Morgunblaðið - 23.02.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 23.02.2018, Síða 28
Skipulagsráð sem breyta eldhúsinu Kryddstaukar eru einstaklega mikilvægir góðum kokk- um en hvimleiðir til skipulags. Einfaldir rekkar og hillur geta þar miklu breytt. Myndahillurammi eins og fæst t.d. í Ikea hefur gefið góða raun hafi fólk veggpláss. Pla- strennur með gúmmístoppurum fyrir krydd fást t.d. í Ikea. Plastrennurnar rað- ast ofan í skúffur en hefðbundin krydd smellpassa í rennurnar og jafnvel má stafla líka á milli rennanna til að koma fleiri staukum fyrir. Grunnar hillur inn á hurðir hafa líka gefið góða raun ef pláss er fyrir þær. Mæliskeiðar og minni eldhúsáhöld taka oft upp mikið skúffupláss. Bæði er hægt að setja þunnan lista og skrúfa í hann króka eða nota lyklasnaga. Við mælum með að keyptir séu snagar sem skilja ekki eftir sig límbletti og þola allavega 500 g. Krukkur eru frábær uppfinning sem allir skipulagsunnendur elska. Muffinsform eru eitt af því hvimleiða sem virðist alltaf fara út um allt. Líkt og stútar á sprautupoka, og ávaxta- og pip- arkökumót og margt annað smálegt. Þetta er ansi gott að geyma í krukkum. Vasar undir sleifar Sleifar, sleikjur, tangir og margt fleira er fljótt að taka upp mikið pláss í skúffum auk þess sem erfitt er að finna hluti þegar þeir liggja ofan á hver öðrum. Því er tilvalið að nýta fallega vasa sem annars húka inni í skáp og bíða eftir næsta blómvendi. Tímarita-, plötu og geisladiskarekkar eru snilld undir bökunarplötur eða pottlok. Leyniskápur Ef borðplássið er nægilegt er sniðugt að gera leyniskáp sem nær yfir borð- plötuna og er með tengli í veggnum. Þannig má geyma hrærivél, kaffivél og blandara sem dæmi á sniðugan máta. Varast skal þó að ef tækið gefur frá sér hita og raka líkt og ristavél eða uppáhellingarkaffivél skal draga hana út úr skápnum á meðan hún er notuð. Plastgeymslupoki aftan á hurð er algjör snilld sérstaklega innan á búrhurð eða hurðina í þvottahúsinu. Slíka poka má panta víða t.d. á amazon.com en þó skal gæta þess að mæla fyrir honum á hurðinni og vera viss um að krókarnir nái yfir hurðina en þeir eru sjaldnast mjög gleiðir og gera því ráð fyrir nokkuð þunnum hurðum. Það má þó vel aðlaga það heima fyrir. tobba@mbl.is Myndir/Pinterest Flestir vildu óska þess að þeir hefðu meira pláss í eldhúsinu – og jafnvel lífinu yfir höfuð. En með mínímalískan lífsstíl í huga má oftar en ekki komast að því að mikið af þeim hlutum sem ekki komast fyrir er kannski óþarfir. Í eldhúsinu er það þó oft þannig að hin ýmsu tæki og tól eru nánast bráðnauðsynleg til að auka gæði eldamennskunnar og auðvelda lífið. En hvar í ósköpunum á að koma þessu fyrir svo aðgengið sé gott? 28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 2018

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.