Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Side 4
Um síðustu helgi fór Kolbrún Sverrisdóttir ásamt unglings- dóttur sinni í gönguferð upp á Úlfarsfell. „Við fórum Vestur- landsmegin upp, sem kallað er létta leiðin. Við vorum með mjög góða brodda á skónum og veður gott. Dóttir mín stakk fætinum hressilega niður í bratta til að vega sig upp. Allt í einu hendist hún aftur á bak; það gaf eitthvað eftir í hnénu og hún fann mikið til og datt um koll. Hún er mjög hörð af sér þannig að ég sá að það var eitthvað mikið að. Þá hringdi ég í 112, en hún gat ekkert stigið í fótinn og ekki beygt hann,“ segir hún. Kolbrún segist ekki vera mjög kunnug þarna og hún hafi sagt í símann að hún væri nálægt bíla- stæðinu, en neyðarlínumenn vissu ekki nákvæmlega hvaða bílastæði hún átti við. „Þeir gátu ekki alveg staðsett okkur strax, en þeir sendu í sím- ann minn slóð sem ég átti að ýta á. Þá gátu þeir staðsett mig bet- ur. Þeir þurftu samt að hringja í mig aftur út af þessum misskiln- ingi,“ segir Kolbrún. Björgun barst svo innan skamms og fluttu sjúkraflutn- ingamenn Neyðarlínunnar dótt- urina niður á sexhjóli. „Ég hef aldrei þurft á því að halda áður á ævinni að hringja í 112. Þetta er mjög sérstök upplifun og mikið öryggi.“ Neyðarlínan skráði ferlið nákvæmlega: Símtalið kemur inn kl. 14:13, sjúkrabíll og lögregla eru boðuð kl. 14:18 og samtali svo slitið kl. 14:19. Kl. 14:21 er öðrum sjúkrabíl bætt í verkefnið vegna hugs- anlegs böruburðar. Kl. 14:29 hringir svo Neyðar- línan aftur í Kolbrúnu vegna gruns um að staðsetning geti verið röng, fær uppfærslu á stað- setningunni. Kl. 14:36 hringir Neyðarlínan aftur, og sendir svo að þessu sinni „Smart Locator“-staðsetn- ingarbeiðni, sem skilar ná- kvæmri staðsetningu, kl. 14:37. Kl. 15:02 eru svo sjúkraflutn- ingamenn komnir til mæðgn- anna. Kl. 15:50 leggur sjúkrabíllinn af stað á bráðadeild. Björgun á Úlfarsfelli Neyðarlínan var fljót á staðinn þegar stúlka slasaðist á Úlfarsfelli. Getty Images/Thinkstock 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.2. 2018 Öryggið felst í fjarskiptakerfinu Ámilli élja í vikunni kom glufaþar sem hægt var að fljúgaþyrlu Landhelgisgæslunnar TF-LÍF upp á Ásgarðsfjall í Kerling- arfjöllum og á Laufafell á Fjallabaks- leið syðri. Þar hafði fjarskiptasamband rofnað og þar sem fólk er á ferðinni víða um land, þrátt fyrir frost og kulda, er nauðsynlegt að halda öllum línum opnum þannig að hægt sé að kalla eftir hjálp í neyð. Samstarfið skiptir máli Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínurnnar, segir símafélögin hafa sýnt mikinn metnað í að stækka dreifikerfið og ná til staða sem ekki eru arðbærir í sjálfu sér. Neyðarlínan hefur verið í fararbroddi við að koma upp fjarskiptastöðum utan alfaraleiða, með rafmagnsframleiðslu, gagnateng- ingu, húsi og mastri, sem síðan síma- félögin hafa komið með farsímasenda inn í, þrátt fyrir að ólíklegt sé að það muni nokkurn tímann bera sig fjár- hagslega. Þar hefur leiðarstefið verið aukið öryggi í formi aukinnar dekk- unar. Margir hafa lagt hönd á plóginn við erfiðan rekstur þessara staða, en þar ber helst að nefna, utan símafyr- irtækjanna, meðlimi björgunarsveita um allt land, starfsmenn Mílu og svo Landhelgisgæsluna. „Sumir fjarskiptastaða okkar eru bara þannig staðsettir að ómögulegt er að komast til þeirra stóran hluta ársins nema í þyrlu og þá er ómetanlegt að fá að fljóta með Gæslunni í æfingaflugi þeirra,“ segir Þórhallur. Hringt í týndan mann Þórhallur segir landslagið breytt frá fyrstu dögum neyðarlínunnar. Þá hafi flest símtöl komið úr heimasím- um en núorðið hringja um 70% úr farsímum. Það auðveldar allt björg- unarstarf því snjallsímar eru með innbyggðu staðsetningartæki og senda núorðið inn staðsetningu þeg- ar hringt er í 112. „Í dag eru björgunarsveitir mun meira sendar til að ná í fólk heldur en að leita að því. Nútímafarsímar eru allir með staðsetningarbúnaði sem gerir okkur kleift að fá nákvæma staðsetningu í langflestum tilvikum, sem sparar gífurlegan tíma hjá björgunarsveitum landsins. Núna í tæpt ár höfum við fengið staðsetn- ingu flestra innhringjenda með Android-síma og frá og með næsta mánuði eigum við von á að það muni eiga við um iPhone-notendur líka. Aðalatriðið er þó dekkunin, því ef ekki næst að hringja inn, þá nær staðsetningin aldrei að skipta máli,“ segir hann og nefnir gott dæmi. „Það gerðist ekki alls fyrir löngu að maður á vélsleða týndist rétt hjá Hrafntinnuskeri. Félagar hans tilkynntu það og þá datt neyðarverðinum í hug að hringja í síma týnda mannsins. Í annað sinn svaraði maðurinn og var honum sagt að verið væri að leita að honum. Hann var spurður af hverju hann hefði ekki hringt sjálfur og kom þá í ljós að hann hefði ekki haft hugmynd um að þarna væri gsm-samband. Honum hafði ekki dottið það í hug.“ Sigurður Hauksson og Sveinn Ólafsson voru að störfum uppi á toppi Laufafells í vikunni þar sem bilun hafði orðið í búnaði. Þyrla Landhelgisgæsl- unnar kom þeim á staðinn. Morgunblaðið/Ásdís Neyðarlínan hefur starfað á Íslandi í 22 ár en með tilkomu snjallsíma hafa aðstæður breyst mikið til batnaðar. Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir að góð samvinna við símafélögin, Mílu, björgunarsveitir og Landhelgisgæsluna skipti sköpum við farsælan rekstur erfiðra fjallastaða. ’Sumir fjarskiptastaða okkar eru bara þannig staðsettir aðómögulegt er að komast til þeirra stóran hluta ársins nema íþyrlu og þá er ómetanlegt að fá að fljóta með Gæslunni í æfinga-flugi þeirra. Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. INNLENT ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR asdis@mbl.is 112-dagurinn er í dag, 11. febrúar og er skemmtileg dagskrá um allt land. Við Hörputorg og Faxagarð verður dagskrá á milli 13 og 16. Á Hörputorgi sýna við- bragðsaðilar fjölbreyttan tækjakost, eins og sjúkrabíl, björg- unarbíla, björg- unarbáta, vél- sleða, lög- reglubíla, lögreglu- mótorhjól og margt fleira. Við Faxagarð eru allir velkomnir um borð í Sæbjörg, Slysa- varnaskóla sjó- manna. Sæbjörg býður gestum í heim- sókn á 112-deginum. Morgunblaðið/Þórður 112 dagurinn

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.