Morgunblaðið - 07.02.2018, Blaðsíða 36
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari
og Richard Simm píanóleikari halda
tónleika í Salnum í dag kl. 12.15 og
flytja Sónötu fyrir fiðlu og píanó nr. 2
í G-dúr Op. 13 eftir Edward Grieg og
Liebesleid eftir Fritz Kreisler. Tónleik-
arnir eru hluti af verkefninu Menning
á miðviku-
dögum í menn-
ingarhúsum
Kópavogs og
er aðgangur
ókeypis.
Verk eftir Grieg og
Kreisler í Salnum
MIÐVIKUDAGUR 7. FEBRÚAR 38. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1.Telja ástæðu til að áminna ...
2.Umferðin mjakast vart áfram
3.Ingunn og Ágúst Ólafur nýtt par
4. Má ekki heita Alex
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Túba og píanó á há-
degistónleikum í HÍ
Nimrod Ron túbuleikari og Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari
flytja verk eftir Franz Strauss, Ralph
Vaughan Williams og Batya Franklakh
á fyrstu háskólatónleikum vormiss-
eris í dag kl. 12.30 í Hátíðasal Há-
skóla Íslands. Aðgangur að tónleik-
unum er ókeypis.
Málþing um ungt fólk
og bókmenntir
Málþingið Unga
fólkið og bók-
menntirnar verð-
ur haldið í dag kl.
15-17 í sal Fjöl-
brautaskólans við
Ármúla. Meðal
þeirra sem flytja
erindi er Egill Örn
Jóhannsson frá
Félagi bókaútgefenda sem spyr hvort
einhver glóra sé í útgáfu barna- og
unglingabóka og Sigrún Birna Björns-
dóttur frá Samtökum móðurmáls-
kennara sem flytur erindið „Þarf allt-
af að lesa ljóð og bækur?“ Undir lokin
fara fram hringborðsumræður.
Á fimmtudag Suðvestan 8-15 m/s og éljagangur, en bjartviðri
eystra. Frost 0 til 10 stig, minnst með suður- og austurströndinni.
Á föstudag SV-átt og víða él, einkum V-til, en vaxandi A-átt S-
lands um kvöldið og fer að snjóa þar. Frost um land allt.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í SV 10-18 með éljum um morguninn,
fyrst V-til. Léttir til NA-lands seinnipartinn og kólnar aftur.
VEÐUR
Guðmundur Þórður Guð-
mundsson tekur við karla-
landsliði Íslands í hand-
knattleik í þriðja skipti, en
frá því var greint í gær. For-
maður HSÍ sagði valið hafa
staðið á milli þess að bjóða
Guðmundi starfið eða bjóða
Geir Sveinssyni að halda
áfram. Stjórn HSÍ hafi verið
einhuga í málinu. Sænska
goðsögnin Tomas Svensson
verður markmannsþjálfari
landsliðsins. »1
Valið á milli Guð-
mundar og Geirs
„Ég sá þennan möguleika vel fyrir
mér, að komast á Vetrarólympíuleik-
ana, í byrjun tímabilsins eftir að mér
gekk vel á móti í Finnlandi, og nú er
ég mættur til Pyeongchang. Ég veit
ekki hversu langt ég get náð en ég
vonast til þess að geta komist í hóp
30 bestu og keppt þar með í 30
manna úrslitum,“ segir
Ísak Pedersen, sem
keppir í sprettgöngu
fyrir Íslands hönd á
Vetrarólympíuleik-
unum. » 1
Ísak stefnir á þrjátíu
manna úrslit í Kóreu
Tólf ár eru að verða liðin síðan glæstu
gullskeiði í sögu kvennaliðs ÍBV í
handbolta lauk. Miðað við spila-
mennsku liðsins í fyrstu leikjunum
eftir jólafrí gæti verið farið að stytt-
ast verulega í næstu gullverðlaun
þess þó að eflaust sé of snemmt að
segja til um það. Ítarlega er fjallað
um lið Eyjakvenna í opnu íþrótta-
blaðsins í dag. »2-3
Farið að styttast í
verðlaun hjá ÍBV?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fullt var út úr dyrum í sal Kex hos-
tels í fyrrakvöld, þegar samprjón á
sjalinu Quality Street eftir Hildi Ýri
Ísberg, framhalds- og háskólakenn-
ara, hófst formlega. Auk þess kom
áhugafólk um prjónamennsku, mest
konur, saman á ýmsum stöðum úti á
landi og jafnvel í útlöndum í sama til-
gangi, en samprjónið er jafnframt
samkeppni.
