Morgunblaðið - 07.02.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.02.2018, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 2018 Undirferli á ýmislegt sam-merkt með síðustu bókOddnýjar, Ástarmeist-aranum og þessar tvær síðustu sögur hennar skera sig aft- ur frá höfundarverki hennar að því leytinu til að þær virðast ekki sjálfs- ævisögulegar á sama hátt og fyrri bækur hennar sannarlega voru. Hins vegar má finna í Undirferli þær heimspekilegu vangaveltur sem ávallt hafa einkennt verk Oddnýjar og sömuleiðis óvæntar og skemmti- legar tengingar milli goðsagna, heimspeki, tákn- fræði, trúar- bragða og hvers- dagsleikans. Hér segir frá æskuvinunum Smára og Írisi sem hittast aftur eftir áratuga að- skilnað í Surtsey þar sem bæði starfa sem vísindamenn. Þegar leið- ir skildi forðum voru þau á barmi kynþroska og nýjar tilfinningar farnar að kvikna og þær tilfinningar lifna við þegar þau hefja störf hlið við hlið. Íris, sem er vísindakona í fremstu röð, rannsakar ókunna veiru sem fundist hefur á eyjunni og er teymi vísindafólks komið þangað að vinna með henni. Smári gengur í hópinn en vinnur jafnframt að tæki sem á að geta svarað flókn- um spurningum um manneskjuna og vegferð hennar, nokkurs konar áttavita í lífsins ólgusjó. Inn í sög- una blandast Aron, fyrrverandi eig- inmaður Írisar, en honum hugnast ekki samband Írisar og Smára og þegar bókin hefst sitja þau síðast- nefndu í yfirheyrslu hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, sökuð um óljós- an glæp sem tengist veirunni og tæki Smára. Hér fléttast saman rannsókn á „glæpnum“, viðkvæmu lífi Surtseyjar og síðast en ekki síst á eðli mannsins. Bókin er öll í formi játninga, ann- ars vegar hjá lögreglunni í Vest- mannaeyjum og hins vegar hjá óskilgreindum sálgæsluaðila í Reykjavík. Íris og Smári sitja bæði fyrir svörum, hvort í sínu lagi og fær lesandinn söguna í gegnum frá- sagnir þeirra. Þau eru bæði hisp- urslaus og opin, fara langt út fyrir efnið, tengja saman ótrúlegustu at- riði og eru óvenjulegir viðmælendur en um leið verða persónur þeirra ansi keimlíkar og trúverðugleikinn geldur að einhverju leyti fyrir. Sakamálið sem er yfirskin yfir- heyrslunnar sem þau eru kölluð til heldur tæpast vatni og aðstæður þeirra skötuhjúa verða sífellt meira ósannfærandi en að lokum sleppir höfundur jörðinni og tilraunum til raunsæis og leyfir táknmyndunum að taka yfir og það verður í raun ákveðinn léttir fyrir lesandann sem getur þá leyft sér að hrífast með vangaveltunum án þess að reyna að negla atburðarásina og persónur við íslenskan raunveruleika. Oddný leitar víða fanga, hér eru tekin fyrir málefni á borð við ofbeldi og valdníðslu í samböndum, sem og á vinnustað, valdapýramídar sam- félagsins settir undir kastljós og tengdir hinu erfiða sambandi mannsins við náttúruna, stórfyrir- tækja við náttúruna og manneskj- unnar við sjálfa sig. Hvernig getum við leitast við að verða heilar mann- eskjur, hvernig getum við þjálfað okkar eigin innri áttavita til að taka réttar ákvarðanir þegar við trekk í trekk föllum fyrir þeim fagurgala sem völd og peningar og um leið of- beldi og yfirgangssemi syngja okkur? Tækið sem Smári vinnur að, lífs-áttavitinn, sem gæti bætt líf mannkyns en er mögulega hægt að nota til illvirkja, er gömul saga og ný í mannkynssögunni, allt gott er hægt að nota til ills ef það kemst í rangar hendur – en hvaða hendur eru rangar og hver metur það? Veiran sem Íris rannsakar er sömuleiðis flókið fyrirbæri sem hefði verið áhugavert að fylgja bet- ur úr hlaði – stafar henni hætta af umhverfinu eða stafar umhverfinu hætta af henni? Í hinu óljósa glæpa- máli liggur fyrir grunur um að ann- ars vegar hafi tæki Smára drepið veiruna og hins vegar að Sara kona Arons hafi veikst af veirunni en þær vangaveltur fjara dálítið út. Hitt er líka afskaplega áhugavert að vís- indasamfélagið skilgreinir veirur ekki sem lifandi verur (eins og Íris og Smári nefna í yfirheyrslunum) og kallar sú niðurstaða í sjálfu sér á margar spurningar um hvernig líf sé skilgreint. Oddný fléttar saman margs kon- ar táknum og vísanir eru fjöl- margar. Grasafræði spilar hér þó nokkra rullu eins og nöfnin Íris og Smári eru til vitnis um og sömuleið- is nöfn Arons og Söru sem eru sprottin úr gyðingdómi og bera með sér merkingu æðstupresta, þeirra sem leiða söfnuðinn. Í upphafi heillar Aron bæði Írisi og Smára en reynist svo vera yfirgangssamur ofbeldismaður. Oddný veltir upp áhugaverðum spurningum um af- stöðu okkar til valds og valdleysis og tengir þær við heiðni og kristni og þá guði og goð sem hafa fylgt okkur gegnum söguna. Er rétt- lætanlegt að mæta ofbeldi með of- beldi eða er réttara að bjóða hinn vangann? Sett í samhengi við heim- ilisofbeldi verða svörin flóknari en í fyrstu virðist. Umhverfismál og náttúruvernd brenna augljóslega á höfundinum og það er áhugavert hvernig hið við- kvæma lífríki Surtseyjar