Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 9

Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018 9VIÐTAL „Það er neyðarúrræði sem ríkissáttasemjari hefur yfir að ráða. Þá stígur embættið beinlínis inn í deiluna með tillögu sem lögð er fyrir þá sem vinna eftir kjarasamningum, þ.e. félagsmenn sjálfa og launagreiðandann beint. Miðlunar- tillagan þýðir því að samninganefndirnar stíga í reynd til hliðar og ríkissáttasemjari leggur fram lausn sem borin er beint undir þá sem verið er að semja fyrir.“ Bryndís segir að þessu úrræði megi einungis beita að höfðu samráði við samninganefndir í deilunni og sé því ekki beitt í óþökk þeirra. „Persónulega hef ég tvisvar beitt þessu úr- ræði. Annars vegar var það í harðri deilu sem kom upp í álverinu í Straumsvík 2016 og í hinu tilvikinu var það hjá tónlistarskólunum og Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum árið 2017. Báðar þessar tillögur voru samþykktar og það er auðvitað áskorunin sem ríkissáttasemjari stendur frammi fyrir. Ég myndi aldrei leggja til- lögu af þessu tagi fram nema ég teldi líkur til þess að hún fengist samþykkt.“ Sambærileg embætti Ríkissáttasemjara eru til staðar í nágrannalöndunum en verkfærin sem embættunum eru tryggð eru mismikil. Bryndís segir að færa mætti fleiri slík verkfæri í hendur embættisins hér á landi en mikilvægt er að sátt ríki milli aðila á vinnumarkaði um þau úrræði. Ella hafi þau litla þýðingu. „Vissulega er sterkasta verkfærið sjálf sátta- miðlunin og hún leiðir oftast til farsællar niður- stöðu. En það eru fleiri verkfæri til. Í hinum löndunum á Norðurlöndum hafa kollegar mínir heimild til að fresta verkföllum ef sýnt er að lausn deilunnar sé í sjónmáli. Það er verkfæri sem gæti verið skynsamlegt ef sáttasemjari metur það svo að málin séu að þokast í rétta átt. Annars staðar á Norðurlöndum er hægt að fresta verkfalli í allt að fimm vikur. Þá geta sáttasemj- arar þar gripið til fleiri úrræða til að þoka málum áfram, en þau eru í reynd til stuðnings því samningalíkani sem aðilar á vinnumarkaði hafa komið sé saman um.“ Svipar í eðli sínu til forsjárdeilna Bryndís segir að það sé hins vegar ekki aðeins markmið starfa hennar að tryggja undirritun kjarasamninga. Það sé ekki síður mikilvægt að tryggja að samningar á hverjum tíma stuðli í reynd að sátt á milli samningsaðila. „Kjarasamningagerðin er mikilvæg að því leyti að hún varðar gríðarlega mikilvæga efnahags- lega hagsmuni. En hún hefur líka mjög mikið að segja um sáttina almennt í samfélaginu. Vinnu- markaðurinn er svo mikilvægur og stór þáttur okkar samfélags og í hagkerfinu í heild. Ég hef stundum sagt að kjarasamningsgerð sé ekki ósvipuð úrlausn forsjárdeilna, það er ekki nóg að semja, það þarf að semja til góðrar sáttar. Samn- ingssambandið er eins og barnið, það verður áfram til staðar og það er óhjákvæmilegt að samningsaðilar hittist aftur. Þess vegna skiptir miklu máli að allir gangi sem sáttastir frá samn- ingsborðinu á hverjum tíma.“ Samningstíminn sé ein órofa heild Liður í þessu er að sögn Bryndísar að líta á samningagerðina og samningstímann sem órofa heild. „Það koma upp mál meðan samningur er í gildi sem vera kann að þurfi að leysa og þá er mikil- vægt að bíða ekki með slíkt þar til samningstím- inn er út runninn. Betra er að halda samtalinu lif- andi á samningstímanum og leysa hnúta jafn- óðum og þeir koma upp. Það ætti jafnframt að vera markmið allra sem að kjarasamningagerð koma að nýr samningur sé gerður áður en sá gamli rennur út. Hér á landi er það sjaldgæft og algengt að mánuðir líði sem samningsaðilar séu samningslausir. Það er til marks um að við séum að vinna hlutina vitlaust. Ég bar þetta saman hér og í Noregi í síðustu kjarasamningalotu og sam- kvæmt okkar bestu yfirsýn var það þannig hér á landi að hlutfallið þar sem samningur tók við af samningi var 0% hér, á meðan hlutfallið var 80% í Noregi. Það er sláandi munur. Það þurfa allir sem koma að samningagerðinni hér á landi að taka á þessu.