Morgunblaðið - 07.02.2018, Page 25
synir þeirra einnig á unglings-
árunum og síðar.
Lalli hafði sterkar taugar
austur í Hornafjörð þar sem
hann hafði verið í sveit frá
barnsaldri. Þar byggði hann sér
bústað og fékk pabba okkar
gjarnan til liðs við sig, enda
samrýndir og góðir vinir.
Á landinu sínu boraði hann
eftir heitu vatni, reyndi sig við
fiskeldi; var alltaf framsækinn.
Við systkinin og fjölskyldur
okkar eigum margar góðar
minningar frá veru okkar hjá
þeim hjónum Ásu og Lalla í bú-
staðnum þeirra Klettabæ.
Lalli tók sér margt fyrir
hendur og hikaði sjaldan við að
prófa nýja hluti eins og hans
lífsferill ber vott um. Það er
okkur eldri systkinunum minn-
isstætt þegar hann rak búð á
Laugaveginum, fór á sjóinn, og
stofnaði að lokum fyrirtækið
Stólpa, sem nú er í höndum son-
ar hans og orðið öflugt á sínu
sviði.
Það var þroskandi fyrir okk-
ur systkinin að upplifa hin góðu
tengsl sem voru milli systkina
mömmu, og eftir fráfall pabba
okkar var Lalli einstaklega
ræktarsamur og bar mikla um-
hyggju fyrir mömmu okkar
enda þau ætíð miklir vinir.
Mikil viðbrigði voru það fyrir
mömmu þegar Lalli veiktist og
hún fór í hlutverk hans, að sýna
honum þá ræktarsemi sem hún
hafði fengið að njóta og stytta
honum stundir á meðan hann
naut þess.
Lalli hefur nú kvatt okkur og
erum við þakklát fyrir þann
tíma og allar þær góðu minn-
ingar sem hann skilur eftir með
okkur.
Innilegar samúðarkveðjur til
ykkar elsku Ása, Dagný, Ás-
geir, Villi og fjölskyldur. Guð
geymi Lalla frænda og gefi ykk-
ur styrk.
Guðrún, Ásgeir,
Magnús, Ingunn, Helga
og fjölskyldur.
Gleði, góðmennska og hjálp-
semi. Þetta kemur upp í hugann
í dag þegar ég kveð hinstu
kveðju frænda minn Þorlák Ás-
geirsson, eða Lalla eins og hann
var alltaf kallaður.
Lífsgleðin var hans leiðarljós
og aldrei man ég eftir honum
nema í góðu skapi. Hann var
líka einstaklega hjálpsamur og
alltaf hafði hann nægan tíma
fyrir fjölskyldu og vini. Á með-
an kraftar leyfðu vann hann líka
„margfalda“ vinnu, mest við
smíðar.
Hann var ungur þegar for-
eldrar hans skildu og kom hann
þá, ásamt tveimur systrum sín-
um hingað til Hafnar og þau
dvöldu um lengri eða skemmri
tíma hér hjá fjölskyldunni.
Lalli fór þá til Vilhjálms
móðurbróður míns í Krossbæ
og það var mikið lán fyrir Villa
frænda. Alla tíð, allt til þess
tíma er Villi lést í mars 2008
héldu Lalli og hans fjölskylda
mikilli tryggð við hann og hjálp-
uðu honum „með ráðum og dáð“
allt til hinstu stundar. Slíkt
verður aldrei fullmetið.
Lalli byggði sér sumarhús í
Krossbæ og fjölskyldan naut
þess að koma hingað til Horna-
fjarðar þegar tækifæri gafst og
margar góðar minningar eru frá
þeim ferðum.
Ég á honum líka mikið að
þakka því árið 2000 þurfti móðir
mín að fara í nokkrar aðgerðir
til Reykjavíkur. Þá veitti hann
henni ómetanlega hjálp og var
alltaf tilbúinn að taka á móti
henni.
En enginn „veit sína ævina“
ef til vill sem betur fer. Lalli
greindist með sjúkdóm sem
ekki var hægt að ráða við. Alz-
heimer-sjúkdómurinn gaf ekki
grið og síðustu árin voru honum
mjög erfið, en þá átti hann því
láni að fagna að eiginkona hans
og aðrir í fjölskyldunni umvöfðu
hann og gerðu honum lífið eins
auðvelt og hægt var.
Minningin lifir um góðan
frænda, sem allt vildi fyrir mig
og mína fjölskyldu gera.
Frænda sem tók alltaf brosandi
á móti manni, oftast með stríðn-
isglott í augum, tilbúinn að
stríða manni ef mögulegt var.
Frænda sem dansaði og söng
þegar færi gafst og var hrókur
alls fagnaðar.
En nú eru tímamót og komið
að kveðjustund. Við Guðbjartur
sendum Ásu og fjölskyldu inni-
legar samúðarkveðjur og biðj-
um þeim blessunar.
Tíminn líður, kveðja vinir kærir,
Krossbæinga minningarnar geyma.
