Morgunblaðið - 23.02.2018, Side 28
Skipulagsráð sem
breyta eldhúsinu
Kryddstaukar eru einstaklega mikilvægir góðum kokk-
um en hvimleiðir til skipulags. Einfaldir rekkar og hillur
geta þar miklu breytt. Myndahillurammi eins og fæst
t.d. í Ikea hefur gefið góða raun hafi fólk veggpláss. Pla-
strennur með gúmmístoppurum fyrir
krydd fást t.d. í Ikea. Plastrennurnar rað-
ast ofan í skúffur en hefðbundin krydd
smellpassa í rennurnar og jafnvel má
stafla líka á milli rennanna til að koma
fleiri staukum fyrir. Grunnar hillur inn á
hurðir hafa líka gefið góða raun ef pláss er
fyrir þær.
Mæliskeiðar og minni eldhúsáhöld taka
oft upp mikið skúffupláss. Bæði er hægt að
setja þunnan lista og skrúfa í hann króka
eða nota lyklasnaga. Við mælum með að
keyptir séu snagar sem skilja ekki eftir sig
límbletti og þola allavega 500 g.
Krukkur eru frábær uppfinning sem allir
skipulagsunnendur elska. Muffinsform eru
eitt af því hvimleiða sem virðist alltaf fara út
um allt. Líkt og stútar á sprautupoka, og ávaxta- og pip-
arkökumót og margt annað smálegt. Þetta er ansi gott
að geyma í krukkum.
Vasar undir sleifar Sleifar, sleikjur, tangir og margt
fleira er fljótt að taka upp mikið pláss í skúffum auk þess
sem erfitt er að finna hluti þegar þeir liggja ofan á hver
öðrum. Því er tilvalið að nýta fallega vasa sem annars
húka inni í skáp og bíða eftir næsta blómvendi.
Tímarita-, plötu og geisladiskarekkar eru
snilld undir bökunarplötur eða pottlok.
Leyniskápur Ef borðplássið er nægilegt er
sniðugt að gera leyniskáp sem nær yfir borð-
plötuna og er með tengli í veggnum. Þannig
má geyma hrærivél, kaffivél og blandara sem
dæmi á sniðugan máta. Varast skal þó að ef
tækið gefur frá sér hita og raka líkt og ristavél
eða uppáhellingarkaffivél skal draga hana út
úr skápnum á meðan hún er notuð.
Plastgeymslupoki aftan á hurð er algjör
snilld sérstaklega innan á búrhurð eða hurðina
í þvottahúsinu. Slíka poka má panta víða t.d. á
amazon.com en þó skal gæta þess að mæla fyrir
honum á hurðinni og vera viss um að krókarnir
nái yfir hurðina en þeir eru sjaldnast mjög gleiðir og
gera því ráð fyrir nokkuð þunnum hurðum. Það má þó
vel aðlaga það heima fyrir. tobba@mbl.is
Myndir/Pinterest
Flestir vildu óska þess að þeir hefðu meira pláss í eldhúsinu – og jafnvel lífinu
yfir höfuð. En með mínímalískan lífsstíl í huga má oftar en ekki komast að því
að mikið af þeim hlutum sem ekki komast fyrir er kannski óþarfir. Í eldhúsinu
er það þó oft þannig að hin ýmsu tæki og tól eru nánast bráðnauðsynleg til að
auka gæði eldamennskunnar og auðvelda lífið. En hvar í ósköpunum á að
koma þessu fyrir svo aðgengið sé gott?
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018