Morgunblaðið - 23.02.2018, Blaðsíða 25
Matarvefurinn spurði sérfræðinga hvaða verslanir væru
skemmtilegastar en athugið að það þýðir ekki að kíkja bara
einu sinni í búðina og gera ráð fyrir hönnunarvöru í hverju horni.
Það þarf að reka reglulega inn nefið til þess að tryggja sér eft-
irsóknarverða muni. En gefi fólk sér tíma og sé sniðugt að sjá
tækifæri í gömlum munum sem þurfa hugsanlega létta uppgerð
getur ávinningurinn verið stórkostlegur.
Hertex, Vínlandsleið 6, Reykjavík
Góði Hirðirinn, Fellsmúla 28, Reykjavík,
Fríða Frænka, Fiskislóð 45 F bil. Opnunartími auglýstur á Facebook.
Fjölsmiðjan, Smiðjuvöllum 5, Reykjanesbæ
Fjölsmiðjan, Furuvöllum 13, Akureyri
Verslanir sem selja
notaðar gersemar
Gullnáma Anna Kristín Jakobs-
dóttir, verslunarstjóri í Góða
hirðinum, býður alla velkomna.
Lekkert Churchill Eng-
land stellið er meðal
gullmola sem rekast má
á á góðum degi í Hertex.
mikið er unnið með notaðan við,
gömul húsgögn og húsbúnað frá
ömmu og afa Írisar. „Þetta eldhús er
aðeins nútímalegra en okkar stíll
venjulega en okkur finnst venjulega
gaman að vintage decor og hús-
gögnum,“ segir Íris en þau blönduðu
saman nýju og gömlu með því að
nýta gamla ljósakrónu og veðraðar
viðarhillur sem skapa hlýju á móti
köldum gráum litnum á flotaða
veggnum. „Ljósið fann ég hjá Fríðu
frænku á meðan hún var með búðina
en hún er einstaka sinnum með opið
hús í skúr úti á Granda sem hún aug-
lýsir á facebooksíðu sinni. Þar er
margar gersemar að finna.“
Gullkraninn sprakk
Íris pantaði gylltan sökkul frá blikk-
smiðjunni Vík sem er skemmtilegt
smáatriði sem gerir mikið. Gylltu
höldurnar voru keyptar í Bauhaus
en upprunalega var ætlunin að vera
með gylltan krana í stíl. „Mig lang-
aði ótrúlega mikið í gylltan krana en
þar sem við erum með svo djúpan
vask vildi ég krana með útdrag-
anlegum haus sem ég fann hvergi á
Íslandi. Ég fann þó einn á Amazon
sem ég lét senda til landsins. Það
sem ég vissi ekki var að hér heima
erum við með meiri vatnsþrýsting
en annars staðar í heiminum og að-
eins er mælt með merkjum sem vit-
að er að henti vel við þær aðstæður.
Ég lenti í því óláni að gúmmíið í
krananum sprakk og í miðju upp-
vaski var allt gólfið komið á flot þar
sem það lak allt í gegn. Þannig að ég
vara ykkur við að kaupa ekki hvaða
krana sem er og kynna ykkur gæðin
vel.“ Íris lét það þó ekki á sig fá og
keypti hefðbundinn silfraðan krana
þótt draumurinn um gylltan krana
blundi enn í húsfrúnni. tobba@mbl.is
Laglega myndir "Eins og er erum við með þrjár ljósmyndir í eldhúsinu. Ein svart/
hvít ljósmynd af rósabeði eftir vin okkar Sigga Pálsson, eitt verk eftir mig sjálfa
og svo fallega gamla ljósmynd af liljum sem ég fann í Hertex búðinni."
FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018 MORGUNBLAÐIÐ 25
200 g fersk eða frosin ber
100 g hrásykur (sett í skál með
berjunum)
100 g mjúkt smjör
100 g hrásykur
2 stór hamingjuegg
275 g hveiti
1 tsk lyftiduft
klípa af salti
160 ml mjólk
Toppur
1 msk smjör
2 msk hveiti
msk sykur
2 msk ristaðar heslihnetuflögur
Hrærið 100 g af sykrinum saman
við smjörið uns létt og ljóst. Bætið
þá við eggjunum einu í einu. Því
næst fara þurrefnin saman við.
Hrærið mjólkina saman við. Hrærið
berjum og sykri saman og hellið
þeim svo varlega út í deigið og
hrærið varlega.
Smyrjið múffuálmót að innan
eða notið einnota mót ofan í ál-
formið og hellið deiginu í formið.
Hellið toppnum jafnt yfir formin
og bakið við 180°C í 20-25 mín-
útur. Látið kökurnar bíða í álmótinu
í 10 mínútur áður en þær eru los-
aðar úr.
Ljósmyndir: Íris Ann
Brjálæðislega góðar berja-
múffur með stökkum toppi
Uppskrift:
8 dl KORNAX heilhveiti
3 dl kókosmjöl
6 tsk lyftiduft
1 tsk salt
6-7 dl ab-mjólk
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 180°C.
2. Blandið þurrefnum saman í stóra skál.
3. Hellið ab-mjólkinni út í og hnoðið.
(Ef notuð er hrærivél með hnoðara,
gætið þess að hræra ekki of lengi).
4. Setjið deigið í formkökuform og
bakið í ca. 50-60 mínútur.
Einfalt og hollt
heilhveitibrauð
- Trefjaríkt, fyrir heilsuna -