verður ímynd síðasta ósnortna landslagsins á jörðinni. Rannsóknir Írisar eru heillandi en bara af því að lesandinn treystir Írisi til þess að eyðileggja ekkert, um leið og stórfyrirtækin eru komin í málið hverfur traustið fyrir vissu um að virðing muni víkja fyrir yfirgangi. Það hefði þó mátt setja spurningarmerki við traustið sem lesandinn á að bera til Írisar, getum við rannsakað án þess að spilla og hvar liggur þá sú lína? Í dálítið fyrirsjáanlegum en þó áhugaverðum gjörningi rennur svo Aron, fyrrverandi maður Írisar, saman við stórfyrirtækin og eins og hann eyðilagði samband þeirra ætl- ar hann að eyðileggja lífríki Surts- eyjar. Yfirgangur og vanvirðing hafa alls staðar sama eyðileggingar- mátt, hvort sem er í náttúrunni eða mannshjartanu. Hér eins og í Ástarmeistaranum, sem var í sendibréfaformi, kallast frásagnarstíll Oddnýjar á við bók- menntir fyrri tíma og í raun efnis- lega líka þar sem verkið er kannski fyrst og fremst heimspekilegar vangaveltur. Í raun má tengja þessi verk alla leið til forngrískra bók- mennta þar sem tveir ræddust við og samræðurnar vörpuðu ljósi á stærstu spurningar mannlegrar til- vistar fremur en að segja trúverð- uga, persónulega sögu. Persónur Oddnýjar, eins skemmtilegt og er að hlýða á spekúlasjónir þeirra, eru nefnilega ekki að fullu af holdi og blóði. Til þess eru þær of líkar, of heimspekilegar, of fjarlægar – en það kemur ekki endilega að sök ef lesandanum tekst að týna sér í vangaveltum þeirra um vegferð manneskjunnar. Hvort sem það tekst eða ekki hljóta bókmennta- unnendur að fagna þeirri tilrauna- starfsemi með orð og efni sem Oddný Eir stendur sífellt fyrir. Sem höfundur hefur hún einstaka og ófyrirsjáanlega rödd. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vangaveltur .„Hér eins og í Ástarmeistaranum, sem var í sendibréfaformi, kallast frásagnarstíll Oddnýjar á við bókmenntir fyrri tíma og í raun efnislega líka þar sem verkið er kannski fyrst og fremst heimspekilegar vanga- veltur,“ segir meðal annars í gagnrýni um bók Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur, Undirferli, sem kom út í fyrra. Tákn og vísanir Skáldsaga Undirferli bbbnn Eftir Oddnýju Eiri Ævarsdóttur. Bjartur, 2017. Innbundin, 174 bls. MARÍANNA CLARA LÚTHERSDÓTTIR BÆKUR Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann komast í. Elly (Stóra sviðið) Mið 7/2 kl. 20:00 aukas. Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Fös 9/3 kl. 20:00 aukas. Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas. Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Fim 1/3 kl. 20:00 aukas. Sun 11/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas. Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Sun 4/3 kl. 20:00 aukas. Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Fim 8/2 kl. 20:00 13. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas. Sun 11/2 kl. 20:00 14. s Fös 16/2 kl. 20:00 16. s Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar. Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 11/2 kl. 13:00 Lokas. Allra síðasta sýning sunnudaginn 11. febrúar. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 10/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Búðu þig undir dularfullt ferðalag! Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 9/2 kl. 20:00 51. s Lau 17/2 kl. 20:00 53. s Sun 11/2 kl. 20:00 52. s Mið 21/2 kl. 20:00 54. s Draumur um eilífa ást Lóaboratoríum (Litla sviðið) Mið 7/2 kl. 20:00 6. s Lau 10/2 kl. 20:00 7. s Fim 15/2 kl. 20:00 8. s Í samvinnu við Sokkabandið. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Slá í gegn (Stóra sviðið) Mið 21/2 kl. 19:30 Fors Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Fim 22/2 kl. 19:30 Fors Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Lau 10/2 kl. 19:30 20.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 21.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Hafið (Stóra sviðið) Fös 9/2 kl. 19:30 LOKA Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika Faðirinn (Kassinn) Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Fös 23/2 kl. 19:30 13.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Fim 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 11/2 kl. 13:00 9.sýn Sun 11/2 kl. 15:00 10.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 8/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 20:00 Sun 25/2 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 22:30 Fim 1/3 kl. 20:00 Fös 9/2 kl. 22:30 Sun 18/2 kl. 21:00 Konudagur Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00 Fim 22/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 22:30 Fös 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Fim 15/2 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 22:30 Lau 3/3 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30 Lau 24/2 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.