Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Síða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.2. 2018 Donna Pollard var sextán ára þegar hún giftist þrítugum manni í Kentucky. Faðir hennar var þá nýlátinn og móðir hennar sá enga mein- bugi á ráðahagnum. „Hún vildi bara losna við mig,“ seg- ir Pollard í The Guardian. Hún greinir frá því að hjóna- bandið, sem stóð í þrjú ár, hafi verið ofbeldisfullt og ömurlegt. Eigi að síður hafi enginn séð neitt at- hugavert við það. „Hann var þrítugur á þessum tíma en samt gerði ekki nokkur maður at- hugasemd.“ Þegar Sherry Johnson var ell-efu ára var henni nauðgað aftvítugum manni. Í stað þess að kæra hann og krefjast þess að hann yrði settur bak við lás og slá til- kynnti móðir Sherry henni að hún ætti að giftast manninum sem var djákni í kirkjunni sem Johnson- fjölskyldan sótti í Flórídaríki í Bandaríkjunum. Sherry var barns- hafandi eftir verknaðinn og hjóna- band var álitið eina leiðin til að hylma yfir hneykslið. „Þannig að í raun og veru var það ég sem var handjárnuð og sett í fangelsi,“ segir Sherry Johnson í samtali við breska blaðið The Guardian. Þar á hún við hjónabandið sem lauk ekki fyrr en sjö árum og sex börnum síðar. „Hjónabandið batt enda á barnæsku mína. Mér var vís- að úr skóla og sautján ára gömul átti ég sex börn. Það var engin undan- komuleið. Maður má ekki undirrita lagaleg skjöl fyrr en maður er átján ára, þannig að ég gat ekki sótt um skilnað. Í sjö ár sat ég uppi með manninn sem særði mig í upphafi og hélt því áfram. Hjónabandið tafði líf mitt. Ég hlaut enga menntun og berst enn í bökkum; er í þremur störfum til að láta enda ná saman. Að ekki sé talað um áfallið og allan sársaukann,“ segir Johnson sem er 58 ára gömul í dag. Hnappheldan var lögð á Sherry Johnson árið 1971 og það er ekki fyrr en nú, árið 2018, að löggjaf- arþingið í Flórída hefur samþykkt ný lög sem harðbanna hjónabönd barna undir átján ára aldri. Hér um bil 250 þúsund börn, allt niður í tíu ára, gengu í heilagt hjónaband í Bandaríkjunum á fyrsta áratug þessarar aldar. „Í nær öllum til- fellum voru þetta stúlkur sem gefnar voru fullorðnum mönnum,“ segir Fraidy Reiss, forsvarskona samtak- anna „Hlekkina af“, í The Guardian. Enginn lágmarksaldur víða Í flestum ríkjum Bandaríkjanna er lágmarksaldur til að gifta sig í raun átján ár en í mörgum þeirra hefur verið hægt að fá undanþágu sem skýrir þennan mikla fjölda barna- hjónabanda. Undanþágan er venju- lega veitt þegar fyrir liggur sam- þykki foreldra barnsins og í 25 ríkjanna er ekki um neinn lágmarks- aldur að ræða. Þannig gæti fimm- tugur maður þess vegna gengið að eiga fjögurra ára barn, að því gefnu að foreldrar þess séu gjörningnum samþykkir og dómari veiti blessun sína. Auk Flórída eru fimm ríki að und- irbúa löggjöf sem bindur enda á hjónabönd barna í eitt skipti fyrir öll og er það að miklu leyti þakkað bar- áttu Johnson, Reiss og hreyfingar þeirra. Þegar Johnson var að vinna málinu fylgi rak hún sig margoft á það að fólk áttar sig almennt ekki á því að undanþágurnar eru fyrir hendi. Mörgum mun hafa brugðið þegar þeir heyrðu það en sextán þúsund börn gengu í það heilaga í Flórída frá 2001 til 2015, öll á und- anþágu. „Þegar ég hóf baráttuna hélt ég að hún yrði auðveld; löggjafinn myndi rjúka upp til handa og fóta og breyta lögunum. Þegar allt kemur til alls er hjónaband barna skilgreint sem mannréttindabrot af hinu op- inbera,“ segir Johnson. „Eigi að síður er víða að finna stjórnmálamenn sem þykir það afleit hugmynd að breyta lögunum. Þið trúið því ekki hversu margir þing- menn hafa tjáð mér að verði stúlka ólétt þurfi hún að gifta sig. Ein þingkona úr röðum demókrata spurði mig beint út hvort það að banna hjóna- bönd barna myndi ekki fjölga fóstur- eyðingum. Þá varð ég orðlaus.