni með tengdapabba og tengdamömmu þar sem Baldur yngri grillaði fyrir okkur og notuðum við þá tækifærið til að spjalla saman um lífið og tilveruna. Þessar stundir eru okkur einnig ógleymanlegar. Hann Baldur var eins og mér finnst „besti afi í heiminum“. Þegar við eignuðumst strákana okkar og komum í heimsókn þá upplifðum við hvað hann gaf sér góðan tíma í að hlusta, leika eða segja strákunum okkar sögur frá eldri tímum. Hann fylgdist líka vel með því sem við vorum að gera og skipti það hann miklu máli. Elsku Baldur, takk fyrir að vera þú og vera alltaf til staðar fyrir okkur. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (HP) Kveðja Guðlaug (Gulla). Elsku afi. Það sem einkenndi afa var mikil lífsgleði, baráttuandi og eru það forréttindi að fá að kynn- ast jafn góðum manni á lífsleið- inni. Það er margs að minnast en það sem kemur fyrst upp í koll- inn eru þau ótal skipti sem við smurðum okkur ömmukex og settumst í lazyboy-inn hans afa og skoðuðum dýrabækur. Ég, Kristófer Óli, vildi þó alltaf bara skoða rándýrabókina og lét afi það eftir mér. Þetta gerðum við í fleiri ár og allt þar til við pöss- uðum einfaldlega ekki báðir í lazyboy-inn vegna þess að við vorum báðir að stækka. Þegar við fjölskyldan fluttum aftur heim til Íslands eftir þriggja ára dvöl í Danmörku, bjuggum við fyrst um sinn hjá ömmu og afa á Smyrlahrauninu í Hafnarfirði, pabbi var nýkominn úr námi og við áttum ekki mikla peninga. Lukkan var heldur bet- ur með okkur bræðrunum því ekki var til betri maður, skemmtilegri leikfélagi, flottari fyrirmynd og seinna í lífinu betri langafi en afi okkar Baldur Guð- jónsson. Minningar eru fyndnar þegar við hugsum til baka til þessa tíma, þá er alltaf sumar; afi er úti í garði að fikta í rósunum sínum eða úti á plani að bóna bílinn, ég, Baldur, er með hamar, ég var alltaf að smíða. Við tókum upp kartöflur bara til þess að grafa þær aftur ofan í moldina svo end- urtókum við leikinn aftur og aft- ur. Við fórum í könnunarleið- angra um hraunið, hann kenndi okkur að virða náttúruna og þá sérstaklega mosann. Það var gaman að slæpast með afa, hann var ljúf sál og hann hafði alltaf tíma. Við elskum þig, afi, við söknum þín, hvíldu í friði. Baldur Viðar og Kristófer Óli. Afi var ótrúlega lífsglaður, já- kvæður og þakklátur fyrir allt sem var gert fyrir hann. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til afa og við barnabörn og barna- barnabörn fengum alltaf óskipta athygli frá honum. Hann lék endalaust við okkur og við vorum alltaf númer eitt. Afi hafði óbil- andi trú á öllu sem við tókum okkur fyrir hendur, við vorum alltaf framúrskarandi í öllu að hans mati. Alltaf þegar við komum í heimsókn var séð til þess að mað- ur færi ekki svangur í burtu enda afi mikill matmaður. Honum þótti nú best þegar langafabörn- in máttu fá köku og hann passaði vel að kenna þeim hvaða kaka væri best. Afi talaði mikið um hversu vel heilbrigðiskerfið hefði reynst honum. Hann var svo ánægður með alla þá þjónustu sem hann fékk, starfsfólkið og ekki má gleyma matnum á spítalanum, það var víst veislumatur. Það er margt sem hægt var að læra af afa, jákvæðnin og lífs- gleðin er það sem við munum reyna að tileinka okkur í gegnum lífið. Við kveðjum afa með miklum söknuði. Ágústa og Ásdís. Við lát Baldurs fækkar enn í vinahópnum sem varð til þegar átta vinkonur útskrifuðust úr Húsmæðraskóla Reykjavíkur fyrir sextíu árum og stofnuðu saumaklúbb. Þetta var skemmti- legur tími, við svo ungar og lífið blasti við. Hertha var þá þegar trúlofuð Baldri og ekki leið á löngu þar til við vorum allar gift- ar og eiginmennirnir urðu strax hluti af klúbbnum. Baldur og Hertha eignuðust fyrsta sauma- klúbbsbarnið, Guðjón, sem verð- ur sextugur á þessu ári, og börn klúbbmeðlima fæddust hvert á fætur