Þakkir sínar Agnes frænka færir
fyrir góðu, liðnu árin heima.
Verk þín munu vel og lengi standa,
vinir minnast glaðværðar og hlýju.
Kátur munt þú leita nýrra landa
og lyfta sög og hamri þar að nýju
(GÖ)
Agnes Ingvarsdóttir.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Atvinnuhúsnæði
Lagerhúsnæði
í GARÐABÆ
Um er að ræða tvær sjálfstæðar einingar
920 ferm og 350 (400) ferm.
Lofthæð er um 4.5 metrar.
Húsnæðið getur verið laust á næstu 2 – 3 vikum.
Upplýsingar í síma 772 1312 og 899 2841
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Hrafntóftir lóð 1, Rangárþing ytra 50% ehl. gþ., fnr. 234-2484 , þingl.
eig. Bergsteinn Vigfússon, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Norðurlandi ves, þriðjudaginn 13. febrúar nk. kl. 11:20.
Lyngholt, Ásahreppur, ehl. gþ., fnr. 193474 , þingl. eig. Skarphéðinn
Hilbert Ingason, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn 13.
febrúar nk. kl. 10:00.
0Sýslumaðurinn á Suðurlandi
6 febrúar 2018
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, foreldramorgnar kl. 10.30,
söngstund við píanóið með Helgu Gunnars kl. 13.45 bókaspjalli aflýst
í dag.
Árbæjarkirkja Opið hús í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 13 til 16.
Leikfimi með Öldu Maríu á sínum stað kl. 13.30. Síðan ætlar Sólveig
Anna Bóasdóttir að fjalla um nýútkomna bók sína Guð og gróður-
húsaáhrif, kristin siðfræði á tímum loftslagsbreytinga. Kynning henn-
ar hefst kl. 14, kaffi og með þvi á eftir, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12
og léttur hádegisverður á eftir gegn vægu gjaldi. Allir velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinandi kl. 9-16, opin smíðastofa kl.
9-16. Stóladans með Þórey kl. 10, opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16.
opið fyrir innipútt, hádegismatur kl. 11.40-12.45, kaffisala kl. 15-15.45,
heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15, vatnsleikfimi í sundlaug
Boðans kl. 9, harmonikkuspil og söngur kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16, myndlist kl. 9-12,
billjardkennsla kl. 9.30, tölvu- og snjallsímaaðstoð frá kl. 9.30-10.10,
morgunkaffi kl. 10-10.30, botsía kl. 10.40-11.20, glerlist byrjar á ný í
dag kl. 13, ennþá laus pláss í glerlistina hjá Vigdísi, endilega að hafa
samband ef einhver vill byrja í gleri í dag. Spiladagur, frjáls spila-
mennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Breiðholtskirkja ,,Maður er manns gaman" í Breiðholtskirkju kl.
13.15. Spil, handavinna, leikfimi og spjall. Allir hjartanlega velkomnir.
Dalbraut 18-20 Samverustund með sr. Davíð Þór kl. 14, verslunar-
ferð í Bónus kl. 14.40.
Dalbraut 27 Dagur B. Eggertsson borgarstjóri kemur í heimsókn í
kaffitímanum kl. 15.
Félagsmiðstöðin Vitatorg Bókband kl. 9-13, opin handavinna frá kl.
9-12, tölvu- og snjallsímakennsla kl. 10-11, bókband kl. 13-17, frjáls
spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-17. Harmonikkudansleik-
ur með Vitatorgsbandinu frá kl. 14-15, ókeypis aðgangur og allir vel-
komnir. Kaffiveitingar kl. 14.30-15.30. Verið velkomin á Vitatorg,
síminn er 411-9450.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16, meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.40. Vatnsleik-
fimi Sjálandi kl. 7.40/15.15, kvennaleikfimi í Sjálandi kl. 9.30, kvenna-
leikfimi í Ásgarði kl. 10.40, gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10, brids í
Jónshúsi kl. 13, leir í Kirkjuhvoli kl. 13, zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin Handavinnustofan kl. 8.30-16, útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-12, útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl.
130-16, félagsvist kl. 13-16.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 byrjenda-botsía, kl. 9.30 glerlist,
kl. 13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Grensáskirkja Samvera eldri borgara kl. 14-15.30, helgistund, bingó,
kaffi og meðlæti, hjartanlega velkomin.
Guðríðarkirkja Þorrablót félagsstarfs eldri borgara miðvikudaginn 7.
febrúar kl. 12, byrjum í kirkjunni með fyrirbænir og söng. Hægt er að
hafa samband við Guðríðarkirkju með fyrirbænaefni í síma 577-7770.
Síðan verður þorrabót í safnaðarheimilinu, Jóhannes Kristjánsson
skemmtikraftur og eftirherma kitlar hláturtaugarnar. Matur kr. 2000.-
Hlökkum til að sjá ykkur.
