Morgunblaðið - 23.02.2018, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018
því koparrör upp úr viftunni sem smellpassar á móti öllum kop-
arpottunum sem við höfum safnað í gegnum tíðina.
Eldhúsborðið létum við útbúa fyrir okkur í Efnissölunni og við
völdum þann við sem okkur fannst fallegur en hann er sérlega
hlýlegur á móti marmaranum og hvítu flísunum. Mig langaði
hrikalega í fallegar flísar á vegginn sem yrðu lagðar með fisk-
beinamynstri og fékk algjöran snilling í það en það þarf lista-
menn í svona verkefni. Hann var jafn lengi að raða þessu inn í
gluggann og allt hitt veggplássið enda mikið púsl. Mér finnst
mikilvægt að leyfa flísunum að njóta sín og vil engar hillur uppi á
vegg. Bekkurinn er síðan klæddur mjúku leðri sem á að veðrast
aðeins með tímanum.
Uppþvottavélin í uppáhaldi
Eitt það besta við eldhúsið er svo uppþvottavélin en þar sem við
erum að reka veitingastað þá auðvitað veltir maður því fyrir sér
hvernig maður getur þrifið leirtauið á einni mínútu í vinnunni en
þarf að hafa heima uppþvottavélina mallandi í allt að tvo tíma.
Svo auðvitað kaupir maður veitingahúsavél fyrir heimilið og klár-
ar uppvaskið á örskotsstundu. Þetta er algjör snilld. Maður geng-
ur frá öllu um leið og vantar aldrei neitt. Svo þegar ég baka get
ég hent skálinni inn í vél og notað hana strax aftur til að gera
kremið. Þegar ég tek til þá skutla ég öllum kertastjökum og gler-
dóti inn í vél og á einni mínútu er allt orðið skínandi hreint.
Berglind segir þau afskaplega ánægð með hvernig til tókst.
Eldhúsið sé afskaplega gott vinnueldhús sem hafi verið mark-
miðið en jafnframt sé það fallegt og í þeirra anda. Eldhúsið sé
líka þannig að það sé notalegur samverustaður fyrir fjölskylduna.
Hvað myndirðu ráðleggja fólki sem er í framkvæmdahugleið-
ingum í eldhúsinu? „Að búa sér til gott mini-eldhús annars staðar
í húsinu því þetta tekur tíma og það er mjög erfitt að vera eldhús-
laus. Útilegan í stofunni missir allan sjarma eftir mánuð.
Opna veitingahús í Reykjavík
Nýverið bárust þau gleðitíðindi að veitingastaður þeirra hjóna,
GOTT, væri á leiðinni suður og myndi verða opnaður í miðborg
Reykjavíkur í mars. Berglind segir að það eigi sér í raun langa
forsögu. „Frá því við opnuðum GOTT í Eyjum höfum við verið
spurð að því, nánast daglega á sumrin þegar mikið er um íslenska
ferðamenn, hvort við ætlum nú ekki að opna stað á höfuðborg-
arsvæðinu. Það hefur því lengi blundað í okkur og þegar rétta
tækifærið kom ákváðum við að slá til. Berglind segir þau hjónin
mjög spennt fyrir opnuninni. „Við vissum að það væri áhugi fyrir
staðnum en bjuggumst engan veginn við þeim viðbrögðum sem
við fengum við tilkynningunni um að við værum að opna í
Reykjavík.
Hverju mega höfuðborgarbúar eiga von á? „Djúsí og hollum
mat fyrir mjög gott verð og létta og góða þjónustu. Við verðum
með vinsælu vefjurnar okkar sem við bökum um leið og þær eru
pantaðar og fyllum með mismundandi fyllingum. Djúsí borgara,
glænýjan fisk, bragðmikla grænmetisrétti, vegan-rétti og geggj-
aða eftirrétti. Við gerum allar sósur, soð og deig í eftirrétti á
staðnum. Markmiðið er að fólk fái næringarríkan og fjölbreyttan
mat sem er spennandi á góðu verði. 90% af aðalréttunum kosta
um tvö þúsund krónur svo ég held að það sé óhætt að segja að við
séum sanngjörn í verði.
Hugmyndin um að hollur matur geti verið bragðmikill og djúsí
er það sem GOTT gengur út á. „Ég held að það sé óhætt að segja
að það sé enginn staður eins og GOTT. Við munum líka hafa það
hugfast að vera umhverfisvæn eins og við höfum tileinkað okkur í
Eyjum.
Verið velkomin, það verður GOTT að sjá ykkur þegar við opn-
um. thora@mbl.is
Ljósmyndir/Kristbjörg Sigurjónsdóttir
Fjölskyldustaðurinn Ljósið yfir eldhúsborðinu
heitir Ætiþistillinn – PH Artichoke og er eftir Lou-
is Poulsen. Myndin í borðkróknum heitir Fjöl-
skyldukaos og er eftir Hrönn Einarsdóttur.
Bjart Berglind segist ánægðust
með hugleiðslustaðinn í glugg-
anum fyrir andann, marmarann
og flísarnar fyrir augað og upp-
þvottavélina fyrir þægindin.
Aðalstaðurinn
Berglind segir að
eldhúsið sé vinsæl-
asta rými hússins.