öðru á næstu árum, urðu 30 talsins og síðan komu barna- börn og langömmubörn, mikil frjósemi þar. Þegar Baldur og Hertha byrj- uðu að búa var hann í siglingum og kom oft færandi varninginn heim, fallega hluti og föt á Herthu því hann hafði snemma skoðanir á því hvernig hún klæddist og hafði góðan smekk. Eftir að Baldur hætti á sjónum og fór að vinna í Straumsvík voru þau Hertha saman öllum stund- um þegar vinnu lauk. Þau kunnu að njóta lífsins. Þau ferðuðust víða, skoðuðu hvern krók og kima á Íslandi og lögðust síðan í heimsreisur. Að lokum fundu þau sér sælureit á Kanaríeyjum og þar dvöldu þau langdvölum á veturna. Þótt Baldur og Hertha ferð- uðust mikið gafst að sjálfsögðu tími fyrir saumklúbbinn annað slagið. Saumaklúbbskvöldin urðu að sögustundum og mynda- kvöldum. Þar var deilt fjöl- skyldusögum og myndir skoðað- ar. Þá voru haldnar skemmti- legar samkomur þar sem eiginmennirnir tóku þátt. Saman fórum við í ferðir bæði innan- lands og utan og eigum frá þeim dásamlegar minningar. Ferðirn- ar innanlands eru mér minnis- stæðastar. Þá leigðum við okkur hús eða gistum hjá þeim sem áttu bústaði utan höfuðborgar- svæðisins og vörðum þremur til fjórum dögum saman og þá var tekið upp á ýmsu. Allir tóku þátt í grilla og elda veislumat, það var sungið og dansað og tjúttað (við tilheyrum tjúttkynslóðinni). Það voru sagðar sögur, lesið upp úr bókum og síðast en ekki síst, sett upp leikrit – og þar kom Baldur sterkur inn. Ingólfur Bárðarson, einn eiginmannanna, sem nú er farinn, tók alltaf að sér hlutverk leikstjóra og búningahönnuðar en þegar kom að því að skipa í hlutverk var Baldur ætíð í aðal- hlutverki. Leikritið var spunnið á staðnum og þar urðu margar eft- irminnilegar uppákomur. Hefð- um við haft rænu á að veita verð- laun fyrir bestu frammistöðuna hefðu þau oftast komið í hlut Baldurs. Það er ekki hægt að skilja við Baldur án þess að minnast á hversu barnelskur hann var. Ef hann væri ungur í dag myndi ég veðja á að hann hefði gerst leik- skólakennari, þar hefði hann not- ið sín ekki síður en í leiklistinni. Elsku Hertha, það hefur mætt mikið á þér undanfarna mánuði, þú hefur sýnt sjaldséðan dugnað og fórnfýsi. Ef hægt er að segja að einhver sé klettur í lífi annars þá varst þú svo sannarlega kletturinn í lífi Baldurs. Við vinkonurnar munum sakna Baldurs og allra skemmti- legu uppátækjanna hans en lífið heldur áfram og við munum styðja hver aðra þegar sorgin dynur á okkur. Saumaklúbbur- inn sendir þér og fjölskyldunni allri sínar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Baldurs. Sigríður Auðunsdóttir. Baldur Viðar Guðjónsson Maðurinn minn og faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN MARVIN GUÐMUNDSSON, kennari og hamskeri, Hellulandi 22, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 9. febrúar klukkan 11. Margrét Sæmundsdóttir Sif Jónsdóttir Jón Arnar Sigurjónsson Guðmundur Jónsson Jenny M. Johansson Sæmundur Jónsson Guðlaug Kristinsdóttir Páll Marvin Jónsson Eva Sigurbjörg Káradóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES HERMANN ÖGMUNDSSON múrari, Ársölum 1, Kópavogi, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 1. febrúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn 9. febrúar klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Sérstakar þakkir fyrir góða og hlýja umönnun færum við starfsfólki heimahjúkrunar og hjartadeildar Landspítalans. Hjördís Þorsteinsdóttir Pétur Einar Jóhannesson Steve Rotherfort Ögmundur Þór Jóhannesson Sigurlína Björg Hauksdóttir Þorsteinn Lúter Jóhanness. Sigríður Guðrún Stefánsdóttir Jón Már Jóhannesson Amelia Pando Garcia Ólafur Geir Jóhannesson Sam Anurak Jansawek Júlía Jóhannesdóttir Árni Júlíusson afabörn og langafabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.