Morgunblaðið - 23.02.2018, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018
Sími 775 1832 | Happie furniture - húsgögn
Sérsmíðuð húsgögn
fyrir heimili og fyrirtæki
Happie furniture
Draumasmíði
H
luti af því að þykja vænt um dauð-
lega hluti er sagan á bakvið þá.
Stundum verða þessar sögur til án
þess að maður hafi nokkuð með það
að gera en stundum er líka hægt að búa þær
til og yfirleitt er skemmtilegast þegar sög-
urnar eru sem skrýtnastar. Eftir því sem ég
eldist hefur mér þótt mikilvægara að eiga
frekar fallegri hluti en fleiri. Ég er búinn að
losa mig við allskonar drasl sem tók bara
pláss, halda eftir því sem mér þykir virkilega
vænt um og svo því sem ég hef í alvörunni
not fyrir. Það er mjög frelsandi að slíta sig
frá dóti sem skiptir mann í raun og veru
engu máli, sérstaklega ef maður hélt það fyr-
ir.
Annað sem aldurinn hefur fært mér er
áhuginn á að hafa huggulegt í kringum mig.
Ég er sóði í grunninn og var lengst af ná-
kvæmlega sama hvort gólfið hafði verið ryk-
sugað þennan mánuðinn eða ekki, hvort leir-
tauið lá í vaskinum eða hvað öðru fólki
fannst. En á stuttum tíma hef ég eignast
nýtt heimili og tvö börn og með því hefur
orðið til ný rödd í höfðinu á mér sem beinlín-
is öskrar á mig að hafa umhverfið snyrtilegt.
Nú er svo komið að ég ræsi helst ekki Pla-
yStation-vélina á kvöldin fyrr en allt er orðið
sæmilega settlegt og hæft undir kerta-
ljósalýsingu.
Með þetta allt saman í farteskinu sat ég
þunnur eftir tónleikaferð með Skálmöld fyrir
nokkrum árum. Ég vafraði um búðir meðan
ég beið eftir fluginu heim og rakst þá á
þessa línu frá Iittala í einni hillunni. Ég er
ekki sérlegur sérfræðingur þegar kemur að
svona hlutum og geri mér enga grein fyrir
því hvort ég er hipp eða hallærislegur að
vilja eiga þetta, en svo varð úr að ég keypti
tvær skálar og tvo bolla og ferjaði heim,
enda þykja mér þetta afar fallegir hlutir. Og
síðan þá hef ég haft það sem reglu að bæta
alltaf smávegis í stellið þegar ég ferðast
gegnum Kastrup á leiðinni heim. Ég veit vel
að ég gæti stækkað safnið mun hraðar með
því að kaupa inn í það hérna heima, eða þá
með því að kaupa meira í einu í kóngsins Kö-
ben, en það væri bara ekkert gaman. Þá
væri nefnilega engin saga til að segja.“
thora@mbl.is
Ræsir ekki leikjatölvuna fyrr en búið er að kveikja á kertum
Snæbjörn Ragnarsson er sjálfsagt
þekktastur sem Bibbi í Skálmöld
eða Bibbi í Ljótu hálfvitunum. Vel
hærður í framan og vörpulegur á
velli og mögulega síðasti maðurinn
sem einhvern hefði grunað að safn-
aði forláta finnskri merkjavöru og
elskaði kósíheit og kertaljós.
Morgunblaðið/Eggert
Breyttur maður Bibbi er nýlega
farinn að aðhyllast lífsspekina um
minna drasl en umtalsvert betra.