Eftir að Hildur hafði hannað upp-
skriftina hafði hún samband við kon-
urnar sem standa að fésbókarsíðunni
Svöl sjöl og spurði hvort þær vildu
taka uppskriftina inn í samprjón,
enda reyndar á því sviði. „Þær tóku
vel í það og þátttakan hefur farið
fram úr björtustu vonum, en rúmlega
600 manns hafa keypt uppskriftina og
skráð sig í samkeppnina,“ segir hún.
Samprjón felst í því að margir
prjóna sömu uppskrift saman og deila
myndum sín á milli, einkum á netinu.
Hildur segir að vegna þess hve mikil
stemning hafi verið fyrir þessu sam-
prjóni hafi hún ákveðið að kanna hug
á samverustund, þegar samkeppnin
færi af stað. „Það var mikil stemning
fyrir því að halda partí og því fékk ég
salinn hjá Kex hosteli.“
Prjónafólkið hittist víða annars
staðar, meðal annars á Akureyri, Ísa-
firði, Akranesi, Selfossi, Reykjanes-
bæ og í Kaupmannahöfn og var í sam-
bandi á Snapchat. „Þetta var mjög
gaman, um 80 manns fylltu salinn á
Kex hosteli og þessi mikli áhugi kem-
ur okkur skemmtilega á óvart,“ segir
Hildur.
Litríkt og skemmtilegt
Engin ein skýring er á þessum
áhuga á prjónaskap. Hildur nefnir að
margt prjónafólk sé nýbúið að prjóna
jólagjafir og hugsi sem svo að það
þurfi líka að gera eitthvað fyrir sig.
„Það varð mikil aukning í prjónaskap
í hruninu, margir hafa tekið fram
prjóna og prjónabúðum hefur
fjölgað,“ segir hún. Samprjón hafi
notið vinsælda og garn í Quality
Street-sjölin sem Hafdís Ósk Gísla-
dóttir, eigandi Vivid Wool, hafi tekið
saman í pakka hafi selst upp þrisvar.
Sjálf byrjaði Hildur að prjóna þeg-
ar hún var sex ára. „Amma mín
kenndi mér að prjóna og ég hef alltaf
prjónað af og til síðan,“ segir hún.
Bætir við að undanfarin 12 ár hafi
prjónaskapur verið helsta áhuga-
málið og skemmtilegast sé að prjóna
það sem hún fáist við hverju sinni.
Hún bendir á að sjalið sé mjög litríkt.
„Það er oft allt frekar grátt á þessum
árstíma og því er gott að hafa eitt-
hvað litríkt fyrir framan sig á meðan
maður bíður eftir vorinu,“ segir hún.
Nokkrar konur prjónuðu prufusjal
og eru myndir af þeim komnar inn á
fyrrnefnda síðu. Hildur segir að nöfn
þeirra sem ljúka við sjalið fyrir
þriðjudaginn 3. apríl fari í pott og
verði dregið um vinninga eins og til
dæmis garn, prjónatöskur og fleira.
Samprjón á sjali vinsælt
Yfir 600 manns
hafa keypt upp-
skrift eftir Hildi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samprjón Fullt var út úr dyrum á Kex hosteli, þegar samkeppnin hófst formlega. Hildur Ýr er fremst.
Með prufur Frá vinstri: Guðmunda D. Guðmundsdóttir, Birna V. Björns-
dóttir, Aistë Zubkauskaitë, Sigurlaug E. Þórhallsdóttir og Hildur Ýr Ísberg.
Ljósmynd/Linda Björk Eiríksdóttir