“ Fraidy Reiss, sem sjálf var þving- uð til að gifta sig nítján ára, segir það kaldhæðni að lögin leyfi und- anþágu þegar stúlka ber barn undir belti enda sé það í mörgum tilfellum afleiðing kynferðisofbeldis. Lögin verndi með öðrum orðum stúlkuna alls ekki. „Þegar fullorðinn maður hefur kynmök við stúlku undir lög- aldri er það skilgreint sem nauðgun. En gangi maðurinn að eiga fórnar- lambið er hann laus allra mála og getur haldið áfram að níðast á fórn- arlambinu.“ Reiss segir afar erfitt að leysa barnungar brúðir úr prísundinni en samtök hennar hafa meðal annars fengið á sig kæru fyrir mannrán eftir að hafa hjálpað ungri stúlku að flýja frá eiginmanni sínum. „Flest barnanna sem leita til okkar hafa reynt að fyrirfara sér, þar sem þau vilja frekar deyja en lifa í þvinguðu hjónabandi. Það heldur fyrir mér vöku. Eitthvað þarf að breytast!“ Hjónabandið batt enda á barnæskuna Herferð gegn hjónaböndum barna stendur nú yfir í Bandaríkjunum en hér um bil 250 þúsund börn, allt niður í tíu ára, gengu í heilagt hjónaband í landinu á fyrsta áratug þessarar aldar. Fraidy Reiss Engir meinbugir Það að barn gangi í hjónaband er mun algengara í Bandaríkjunum en margur myndi ætla. Er það nú loksins að breytast? ’ Ég brosi innra með mér núna þegar ég veit að ekki þurfa fleiri börn að ganga í gegnum það sama og ég. Sherry Johnson þegar Flórídaríki samþykkti lagabreytinguna. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is BRASILÍA RIO DE JANEIRO Tvö börn féllu fyrir hendi byssumanna í borginni í vikunni rétt áður en kjötkveðjuhátíðin fræga hófst. Þriggja ára stúlka lést þegar skotárás var gerð að bíl foreldra hennar sem lifðu árásina af og þrettán ára piltur féll í aðgerð lögreglu gegn glæpagengi. Níu manns hlutu sömu örlög um síð- ustu helgi. Þá hefur lögregla ítrekað þurft að loka helstu umferðaræð- um í borginni vegna byssu- ógnar. KÍNA ZHENGZHOU Lög- reglan í borginni hefur tekið í notkun sólgleraugu sem búin eru búnaði sem gerir lögregluþjónum kleift að bera kennsl á grunaða glæpamenn. Gleraugun eru beintengd við miðlæga tölvu sem veitir upplýsingar á örskotsstundu. Verkefnið hefur strax gefi ð góða raun, þannig voru sjö grunaðir glæpamenn teknir höndum í aðgerð á lestarstöð í vikunni og 26 til viðbótar færðir til yfi rheyrslu. BANDARÍKIN WASHINGTON Nancy Pelosi, leiðtogi demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, sló met í vikunni þegar hún fl utti átta klukkustunda langa ræðu í því augnamiði að telja repúblikana á að verja hagsmuni svonefnds draumafólks og koma í veg fyrir að því verði vísað úr landi. Draumafólkið á það sameiginlegt að hafa komið ólöglega með foreldrum sínum til Bandaríkjanna á barnsaldri og búið þar síðan. BRETLAND LUNDÚNIR Starf Antonios Conte, knattspyrnustjóra Englandsmeistara Chelsea, hangir nú á bláþræði eftir dapurt gengi liðsins að undanförnu. Verði hann látinn taka pokann sinn yrði það í þriðja sinn á jafnmörgum árum sem stjóri meistaraliðs væri rekinn strax tímabilið eftir að hafa gert lið að meisturum. Á síðasta tímabili vék Leicester Claudio Ranieri frá störfum og árið þar á undan losaði Chelsea sig við José Mourinho.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.