Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 27

Morgunblaðið - 07.02.2018, Side 27
við stofnun þess, og hefur gegnt því starfi síðan. Þráinn var formaður fyrsta fé- lagsmálaráðs Ísafjarðar um tveggja ára skeið og sat einnig í menningarráði Ísafjarðar á sama tíma, í stjórn Bréfaskólans frá 1986 og stjórnarformaður þar 1988-89, sat í stjórn MFA á Norðurlöndum um skeið, var námsstjóri við Norræna MFA- skólann 1986, sat í stjórn Genfar- skólans, samnorræns skóla verka- lýðshreyfingarinnar, 1988-2002 og sat í stjórn Neytendasamtakanna. Þráinn sat í þríhliðanefnd ILO, Alþjóðavinnumálastofnunar fyrir ASÍ, fulltrúi launafólks á alþjóða- vinnumálaþinginu í Genf í Sviss 1989-92, í ráðgjafarnefnd jafnrétt- isráðs 1988, í nefnd félagsmálaráð- herra um starfsmenntun í atvinnu- lífinu 1989, var formaður tóm- stundaráðs Kópavogs, varafor- maður skólanefndar Kópavogs í tvö kjörtímabil og er nú varamaður í velferðarráði Kópavogs fyrir Samfylkinguna. Þráinn hefur haft umsjón með útgáfu á margvíslegu fræðslu- og upplýsingaefni fyrir skrifstofu ASÍ. Þráinn er jafnaðarmaður af lífs- hugsjón og ævistarfi. Ef hann er ekki að auka jöfnuð í samfélaginu gefur hann sér tíma til að rækta landið. Á níunda áratugnum var hann formaður í mannréttinda- nefnd El Salvador á Íslandi og hef- ur stutt mannréttindasamtökin Amnesty. Þráinn hefur alla tíð skemmt sér konunglega í vinnunni en hefur svo auk þess ýmis áhugamál. Hann er mikið fyrir útilíf og fjallgöngur, og hefur, ásamt fjölskyldunni, byggt upp orlofsdvalarstað nálægt Laugarvatni sem er friðarreitur fjölskyldunnar og heilnæmur vinnustaður. Þar hefur malargryfju verið breytt í unaðslegan gróður- reit. Hann liggur í bókmenntum og tónlist frá ýmsum löndum en Vínartónleikar eru efst á vinsælda- listum um hver áramót auk þess sem hann heldur enn upp á Bítl- ana. En mest af öllu metur hann góðan félagsskap vina, fjölskyldu og vinnufélaga. Hann hefur áhuga á tungumálum og verður ástfang- inn af gömlum og grónum borgum Evrópu, ekki síst Kaupmannahöfn, Vínarborg, München og Barcelona, að ógleymdri Santander á Norður- Spáni þar sem hann valdi við spænskunám. „Ég er lukkunnar pamfíll. Hef átt góða og samhenta fjölskyldu, trausta vini og fengið að takast á við krefjandi verkefni alla starfs- ævina. Hvað er hægt að biðja um meira?“ Fjölskylda Eiginkona Þráins er Þórunn Karitas Þorsteinsdóttir, f. 4.1. 1952, lengi starfsmaður Lands- bankans. Börn Þráins og Þórunnar Karit- asar eru Jón Elías Þráinsson, f. 27.11. 1969, kerfisstjóri hjá Sjóvá, en hann á synina Márus Mána og Ívan Rökkva; Ólafur Þráinsson, f. 20.9. 1972, tæknimaður netlausna hjá Origo, kvæntur Svandísi Ernu Jónsdóttur og eiga þau börnin Arnór Tuma, Elvar Kára og Hrafnhildi Brynju, og Karitas Þrá- insdóttur, f. 23.12. 1973, markaðs- stjóri Íslensku Alpanna, á sam- býlismanninn Guðmund Gunnlaugsson. og á hún börnin Valdísi Björk Valtýsdóttur, Brynj- ar Má Sigurjónsson og Karítas Dís Sigurjónsdóttur. Foreldrar Þráins voru Hall- grímur Elías Márusson, f. 6.11. 1913, d. 24.6. 1998, klæðskeri og bílstjóri, og Hermína Guðrún Sigurbjörnsdóttir, f. 4.8. 