“ Bryndís segir að fyrrnefndar tölur segi sína sögu og að þær gefi tilefni fyrir alla sem málið varðar að skoða hvað sé hægt að gera öðruvísi en nú er gert, ekki síst með það að markmiði að standa vörð um kaupmátt launafólks og stöðugleika, bæði efnahags- legan og félagslegan. Bætt umgjörð kjara- samninga hefur lengi verið til umræðu á borði heildarsamtaka á vinnumarkaði og einnig hafa stjórnvöld sýnt því mikinn áhuga. Mikilvægt að tölfræði um laun og launaþróun sé í góðu horfi Bryndís bendir á að nýleg umræða um launaupplýsingar og áreiðanleika þeirra sé ein birtingarmynd þess vantrausts sem grafið hafi um sig á vinnumarkaðnum á síð- ustu árum „Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að það ríki sátt um þær launaupplýsingar sem lagðar eru til grundvallar í samningagerð- inni, sem því miður er ekki reyndin hér á landi. Í Noregi hefur það verklag verið á þessu að hagsmunaaðilar á markaðnum koma saman á vettvangi nefndar sem mótar aðferðafræðina við vinnslu upplýsinganna. Ég held að slíkt verklag geti bæði aukið traust milli aðila en einnig tryggt að sátt sé um gögnin sem verið er að vinna með. Í Svíþjóð er þessi vinna á forræði ríkis- sáttasemjara og það hefur komið ágætlega út en það er ekki aðalatriðið í mínum huga hvar þetta er vistað, miklu frekar það að all- ir hafi sína rödd við borðið.“ Hún segir að ágreiningurinn um launa- upplýsingarnar séu einnig angi af erfiðum deilum sem komið hafi upp í kringum ákvarðanir kjararáðs. „Þær hafa oft valdið ólgu á vinnumark- aðnum og við þurfum að ná meiri sátt um verklag við slíkar ákvarðanir. Ákvarðanir um laun þeirra sem ekki hafa samningsrétt eru ekki að þvælast svona fyrir mönnum annars staðar á Norðurlöndunum og svo virðist sem meiri sátt sé um verklagið sem slíkt. Þetta er hlutur sem stjórnvöld geta tekið á og ég get ekki betur séð en að það sé góður skilningur á þessu hjá ríkisstjórn- inni.“ Ögurstund framundan á markaðnum Þessa stundina er fremur rólegt yfir skrifstofu ríkissáttasemjara en Bryndís gerir sér augljóslega grein fyrir því að sú staða getur breyst fljótt. Fyrir lok þessa mánaðar mun ráðast hvort forsendur kjara- samninga á almenna markaðnum haldi og ef niðurstaðan verður neikvæð eru samningar lausir. En jafnvel þótt forsendur standist er stutt í að samningar losni. Í desember næst- komandi losna um 80 samningar og í mars 2019 eru þeir um 135 talsins. „Ástandið núna er viðkvæmt og það skiptir miklu máli að vinna vel út stöðunni. Ég hef trú á því að allir séu allir af vilja gerðir til þess að þoka hlutum í rétta átt.“ Bryndís segir að þegar stóru loturnar standi fyrir dyrum sé mögulegt að viðhafa annað verklag en gert er í dag og þar leitar hún í smiðju ríkissáttasemjara í nágranna- löndunum. „Þessar stóru lotur eru mikil áskorun fyrir embættið. Þegar viðlíka aðstæður hafa komið upp hefur ríkissáttasemjari haft einn mann sér til aðstoðar sem aðstoðarsátta- semjara í hlutastarfi. Ég hef áhuga á að gera þetta meira í takt við það sem gert er annars staðar á Norðurlöndum. Þá eru fleiri einstaklingar sem koma inn þegar mikið gengur á og taka að sér sáttamiðlun í ein- staka samningum. Þá getur það jafnvel ver- ið þannig að ég sitji við borðið í öllum samn- ingunum ásamt viðkomandi en að hann verkstýri hlutunum frá degi til dags á þeim vettvangi. Markmiðið er að auka skilvirkni embættisins og bæta sáttamiðlunina. Þetta eru hlutir sem við erum að skoða og þróa áfram jafnt og þétt.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg klagi við gerð kjarasamninga Meðal þess sem Bryndís hefur lagt áherslu á í embætti er að standa fyrir fræðslu hjá samninga- nefndunum sem koma að kjarasamningagerðinni. „Það eru um 300 manns í hverri lotu sem koma að þessari vinnu. Þetta er fjölbreyttur hópur með ólíkan bakgrunn. Oft er þetta sama fólkið sem kemur aftur og aftur að verkefninu og það er mikilvægt. Í bland við eðlilega endurnýjun er mikilvægt að þekkingin tapist ekki á milli samninga. En ég hef litið svo á að embætti Ríkissáttasemjara geti stuðlað að aukinni fræðslu og þar með auknum skilningi milli samningsaðila.“ Af þessum sökum hefur embættið ákveðið að efna í ár til námstefnu sem Bryndís segir að vonir standi til að verði haldin með reglubundnu millibili. „Nú í maí og einnig í haust stendur embættið fyrir námstefnu af þessu tagi og þær eru ætlaðar öllum þeim sem koma að samningagerðinni hér á landi. Alþjóðavinnumálastofnunin mælir með því að þetta sé gert og þarna ætlum við að fara yfir fjölmörg atriði sem skipta máli við undirbún- ing kjarasamningagerðar. Við teljum að þetta sé eitthvað sem bæði geti nýst reyndu fólki og ný- liðum. Þarna gefst líka tækifæri fyrir fólk að hittast utan eiginlegrar samningagerðar og það get- ur haft jákvæð áhrif.“ Fræðslan er skipulögð í samráði við heildarsamtökin á vinnumarkaði og embættið hefur ráðið til sín verkefnastjóra sem heldur utan um hana. Hún segir að ef vel takist til geti námstefnur af þessu tagi orðið sjálfsagður hluti af kjarasamningagerðinni í landinu. „Svipað námskeið var haldið við góðan róm samningafólks í tíð Ásmundar Stefánssonar en vonandi getur þetta orðið fastur liður í framtíðinni.“ Fræðslan getur skipt sköpum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.