Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018
Katrín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Sölku-Fiskmiðlunar áDalvík, á 50 ára afmæli í dag. Hún tók við framkvæmdastjóra-stöðunni árið 2004, en hefur unnið hjá fyrirtækinu frá 1994.
„Við höfum sérhæft okkur í þurrkuðum fiskafurðum fyrir Nígeríu-
markað, við erum útflutningsfyrirtæki og seljum fyrir framleiðendur.
Nígeríumarkaður er búinn að ganga í gegnum erfiðleika frá 2015, það
er minni peningur í umferð hjá þeim til að kaupa sér vöru og við fáum
lægra verð fyrir afurðirnar. Það er samt mjög gott að eiga viðskipti við
Nígeríumenn, þeir hafa verið mjög áreiðanlegir viðskiptavinir enda
góð vara sem er verið að bjóða upp á.“
Katrín fer að jafnaði tvisvar á ári til Nígeríu í vinnuferðir og oftar ef
eitthvað sérstakt er í gangi. „Við förum yfirleitt á þrjá til fjóra staði,
helstu markaðirnir eru á þremur stöðum og svo erum við með góð-
gerðarstarfsemi á fjórða staðnum þar sem við ásamt fleiri hagsmuna-
aðilum í þessum þurrkaða fiskbransa á Íslandi styrkjum augnaðgerðir á
fátæku fólki.“
Helstu áhugamál Katrínar eru samverustundir með fjölskyldu og vin-
um og handavinna. Íþróttir, útivist og ferðalög innanlands eru líka of-
arlega á blaði. „Ætli ég sé ekki búin að keyra flestar götur í byggð á
landinu. Svo stefni ég á að fara í Veiðivötn í sumar í fyrsta sinn með föð-
ur mínum, systkinum og fjölskyldum.“
Eiginmaður Katrínar er Haukur Snorrason, sem rekur innflutnings-
fyrirtækið Samleið. Börn þeirra eru Íris, 30 ára, Snorri Eldjárn, sem
varð 27 ára á mánudag, og Sveinn Margeir, 16 ára.
„Ég held að ég hefji daginn með því að fara í ræktina kl. 6.15 eins og
venjulega. Svo ætla ég að vera mestmegnis heima og skella í eina eða
tvær kökur fyrir fjölskylduna og þá sem reka inn nefið. Trúlega endar
dagurinn á súpukvöldi með vinkonum í blakfélaginu Rimum.“
Hjónin Katrín og Haukur stödd við Goðafoss síðastliðið sumar.
Nígeríumenn trygg-
ir viðskiptavinir
Katrín Sigurjónsdóttir er fimmtug í dag
Þ
ráinn Hallgrímsson
fæddist á Siglufirði 7.2.
1948. Fjölskyldan flutti
til Reykjavíkur árið
1956, svo hann stundaði
barnaskólanám á Siglufirði og í
Melaskólanum, lauk landsprófi frá
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1964,
stúdentsprófi frá MR 1968, lauk
BA-prófi í í ensku, frönsku og
norsku 1973 og jafnframt námi í
uppeldis- og kennslufræðum og
stundaði frönskunám í Frakklandi
og spænskunám í Santander á
Spáni á árunum 1975 og 1976.
Þráinn vann ýmis verkamanna-
störf á unglings- og skólaárum og
var tækjamaður og gröfumaður um
skeið á háskólaárunum.
Þráinn starfaði við Iðnaðarbanka
Íslands 1972-73, kenndi við MÍ
1973-80 og jafnframt við Kvöld-
skólann á Ísafirði og Gagnfræða-
skólann og starfaði fyrir Iðnskóla
Ísafjarðar, var blaðamaður á Al-
þýðublaðinu 1980-83 og blaða-
maður og annar umsjónarmaður
Helgarblaðs dagblaðsins Tímans
1983.
Þráinn varð fræðslufulltrúi MFA
1983, starfaði þar við Félagsmála-
skóla alþýðu og sat í stjórn Tóm-
stundaskólans á upphafsárum,
undir stjórn MFA. Hann varð
skrifstofustjóri ASÍ í árslok 1988
og til 1992, varð þá skólastjóri
Tómstundaskólans og skólastjóri
Mímis Tómstundaskólans 1995-96,
var skrifstofustjóri Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar í Reykjavík
1996 og var það áfram er stéttar-
félögin í Reykjavík sameinuðust,
hjá Dagsbrún og Framsókn
stéttarfélagi og síðan skrif-
stofustjóri Eflingar – stéttarfélags,
Þráinn Hallgrímsson, skrifstofustjóri Eflingar – 70 ára
Í Austfjarðaþoku Þráinn, Karitas, Jón Elías, Ólafur og Þórunn Karitas á leið upp Öx , að koma úr hreindýraveiði.
Lukkunnar pamfíll
með ótal áhugamál
Afmælisbarnið Þ́ráinn á félagsfundi
hjá Dagsbrún, þá nýtekinn við sem
skrifstofustjóri félagsins.
Reykjavík Baldur Rafn Karlsson
fæddist 7. febrúar 2017 kl. 17.32 og á
því eins árs afmæli í dag. Hann vó
3.854 g og var 53 cm langur. Foreldrar
hans eru Anna Birna Rafnsdóttir og
Karl Sigurðsson.
Nýir borgarar
Keflavík Sóldís Lilja Jónsdóttir fædd-
ist 7. febrúar 2017 kl. 1.41 og á því eins
árs afmæli í dag. Hún vó 3.116 g og var
49 cm löng. Foreldrar hennar eru
Sunna Björg Reynisdóttir og Jón
Oddur Sigurðsson.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is