Morgunblaðið - 15.02.2018, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018 11FRÉTTIR
Af síðum
Í kunnri arabískri þjóðsögu segir frá töfrahelli
sem hefur að geyma mikil auðævi sem bíða þess
sem er nógu snjall til að finna þau. Hetjan sem
sagan er nefnd eftir finnur fjársjóðinn, sölsar
hann undir sig og fjölskyldu sína, og lætur sig litlu
varða hvaðan auðævin komu. Á sama hátt vill kín-
verski netverslunarrisinn Alibaba flytja verðmæti
sem leynast í einu dimmu skoti innan samsteyp-
unnar, út á hinn almenna markað, og leysa þannig
milljarða dala úr álögum. Hvort sagan fær farsæl-
an endi veltur á því hvað hluthöfum finnst um þá
óvenjulegu leið sem Alibaba vill fara til að fá sínu fram.
Það hefur vissulega verið mikið „abrakadabra“ í því hvernig hluta-
bréfaverð Alibaba hefur þróast. Markaðsvirði fyrirtækisins hefur þre-
faldast á tveimur árum, sem einkum má rekja til kjarnastarfsemi félags-
ins á sviði netverslunar. Sú eining myndar 88% af tekjum félagsins og
skilar nærri 50 sentum í rekstrarhagnað fyrir hvern dollar af veltu. Á
þriðja fjórðungi rekstrarársins, frá október til desember, jókst hagnaður
um 29% miðað við sama tímabil árið á undan, þó svo að framlegðin hafi
dregist ögn saman.
Alibaba hefur grafið upp dýrmætan gimstein í hlutdeildarfélaginu Ant
Financial sem annast miðlun greiðslna á netinu. Einu sinni var fyrir-
tækið undir stjórn Jack Ma, stofnanda Alibaba, og deildi 37% af hagnaði
sínum (á rekstrarárinu sem lauk í mars 2017) með samsteypunni. Ali-
baba hefur tilkynnt að félagið muni senn hætta að skipta hagnaðinum
með þessum hætti og hefur galdrað til sín þriðjungs eignarhlut í Ant. Og
samt hafa engir peningar skipt um hendur. Er hér um að ræða rekstrar-
einingu sem lagði 42% minna af mörkum til heildarhagnaðar samsteyp-
unnar á fyrstu þremur ársfjórðungum yfirstandandi rekstrarárs, og var
skuldinni skellt á mikil útgjöld vegna markaðsmála.
Fréttir mánudagsins benda til þess að enn megi finna falda fjársjóði.
Ant vill ráðast í 5 milljarða dala fjármögnunarlotu sem myndi verðmeta
félagið á allt að 120 milljarða dala. Hlutafjárútboð gæti fylgt í kjölfarið.
Með því að kalla fram töfraorðið PayPal þá lækkar félagið í virði. Ef við
notum hagnaðartölur Ant fram til þessa og beitum sömu margföldurum
og fyrir bandarísk fyrirtæki sem sérhæfa sig í greiðslum yfir netið, þá
væri Ant 80 milljarða dala virði. Að tvöfalda það verðmat, fyrir fyrirtæki
sem hefur misst töluvert af glansinum, er ævintýri líkast.
Ali Baba vissi hvaða galdraþulu hann þurfti að fara með til að komast
yfir fjársjóðinn. En sú saga líkist æ meira sögunni hér að ofan:
hún er lyginni líkust.
LEX
AFP
Alibaba/Ant Financi-
al: Falinn fjársjóður
Tímabili æ digrari sjóða virðist vera
að ljúka í ensku úrvalsdeildinni, því í
ljós hefur komið að sjónvarpsstöðv-
arnar munu borga hundruðum millj-
óna punda minna en áður fyrir rétt-
inn til að sýna frá helstu knatt-
spyrnuleikjum á Bretlandseyjum.
Eftir útboð sem stóð í fimm daga
hafa Sky og BT fengið réttinn til að
halda áfram að sýna beint frá leikj-
um. Forsvarsmenn úrvalsdeildar-
innar neyddust hins vegar til að taka
þá óvenjulegu ákvörðun að bíða með
úthlutun útsendinga á nokkrum
leikjum og skýrðu það með því að
áfram yrði leitað tilboða.
Útboð á 200 leikjum
Í útboðinu gátu sjónvarpsstöðvar
boðið í 200 af þeim 380 leikjum sem
spilaðir verða á hverju leiktímabili
frá 2019 til 2022. Þessum 200 leikj-
um hefur verið skipt niður í sjö
pakka og má enginn einn kaupandi
fá fleiri en fimm pakka í sinn hlut.
