Morgunblaðið - 15.02.2018, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2018SJÓNARHÓLL
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
EGGERT
Í hvaða tónlistarskóla ert þú? spurði ég son vinkonuminnar þegar hann hafði spilað þetta fína lag fyrirokkur á gítarinn. Svarið kom mér á óvart. „Ég er
ekkert í neinum skóla – ég lærði þetta af YouTube.“
Á mig kom hálfgert hik. Er virkilega hægt að læra
að spila á gítar í gegnum YouTube? Gamlar minn-
ingar úr tónlistarskóla þar sem ég sótti píanótíma
helltust yfir mig. Hefði verið hægt að læra þetta
öðruvísi?
Móðir mín leitaðist við að fá sérhvert okkar syst-
kinanna til að læra á hljóðfæri. Systir mín hóf píanó-
leik en entist ekki lengi, bróðir
minn gerði slíkt hið sama og
hætti eftir nokkur ár. Í syst-
kinahópnum hélt ég þetta
lengst út, og þótt píanónámið
hafi skilað mér ánægju og gleði
þá var það ekki alltaf jafn
skemmtilegt. Og ekki vantaði
heldur umstangið: fara upp í
tónlistarskóla, bíða eftir að
röðin kæmi að mér, mæta í
tónfræðitíma og auka æfinga-
tíma fyrir próf og tónleika,
vera með í maganum yfir því
að hafa ekki æft það sem ég átti að æfa og þurfa að
spila allt eftir nótum.
Það var nánast enginn möguleiki að velja sér nýjan
kennara ef manni líkaði ekki nógu vel við þann sem
maður hafði. Maður hafði ekki mikið um lagavalið að
segja og þurfti að fylgja ákveðinni námskrá til að ná
á næsta stig. Það var ekki hægt að fresta tíma eða
bæta við tímann ef þannig lá á manni. Þar að auki
reyndu þessir tímar töluvert á buddu foreldranna –
en tónlistarnám á Íslandi er ekki gefið.
Ólíklegt er að Víkingur Heiðar hefði náð sama ár-
angri við það eitt að fylgjast með YouTube-kennslu
en eflaust eru fleiri sem nú geta látið eigin áhuga
ráða framgangi í námi og ef marka má gítarspil unga
drengsins er óþarft að efast um að sú kennsla geti
verið gagnleg.
En það er fleira en áhugamál sem lærast af net-
inu. Fyrir skömmu ræddi ég við nokkra háskóla-
nemendur í framhaldsnámi. Þeir sögðu mér að al-
gengt væri að nemendur létu það algjörlega eiga
sig að fjárfesta í dýrum og þungum námsbókum
sem kennararnir setja fyrir. Margir finna einfald-
lega fyrirlestra úr öðrum skólum og greinar á net-
inu sem styðja ekki síður við námið heldur en það
sem lagt er fyrir af kennurunum. Og ég fékk þetta
staðfest hjá kennurunum sjálfum. Þeir eru margir
fullkomlega sáttir við að nemendur leiti sér upplýs-
inga annars staðar frá, ef þeir
tileinka sér efnið og koma því
frá sér á þann hátt sem þeir
meta fullnægjandi.
Breytingar á því hvernig
fólk nálgast námsefni hafa
þegar átt sér stað. Það er
mikilvægt að þau yfirvöld
sem bera ábyrgð á menntun
hér á landi skapi umhverfi
sem tekur tillit til breyttrar
hegðunar og nálgunar unga
fólksins að fræðslu og lær-
dómi. Með nánast allt
fræðsluefni heimsins við höndina er mögulegt að
læra hvað sem er, hvenær sem er og hvar sem er.
Er óskhyggja að halda að við getum tamið ungt
fólk á sama hátt og fyrir tilkomu internetsins og
snjalltækja?
Gera á sem flestar ólíkar námsleiðir mögulegar
þar sem allir geta fundið sína hillu, fengið þekk-
ingu og færni metna – blómstrað og menntað sig
til tækifæra. Skynsamleg stefnumótun í mennta-
málum er hagsmunamál sem öll þjóðin á sameig-
inlegt. Í því felst ekki aðeins lykillinn að efnahags-
legri velsæld þjóðarinnar heldur líka allri
menningu og lífsgæðum til lengri tíma litið. Þess
vegna þurfum við öll að hafa augun opin fyrir því
að tryggja að skólakerfið á Íslandi þróist í takt við
alla þá möguleika sem ný tækni býður upp á.
VIÐSKIPTALÍF
Ásta Sigríður Fjeldsted,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
„Ég lærði þetta
af Youtube“
”
Það er mikilvægt að þau
yfirvöld sem bera
ábyrgð á menntun hér á
landi skapi umhverfi
sem tekur tillit til breyttr-
ar hegðunar og nálg-
unar unga fólksins að
fræðslu og lærdómi.
FORRITIÐ
Ekki leikur á því nokkur vafi að lífs-
hlaup margra lesenda Viðskipta-
Moggans væri efni í safaríka sjálfs-
ævisögu. Sumir luma á leyndar-
málum úr innsta hring, á meðan
aðrir hafa spennandi sögur að segja
af sigrum og ósigrum inni á
stjórnarfundum og utan.
En þeir sem reynt hafa vita að það
að skrifa sjálfsævisögu er hægara
sagt en gert. Bæði er erfitt að vita
hvar á að byrja og svo er hreinlega
heilmikið verk að koma öllu skil-
merkilega frá sér.
Forritið Babblestash
(www.babblestash.com) kemur til
bjargar, en þar er á ferð forrit sem
leiðir notandann áreynslulaust í
gegnum ævisöguskrifin.
Babblestash spyr notandann ítar-
legra spurninga sem draga fram að-
alatriði lífshlaupsins og notar radd-
greiningartækni Apple til að skrifa
upp eftir notandanum svo hann þarf
varla að snerta lyklaborðið.
Þegar handritið liggur fyrir, í
grófum dráttum, má láta prófarka-
lesara og ritstjóra af holdi og blóði
fara yfir textann og lagfæra og getur
Babblestash látið gefa verkið út í
rafbókarformi. Er þá ekki annað eft-
ir en að senda stórvirkið á helstu
bókaútgáfur og sjá hverjar viðtök-
urnar verða. Þarf varla að taka fram
að Babblestash er aðeins í boði á
ensku. ai@mbl.is
Svo sjálfsævisagan
skrifi sig nánast sjálf