Morgunblaðið - 23.02.2018, Blaðsíða 24
Þ
eir sem þekkja litla vinsæla
veitingahúsið þeirra vita að
stíll hjónanna er afslapp-
aður, náttúrulegur og
áherslan á hágæðahráefni og nátt-
úrulegar afurðir hvort sem er í mat-
reiðslu eða hönnun.
„Eins og svo oft þegar maður flyt-
ur endar maður í meiri fram-
kvæmdum en áætlað er í upphafi.
Það var gömul innrétting sem mér
fannst pínu skemmtileg en var svo
alveg komin á tíma, þannig að við
hreinsuðum allt út og byrjuðum á
nýtt,“ segir Íris Ann.
„Mér finnst litaðar innréttingar
fallegar en ég valdi hvíta þar sem
mig langaði að flota einn vegginn
gráan og fannst þá stílhreinna að
hafa látalausa innréttingu með því.
Við létum líka flota gólfið, sem kem-
ur virkilega vel út. Hylja – verktakar
& gólflausnir sáu um verkið og ég er
mjög ánægð með útkomuna.“
Við hönnun á eldhúsinu höfðu Íris
og Lucas þrennt í huga. „Gott skipu-
lag og auðþrífanlegt var mér of-
arlega í huga við hönnun á eldhús-
inu. Svo að búa til notalegan
samverustað.“
Íris segir mestu vinnuna hafa far-
ið í að gera allt frá grunni en rífa
þurfti mjög gamla innréttingu niður
með tilheyrandi sóðaskap. „En
manni þykir alltaf vænna um þannig
verk þegar maður leggur mikla
vinnu í að búa til eitthvað fallegt
sjálfur.“
Gamalt og nýtt gefur hlýju
Stílinn á veitingahúsi hjónanna er
hlýlegur og nokkuð gamaldags en
Ljósmynd/Íris Ann
Veglegur veggur
Hjónin fengu Hylja
Verktakar & Gólf-
lausnir til að flota
gólfið og upp á einn
veginn sem kemur
ákaflega vel út.
Nútímalegt
hippaeldhús í
miðbænum
Listrænu hjónin Íris Ann Sigurðardóttir ljósmyndari
og Lucas Keller matreiðslumaður keyptu sér nýver-
ið íbúð í miðbæ Reykjavíkur, stutt frá veitingahús-
inu þeirra The Coocoo’s nest á Grandagarði.
Ljósmynd: Leifur Wilberg
Lesefnið Lucas elskar mat-
reiðslubækur og á margar girni-
legar bækur sem nú hafa fengið
góðan stað í eldhúsinu.
Blómarós Íris elskar pottaplöntur
og notar baðherbegið sem gjör-
gæslu ef þær eru orðnar slappar og
segir rakan gera þeim flestum gott.
Blómarós Íris
elskar pottaplöntur.
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018