Á þriðjudagskvöld hafði Sky
tryggt sér fjóra pakka en BT aðeins
einn. Forsvarsmenn úrvalsdeildar-
innar sögðust á þeim tímapunkti
hafa aflað 4,464 milljarða punda
fyrir sýningarréttinn, sem er tölu-
vert lægri fjárhæð en 5,1 milljarður
sem greiddur var fyrir sýningar á
leikjunum öllum í síðasta uppboði.
Forsvarsmenn úrvalsdeildarinnar
segja að pakkarnir tveir sem eftir
standa, og eru ætlaðir sjónvarps-
stöðvum sem vilja sýna úrval leikja á
kvöldin á virkum dögum og á frídög-
um svo að áhorfendur hafi val um
hvaða leiki þeir horfa á, séu „enn
óseldir en fjöldi aðila hefur sýnt
þeim áhuga“.
Aðilar sem tengjast uppboðinu
segja að úrvalsdeildin hefði ekki selt
síðustu pakkana því ekki tókst að fá
lágmarksverð fyrir þá.
Leikurinn á 9,3 milljónir punda
Útlit er fyrir að niðurstaða upp-
boðsins verði töluvert högg fyrir
Richard Scudamore, starfandi
stjórnarformann úrvalsdeildarinnar.
Í þá hartnær tvo áratugi sem hann
hefur verið við stjórnvölinn hefur
honum tekist að tryggja deildinni æ
hærri útsendingartekjur.
Á nýliðnu útboði tókst Sky að
lækka töluvert það verð sem stöðin
borgar fyrir hvern leik, úr 11,05
milljónum punda niður í 9,3 milljónir
á leik, sem er 16% lækkun. Heildar-
útgjöld stöðvarinnar fyrir hvert leik-
tímabil hafa lækkað um 199 milljón
pund, niður í 1,2 milljarða punda,
þrátt fyrir að þeim leikjum sem
stöðin fær að sýna fjölgi úr 126 upp í
128.
„Við höldum áfram að fjárfesta í
sjónvarpsefni sem viðskiptavinir
okkar hafa áhuga á, og sem fellur vel
að þeirri stefnu að breikka úrval
okkar,“ segir Stephen van Rooyen,
forstjóri Sky í Bretlandi.
Útsendingarpakkinn sem BT
tryggði sér innifelur sýningar frá
leikjum sem hefjast snemma á laug-
ardögum og fá yfirleitt minna áhorf
en aðrir helgarleikir. BT borgar 295
milljónir fyrir 32 leiki á hverri leik-
tíð, en borgar í dag 320 milljónir
punda fyrir útsendingar snemma á
laugardagskvöldum.
Skiptist á 20 fótboltafélög
Bróðurparti þeirra tekna sem
deildin aflar með sölu útsendingar-
réttinda er skipt á milli þeirra 20
knattspyrnufélaga er eru í deildinni.
Oft hafa peningarnir verið notaðir til
Tekjur úrvalsdeildarinnar dragast saman
Eftir Murad Ahmed og
Nic Fildes í London
Breskar sjónvarpsstöðvar
munu borga hundruðum
milljóna punda minna en
áður fyrir réttinn til að
sýna frá ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu,
sem mun þýða minni
tekjur fyrir félögin.
AFP
Kasper Schmeichel og Wayne Rooney berjast um knöttinn en það hefur
heldur dregið úr áhuga sjónvarpsstöðva á að berjast um enska boltann.
að greiða himinhá félagaskiptagjöld,
en liðin hafa einnig greitt leik-
mönnum sínum stjörnulaun til að
reyna að laða marga hæfileika-
ríkustu knattspyrnumenn heims að
ensku deildinni.
En það virðist ekki mikil spenna í
samkeppninni á milli tveggja
stærstu tilboðsgjafanna, Sky og BT,
og hefur það leitt til dauflegs útboðs
í þessari nýjustu sölulotu á útsend-
ingarréttindum innanlands.
Í aðdraganda útboðsins sagði BT
að áhugi stöðvarinnar á beinum
útsendingum frá íþróttaviðburðum
hefði minnkað og að þeim þætti
ásættanlegt að vera „öflugir í öðru
sæti“ á eftir Sky.
Í desember hvarf líka annar
sterkur hvati fyrir stöðvarnar tvær
til að berjast af hörku um útsending-
arréttinn, þegar þær gerðu gagn-
kvæman útsendingarsamning sín á
milli, svo að BT getur boðið upp á
Sky Sports í sjónvarpspökkum sín-
um frá og með 2019 og Sky selt
áskrifendum sínum BT Sport.
Scudamore fundaði með tækni-
fyrirtækjum á borð við Amazon og
Facebook í þeirri von að draga fyrir-
tækin í Kísildal inn í útboðið. Hann
virðist ekki hafa átt erindi sem erf-
iði, þó svo að úrvalsdeildin hafi ekki
upplýst hvaða fyrirtæki það eru sem
enn eru þátttakendur í útboðs-
ferlinu.