Morgunblaðið - 07.02.2018, Page 30

Morgunblaðið - 07.02.2018, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Tíska & förðun Fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 16. febrúar Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihlutum auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 föstudaginn 9. febrúar NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég skoðaði ævintýralegustu tón- verkin sem ég þekki og í samráði við Bernharð Wilkinson hljómsveitar- stjóra og Hjördísi Ástráðsdóttur, fræðslustjóra SÍ, tókum við ákvörð- un um verkin sem spiluð verða á Ævintýratónleikum Ævars í Hörpu,“ segir Ævar Þór Benedikts- son, betur þekktur sem Ævar vís- indamaður. Þetta er í annað sinn sem Ævar og Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) halda saman tónleika en Vísinda- tónleikar Ævars voru haldnir fyrir tveimur árum, þegar Ævar og Sin- fóníuhljómsveitin troðfylltu Eldborg tvisvar. „Þá tengdum við saman uppfinn- ingar og tónlist en nú einbeitum við okkur að ævintýrum og tónlist,“ seg- ir Ævar sem bíður spenntur eftir tónleikunum. „Þarna verða verk sem margir þekkja en einnig verður frumflutt glænýtt tónverk sem félagi minn og tónskáld frá Menntaskólanum á Akureyri, Sigurður Helgi Oddsson, samdi upp úr bókinni minni, Þinni eigin þjóðsögu. Hann fékk bókina fyrir ári, las hana og samdi þetta flotta lag sem Hrafnkell Orri Egils- son útsetti svo,“ segir Ævar og lýsir því hvernig hann fékk gæsahúð og allan pakkann þegar hann heyrði lagið flutt af Sinfóníunni á æfingu fyrir tónleikana. Veisla fyrir bæði augu og eyru „Áhorfendur fá að heyra tónlist úr fjölbreyttum ævintýrum í glæsi- legum flutningi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands sem spilar m.a. lög úr Harry Potter-myndunum, Sjó- ræningjum Karíbahafsins, Hringa- dróttinssögu, Batman og Drauga- bönum.“ Á Vísindatónleikunum mætti Sprengju-Kata, Katrín Lilja Sig- urðardóttir, og gerði allt vitlaust. Ævar segir að hún muni ekki mæta í ár en andi hennar svífi yfir vötnum. „Kata er falin í myndskreytingu í Tónlist stjórnað með töfrasprota Morgunblaðið/Eggert Töfrar „Það er ekki á hverjum degi sem Sinfóníunni er stjórnað með töfrasprota,“ segir Ævar Þór Benediktsson, sem kemur fram á Ævintýratónleikum. einu laginu, þar sem henni bregður fyrir. Við fengum Svart Design til að myndskreyta tónleikana, sem þýðir að það verður nánast eins og lítil bíó- mynd í bakgrunni flestra laganna. Þetta verður því veisla fyrir bæði augu og eyru. Svo verður bara að koma í ljós hvort eitthvað óvænt gerist,“ segir Ævar leyndardóms- fullur. Vildu velja réttu tónverkin „Það er allavega ekki á hverjum degi sem Sinfóníunni er stjórnað með töfrasprota. Það dugar auðvitað ekkert minna þegar verið er að spila Harry Potter-stefið og svo heppilega vill til að ég á einmitt sprota,“ segir Ævar. Hann segir að hugmyndin að Ævintýratónleikunum hafi komið að loknum Vísindatónleikunum árið 2016 en stjórnendur Sinfóníunnar vildu taka góðan tíma í að velja réttu tónverkin. Tilgangur tónleikanna, að sögn Ævars, er að minna á hvað æv- intýrin eru spennandi og sýna hvað orð og tónar eiga margt sameigin- legt þegar kemur að því að skapa heima. „Það eru mikil vísindi á bak við gott ævintýri, alveg eins og það eru mikil vísindi á bak við gott tónverk,“ segir Ævar. Nú hoppar Ævar vís- indamaður inn í umræðuna, en lestrarátak Ævars vísindamanns mun einnig koma við sögu á tónleik- unum. Átakið stendur sem hæst um þessar mundir. Lestur skiptir höfuðmáli „Lestur skiptir auðvitað höfuð- máli þegar kemur að ævintýrum. Hugmyndirnar að ævintýraheim- unum sem við þekkjum og elskum kvikna vegna þess að höfundar þeirra voru duglegir að skrifa, lesa og sækja innblástur í önnur verk. JRR Tolkien er frábært dæmi um þetta, enda má finna nánast öll dverganöfnin úr Hobbitanum í Völu- spá. Sama má segja um Grimms- bræður og áhrifin sem þeir hafa haft með sínum skrifum. Ef þeir hefðu ekki skrifað bækurnar sínar væri heimurinn töluvert fátækari. Boðið upp á táknmálstúlkun Ævar segir að tónleikarnir séu fyrir áhorfendur allt frá fjögurra ára aldri og upp úr. „Það verða tvennir tónleikar 10. febrúar og nær uppselt á hvora- tveggju. Sama dag er einnig Dagur íslenska táknmálsins og af því tilefni verða seinni tónleikarnir táknmáls- túlkaðir,“ segir Ævar og bendir á að hægt sé að nálgast miða á vefnum harpa.is.  Ævintýratónleikar Ævars með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu um helgina  Markmið tón- leikanna að minna á hvað ævintýrin eru spennandi  Flutt verður tónverk við Þín eigin þjóðsaga Sex verkefni hafa verið valin á Eyr- arrósarlistann 2018 og eiga því möguleika á að hljóta Eyrarrósina í ár en hún er viðurkenning sem ár- lega er veitt framúrskarandi menn- ingarverkefni utan höfuðborgar- svæðisins. Á listanum eru tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður á Ísafirði, al- þjóðlega kvikmyndahátíðin Norðanáttin (Nothern Wave) í Snæ- fellsbæ, alþjóðlega listahátíðin Ferskir vindar í Garði, LungA skól- inn á Seyðisfirði, samtímalistasýn- ingin Rúllandi snjóbolti á Djúpa- vogi og Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda á Patreksfirði. Að verðlaununum standa í sam- einingu Byggðastofnun, Air Ice- land Connect og Listahátíð í Reykjavík og segir í tilkynningu að Eyrarrósinni sé ætlað að beina sjónum að og hvetja til menningar- legrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Alls bárust 33 umsóknir um viðurkenninguna í ár hvaðanæva af landinu. Eyrarrósinni fylgir tveggja millj- óna króna verðlaunafé og auk þess munu tvö verkefnanna hljóta 500 þúsund króna verðlaun. Eyrarrósin verður afhent 1. mars í Neskaup- stað, heimabæ þungarokkshátíðar- innar Eistnaflugs sem hlaut Eyrar- rósina í fyrra. Eliza Reid, verndari Eyrarrósarinnar, mun afhenda verðlaunin. Tilnefnd Frá listasýningunni Rúllandi snjóbolti sem er á Eyrarrósarlistanum í ár. Sex verkefni tilnefnd til Eyrarrósarinnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.