1916. d. 21.3. 2008, húsfreyja. Þráinn Hallgrímsson Sólveig Ólöf Ólafsdóttir húsfr. í Sigríðarstaðakoti í Flókadal Gottskálk Gottskálksson b. í Sigríðarstaðakoti í Flókadal Jóhanna Gottskálksdóttir sambýliskona í Langhúsum í Fljótum Hermína Guðrún Sigurbjörnsdóttir húsfr. á Siglufirði Sigurbjörn Jósepsson b. á Langhúsum í Fljótum Margrét A. S. Sigurðardóttir húsfr. á Stóru-Reykjum Jósef Björnsson b. á Stóru- Reykjum í Flókadal Jónas Hallgrímsson fyrrv. bæjarstj. á Seyðisfirði og fyrrv. stjórnarform. Smyril Line, nú stjórnarform. Austfars Helga Jósefsdóttir á Dæli og á Molastöðum í Fljótum Jón Helgi Guðmundsson forstj. Norvik og eigandi BYKO Guðmundur Helgi Jónsson stofnandi og forstj. BYKO Dúa Stefanía Hallgrímsdóttir kennari við Melaskólann Margrét Lára Friðriksdóttir kaupm. á Siglufirði Friðrik Guðlaugur Márusson verkstjóri á Siglufirð Friðrik Jón Arngrímsson hdl., og fyrrv. framkvæmdastj. LÍÚ Steinar Hallgrímsson forstjóri Pálmar Hallgrímsson, röntgenlæknir og sérfræðingur í myndgreiningum Sólveig Guðbjörg Ásmundsdóttir húsfr. á Molastöðum Jónas Jónasson b. á Molastöðum Sigurbjörg Jónasdóttir frá Ökrum í Fljótum, húsfr. í Fyrirbarði Márus Ari Símonarson b. í Fyrirbarði í Fljótum Ingunn Helga Magnúsdóttir húsfr. í Fyrirbarði Símon Márusson b. í Fyrirbarði Úr frændgarði Þráins Hallgrímssonar Hallgrímur Elías Márusson klæðskerameistari á Siglufirði og síðar bílstjóri í Reykjavík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði STOFNAÐ 1956 Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur s: 510 7300 www.ag.is Sproti 405 Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir Þorvaldur Steingrímsson fædd-ist á Akureyri 7.2. 1918. For-eldrar hans voru Steingrímur Matthíasson, læknir á Akureyri, og k.h., Kristín Thoroddsen húsfreyja, systir Emils Thoroddsen tónskálds. Steingrímur var sonur Matthíasar Jochumssonar skálds en Kristín var dóttir Þórðar Thoroddsen, alþingis- manns og læknis, bróður Skúla Thor- oddsen alþingismanns, afa Skúla Hall- dórssonar tónskálds. Móðir Kristínar var Anna L. Thoroddsen, systir Krist- jönu Guðjohnsen, móður Jóns Hall- dórssonar, söngstjóra Fóstbræðra, en systir þeirra systra var Marta, amma Jórunnar Viðar tónskálds. Eiginkona Þorvaldar var Ingibjörg Halldórsdóttir sem lést 1966, og eru börn þeirra Sigríður leikkona; Kristín hárgreiðslukona, og Halldór, forstjóri á Flórída. Seinni kona Þorvaldar: Jóhanna H. Cortes. Þorvaldur var við nám í Tónlistar- skólanum í Reykjavík 1934-37, lærði m.a. fiðluleik hjá Þórarni Guðmunds- syni, lauk fullnaðarprófi í fiðluleik 1937 og var við framhaldsnám í The Royal Academy of Music í London 1946. Þorvaldur var fiðluleikari Útvarps- hljómsveitarinnar frá 1944 og forfiðl- ari þar frá 1947, var fiðluleikari í Sin- fóníuhljómsveit Íslands frá stofnun, aðstoðarkonsertmeistari frá 1966 og konsertmeistari við Þjóðleikhúsið 1966-80. Hann starfaði hjá Hollywood Bowl Orchestra í Kaliforníu 1961-62, var fyrsti fiðluleikari hjá Sinfóníu- hljómsveit Dallas-borgar 1962-64 og aðstoðarkonsertmeistari hjá Sinfóníu- hljómsveit Oklahoma-borgar 1969-71. Hann kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík 1943-46 og var skólastjóri Tónlistarskólans í Hafnafirði 1980-88. Þorvaldur starfaði lengi í Frímúra- reglunni, var formaður FÍH 1953-55, formaður Lúðrasveitar Reykjavíkur 1976-78 og formaður Félags íslenskra tónlistarskólastjóra um skeið. Hann var sæmdur heiðursmerki FÍH 1976. Þorvaldur lést 27.12. 