Gullsmári Myndlist kl. 9, ganga kl. 10, postulísmálun / kvennabrids /
silfursmíði kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, zumbadans og
líkamsrækt kl. 9 hjá Carynu, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga hjá Carynu
kl. 10. Samverustund kl. 10.30, lestur og spjall, hádegismatur kl. 11.30.
Handavinnuhópur kl. 13, línudans hjá Ingu kl. 13.30, eftirmiðdagskaffi
kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45, ganga kl. 10, línudans með Ingu
kl.10.15, stóla- og hláturjóga kl. 13.30, tálgun í ferskan við með Valdóri
kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30, allir velkomnir óháð aldri upplýsingar
í síma 411-2790.
Korpúlfar Glerlist kl. 9 með Fríðu í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum
og inni í Egilshöll. Keila í Egilshöll kl. 10, stjórnar- og nefndarfundur
Korpúlfa kl. 10 í dag, ath. breyttan fundarstað, keila í Egilshöll kl. 10,
Gaman saman kl. 13 í Borgum og Þorrablót Korpúlfa, húsið opnað kl.
18 í Borgum, borðhald hefst 19, muna aðgöngumiða og að taka með
sér drykkjarföng, gleði, gaman og dans með góðri skemmtun.
Neskirkja Krossgötur kl. 13.00. Margrét Eggertsdóttir, íslenskufræð-
ingur: Hallgrímur Pétursson á lönguföstu. Kaffi og kruðerí.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og handavinnuhópurinn kemur
saman kl. 13, vöfflukaffi er selt á vægu verði kl. 14.30–15.30. Allir eru
hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í
síma 568-2586.
Seltjarnarnes Leir Skólabraut kl. 9. Botsía salnum Skólabraut kl. 10.
kaffispjall í króknum kl. 10.30, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, timbur-
menn Valhúsaskóla kl. 13, handavinna Skólabraut kl. 13, vatnsleikfimi
sundlauginni kl. 18.30. Munið skráninguna í óvissuferðina sem farin
verður nk. fimmtudag kl. 13.30. Hulduhólar og Messin í kaffi og með
því. Verð kr. 3.000.- (heimsókn, rúta og veitingar.)
Stangarhylur 4, Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4 kl.
10, söngvaka kl. 14 stjórnendur Karl Karlsson og Sigurður Jónsson.
Söngfélag FEB kóræfing kl. 16.30 stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristniboðs-
salnum. Ræðumaður Ragnar
Gunnarsson. Nýjar fréttir að
utan. Allir velkomnir.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl 20.00.
HELGAFELL 6018011019 VI
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2748
loggildurmalari@gmail.com
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar
að dugmiklu fólki 13 ára og eldra,
til að bera út blöð.
Allar nánari upplýsingar
í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Vantar þig
aukapening?
Kær öðlingur og
fjölskylduvinur er
fallinn frá. Ég
kynntist Þorvaldi
Snæbjörnssyni, eða Lilla eins og
hann var gjarna kallaður, á
æskuárum mínum á Akureyri, en
hann var einn besti vinur pabba
míns.
Þorvaldur var ljúfmenni með
sérstaklega góða og þægilega
nærveru, dugnaðarforkur og
fylginn sér, frábær veiðifélagi og
manna skemmtilegastur þegar
hann fékk sér í tána.
Hann byggði sér og fjölskyldu
sinni glæsilegt heimili í Kotár-
gerði 18 og garðurinn hans með
klettabakkanum sem hann rækt-
aði af alúð var rómaður fyrir feg-
urð.
Og kartöflurnar sem hann
ræktaði, ja þvílík eðal-jarðepli
voru vandfundin.
Þorvaldur
Snæbjörnsson
✝ ÞorvaldurSnæbjörnsson
fæddist 30. ágúst
1930. Hann lést 11.
janúar 2018.
Útför Þorvaldar
fór fram 22. janúar
2018.
Til eru margar
skemmtilegar sögur
af Þorvaldi, ekki síst
af uppákomum í
veiðitúrum með
pabba þar sem við
Snæbjörn (Brói)
sonur Lilla og
æskufélagi minn
vorum með í för.
Lilli var lunkinn
veiðimaður eins og
pabbi og manna
fisknastur.
Ef fiskur gaf sig þá var Lilli að
fá hann. Manni yljar um hjarta-
rætur þegar maður minnist
skemmtilegra sumarkvölda á ár-
bakkanum eftir fengsælan veiði-
dag.
Þá var stundum tekinn tappi
úr flösku og sunginn óður til ís-
lenskrar náttúru eða fósturlands-
ins freyju.
Fyrir þessar stundir verð ég
eilíflega þakklátur sem og aðra
samveru með Þorvaldi.
Ég votta Guðrúnu, eftirlifandi
eiginkonu hans, og börnum
þeirra, Möggu, Bróa, Stjána og
Lella, mína dýpstu samúð.
Hvíldu í friði, Lilli minn.
Ívar Aðalsteinsson.