Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Síða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.2. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Ástbjörn Þórðarson
Nei, ekkert. En ég fer í fótboltaferð
í páskafríinu.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú
að fara í
vetrarfrí?
Steinunn Helga Hákonardóttir
Já, ég ætla að fara til Spánar í fimm
vikur.
Morgunblaðið/Ásdís
Tryggvi Rúnar Þorsteinsson
Ég er búinn að fara tvisvar; í brúð-
kaup til Miami og svo á leik með
pabba, Arsenal-Everton.
Jóhanna Svala Rafnsdóttir
Það var planið en hótelið var ekki
laust en við eigum það inni; við för-
um kannski í síðbúið vetrarfrí.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Hvað er að frétta?
„Ég er að vinna að plötu með Júníusi Meyvant og það er
svona helsta dagvinnan í augnablikinu. Við Steini í
Hjálmum [Þorsteinn Einarsson] höfum verið með Ás-
geiri Trausta á ferðalagi og á dagskrá er að fara til
Ástralíu með honum um páskana og spila þar á fern-
um tónleikum. Við þurfum að útvega ferða-vísa og
ýmislegt tengt skriffinnsku.“
Hvernig leggst nýja árið í þig og
hvaða plön ertu með fyrir það?
„Ég er svona byrjaður að teikna upp hvað mig
langar að gera af plötum. Það eru til dæmis mörg
ár síðan Hjálmar gerðu plötu, það er að segja ein-
ir og sér, eða 2011. Það er því svolítið kominn tími
á Hjálma og svo eru ýmis verkefni sem kitla. Ég
væri til í að gera gamaldags vintage-krakka-
jólaplötu, í þeim anda sem maður sjálfur ólst upp við
að spila. Svo væri gaman að endurvekja Hljómskál-
ann.“
Hvað er það við reggí, hvað er
það sem sú tónlist gerir fyrir fólk?
„Sumum er reyndar meinilla við reggí, ég veit ekki alveg
hvað það er, en ef reggítónlist heppnast vel og hefur einhvern
boðskap, þá er einhver einstakur sannleikur í þessu og tón-
listin vekur vellíðan, svipað og banjótónlist gerir. Það er líka
gott að reggítónlist þarf ekki að spila á miklum styrk til að
hún virki, fyrir gítarleikara eins og mig snýst þetta frekar um
þolinmæði, hanga oft lengi á sama hljómnum, gera lítið en
mjög lengi. Allt annað tempó, sem er skemmtilegt.“
Eftirlætislagið þitt með Hjálmum?
„Ég held ég verði að vera sammála Spotify; Leiðin okkar
allra, sem er mest spilaða lagið þar. Það er einhver galdur í
því lagi og flottur textinn sem pabbi Steina á, Einar Georg
Einarsson. Hann getur sagt hluti sem aðrir geta ekki sett í
texta, fyrst og fremst af því hann meinar það og er einlægur.
„Eitt lítið knús, elsku mamma“ er bara töff þegar hann
skrifar það.
Siturðu og gægist oft út um gluggann?
„Ég er stúdíórotta, vinn í hljóðveri allan daginn og horfi
á meðan út um gluggann. Töfrarnir gerast hinum meg-
in við glerið og ég reyni að fanga það mín megin við
glerið, á teip.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
KIDDI Í HJÁLMUM
SITUR FYRIR SVÖRUM
Er sammála
Spotify
Forsíðumyndina tók
Samsett mynd
Nei, maðurinn á ljósmyndinni hér að ofan er ekki Halldór heitinnLaxness, heldur Rúmeni sem ég hitti á ráðstefnu í Washington fyr-ir rétt rúmum aldarfjórðungi. Ég var þar staddur ásamt fríðum
flokki fjölmiðlafræðinema við Háskóla Íslands, undir styrkri forystu dr.
Þorbjörns Broddasonar, til að fylgjast með forsetakosningunum haustið
1992.
Ég er löngu búinn að gleyma nafni mannsins en að vonum vakti hann
óskipta athygli hinnar íslensku sendinefndar á Park Hyatt-hótelinu. Líkindin
við nóbelsskáldið voru með nokkrum ólíkindum, ef svo má að orði komast, og
við máttum til með að kynnast manninum. Muni ég rétt vissi hann lítið sem
ekkert um Ísland og ennþá minna um Halldór Laxness. Taldi alltént harla ólík-
legt að hann væri launsonur skálds-
ins. Sá rúmenski var hins vegar fé-
lagslyndur og hress og þurfti ekki að
hugsa sig um tvisvar þegar við buð-
um honum með okkur á djammið í
Georgetown eitt kvöldið.
Þar lék kappinn á als oddi, kynnti
sig óhikað sem „Halldór“ og kvöldið
náði skáldlegu hámarki þegar hann
söng með okkur Maístjörnuna. Há-
stöfum á götuhorni. En þeir tímar!
„Halldór“ tók hlutverk sitt mjög al-
varlega og lærði drjúgan hluta af
textanum. Magnaður andskoti!
Að dreif fólk úr ýmsum áttum,
meðal annars innfæddan trymbil sem
vildi ólmur stofna með okkur hljóm-
sveit. Ég er ennþá með símanúmerið hjá honum. Hendi aldrei nokkrum sköp-
uðum hlut og er oft skammaður fyrir það á heimilinu.
Við kvöddum hinn rúmenska Laxness með virktum í ráðstefnulok og ég hef
hvorki heyrt hann né séð síðan. Þetta var vitaskuld fyrir daga tölvubréfa, far-
síma og samfélagsmiðla, þannig að fólk sem maður rakst á úti í hinum stóra
heimi hvarf bara inn í hyldýpi tímans. Nú veit ég ekki hvernig dreifingu á mínu
góða blaði er háttað austur í Rúmeníu en kannist einhver við manninn væri
ekki amalegt að fá fréttir af honum.
Bill Clinton var kjörinn forseti Bandaríkjanna þetta haust með miklum yfir-
burðum. Lagði George gamla Bush. Á leiðinni heim á hótel úr samkvæmi þegar
úrslit lágu fyrir spurðum við leigubílstjórann hvernig honum litist á hinn nýja
forseta.
„Nú, voru menn að kjósa nýjan forseta?“ spurði hann okkur til ómældrar
undrunar.
Já!!! Vissirðu það ekki?
„Nei. Og eigi ég að vera alveg ærlegur, strákar mínir, þá er mér alveg ná-
kvæmlega sama!“
Ég botnaði hvorki upp né niður í þessu viðhorfi á þessum tíma, rétt tvítugur
maðurinn, en skildi það betur síðar.
Rúmeni
Rúmeni
Morgunblaðið/Orri Páll
Tvífari Laxness
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Þar lék kappinn á alsoddi, kynnti sig óhik-að sem „Halldór“ ogkvöldið náði skáldlegu
hámarki þegar hann söng
með okkur Maístjörnuna.
Hástöfum á götuhorni.
Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi í Hjálmum,
er gítarleikari og upptökustjóri hljómsveitar-
innar. 22. og 23. febrúar halda Hjálmar, ásamt
blásurum, tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði.
Sveitin hefur til margra ára haft aðsetur í Hafn-
arfirði, í Hljóðrita þar sem hún hefur tekið upp
allt sitt efni frá árinu 2007.