2009. Merkir Íslendingar Þorvaldur Steingrímsson 85 ára Hjördís S. Þórðardóttir Sigurrós Ottósdóttir 80 ára Kristín Ingveldur Ingólfsdóttir 75 ára Halldór Sigurgeirsson Marteinn Gíslason Þorgerður Jónsdóttir 70 ára Alda Hafdís Demusdóttir Arnar Daðason Ágústa Halldóra Gísladóttir Bjarki Leifsson Björn H. Einarsson Elías Gíslason Hallgrímur Einarsson Kristján Jónsson Margrét S. Bárðardóttir Óli Ómar Ólafsson Þorbjörg Sigurðardóttir Þorkell Ingi Rögnvaldsson Þráinn Hallgrímsson 60 ára Ásdís Loftsdóttir Dagný Sæbjörg Finnsdóttir Daníel V. Ólafsson Elísabet Magnúsdóttir Grazyna Gosk Guðmundur Snorrason Helga Þ. Egilson Hulda Dagrún Grímsdóttir Hulda Kristín Vatnsdal Ingvar Þór Pétursson Kristín Jónasdóttir Kristín Sigurjónsdóttir Leifur Gunnlaugsson Nemira Kontautaité Páll Halldór Benediktsson Sigurður Valgeir Skarphéðinsson 50 ára Anna Dúfa Gunnarsdóttir Arna Ívarsdóttir Barbara Ann Howard Huld Aðalbjarnardóttir Ireneusz Legandt Katrín Sigurjónsdóttir Margrét S. Jóhannsdóttir Miroslaw Andrzej Gajecki Ragnheiður Kristjánsdóttir Sigríður Gréta Þorsteinsdóttir Viðar Smári Sigurðsson 40 ára Aldís Hilmarsdóttir Anna Valý Baldursdóttir Björn Líndal Traustason Eiríkur Halldór Gíslason Fróði Hansen Isaksen Inga Steinunn Björgvinsdóttir Ingvar Stefán Árnason Karl Valdimar Eymundsson Oddur Björn Tryggvason Ólafur Björn Ólafsson Vala Björt Harðardóttir Þórhildur Svava Svavarsdóttir 30 ára Andri Már Kristinsson Atli Már Björnsson Bartlomiej Piotr Babijczuk Björn Pálmi Pálmason Eiríkur Rafn Stefánsson Hlynur Berg Ólafsson Kamil Karol Szrejter Sævar Logi Viðarsson Youssef Jalabi Til hamingju með daginn 30 ára Hlynur ólst upp í Súðavík, býr í Hafnarfirði og er vélamaður hjá Gámaþjónustunni. Maki: Hildur Emma Óm- arsdóttir, f. 1993, snyrti- fræðingur. Systkini: Aldís Ýr, f. 1983, og Ívar Örn, f. 1991. Foreldrar: Ólafur Elías- son, f. 1960, rafvirki og framkvæmdastjóri, og Salóme Halldórsdóttir, f. 1966, ráðgjafi hjá Barna- verndarnefnd. Hlynur Berg Ólafsson 30 ára Atli ólst upp í Gerði í Suðursveit og í Borgarfirði, stundaði pí- anónám hjá Svönu Vík- ingsdóttur og er jökla- bóndi í Gerði. Maki: Fie Nordal Jensen, f. 1989, jöklabóndi. Foreldrar: Björn Þor- bergsson, f. 1962, bóndi á Gerði á Breiðabólstaða- torfu í Suðursveit, og Þór- unn Pétursdóttir, f. 1969, doktor í endurheimt vist- kerfa. Atli Már Björnsson 40 ára Þórhildur ólst upp á Selfossi, býr þar, lauk prófi sem tannsmiður og starfar á Tannsmíða- stofunni Central í Kópa- vogi. Maki: Torfi Ragnar Sig- urðsson, f. 1980, lögmað- ur hjá Lögmönnum Suðurlandi. Börn: Emelía, f. 2003, og Ásdís Laufey, f. 2008. Foreldrar: Áslaug Páls- dóttir, f. 1958, og Svavar H. Jósteinsson, f. 1958. Þórhildur Svava Svavarsdóttir mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.