Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Qupperneq 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.2. 2018
Í vikunni mælti ég á Alþingi fyrirþingsályktunartillögu um stefnustjórnvalda um uppbyggingu
flutningskerfis raforku. Er það í
fyrsta sinn sem mælt er fyrir slíkri
stefnu, en ákvæði um hana var sett
í raforkulög árið 2015.
Rauði þráðurinn í tillögunni er að
styrkja þurfi flutningskerfið til að
ná nánar tilgreindum markmiðum,
meðal annars um orkuskipti, af-
hendingaröryggi um allt land og
möguleikum til atvinnuuppbygg-
ingar. Um er að ræða mikilvæga
innviði landsins sem jafna má til
vegakerfis og fjarskipta.
Stefna með stoð í lögum
Rétt er að taka fram að þótt stefnan
yrði samþykkt óbreytt leggur hún
ekki niður deilur um umdeildar
framkvæmdir. Hún er hins vegar
skref í átt að víðtækari sátt um
markmið stjórnvalda um uppbygg-
ingu grunninnviða landsins og til
hvaða viðmiða eigi að horfa í þeim
efnum.
Þingsályktunin er ekki eingöngu
táknræn yfirlýsing því að bundið er
í lög með hvaða hætti henni skuli
framfylgt. Landsneti er skylt sam-
kvæmt lögum að taka tillit til þings-
ályktunarinnar þegar fyrirtækið
setur niður áætlanir sínar um upp-
byggingu raforkuflutningskerfisins.
Þetta gefur henni á vissan hátt
meira vægi en al-
mennt gildir um
slíkar ályktanir.
Leiðbeining
stjórnarsátt-
málans
Það er kunnara
en frá þurfi að
segja að raflínur
hafa oft valdið
deilum og mála-
ferlum. Það er því
ekki sjálfgefið að
tillaga um stefnu stjórnvalda um
þessi viðkvæmu mál verði Alþingi
auðvelt viðfangsefni.
Ríkisstjórnarsamstarfið nýtur
góðs af því að stjórnarsáttmálinn
gefur allskýrar leiðbeiningar um
markmið og aðgerðir varðandi flutn-
ings- og dreifikerfi raforku. Það er
dýrmætt í ljósi þess að áherslur
flokkanna sem mynda ríkisstjórnina
eru að sumu leyti ólíkar. Að mínum
dómi er í stjórnarsáttmálanum náð
ákveðnu jafnvægi milli þessara ólíku
sjónarmiða. Kveðið er á um að
styrkja þurfi flutningskerfi raforku,
mæta þörfum notenda, tryggja af-
hendingaröryggi og einfalda reglu-
verk. Jafnframt eru ákvæði um að
tryggja sterka aðkomu almennings
að ákvörðunum.
Tillit tekið til ólíkra
sjónarmiða
Sumar af þessum áherslum
stjórnarsáttmálans eiga heima í
áðurnefndri stefnu um uppbyggingu
flutningskerfisins og hafa því verið
teknar þar upp orðrétt. Aðrar
áherslur, til að mynda um breyt-
ingar á regluverki og aðkomu al-
mennings, fá annan farveg og munu
væntanlega koma fram síðar með
breytingum á öðrum lögum og
reglum. Það er til þess fallið að
auka traust að hafa það skjalfest í
stjórnarsáttmálanum að taka skuli
tillit til ólíkra sjónarmiða þótt ekki
verði öll skrefin stigin á sama
augnabliki.
Í þessum sama anda var líka
ákveðið að taka tillit til at-
hugasemda sem Landvernd gerði
síðastliðið sumar við drög að stefn-
unni, þess efnis að æskilegt væri að
rannsaka betur möguleika á að
leggja jarðstrengi frekar en loftlín-
ur. Eins og fram kemur í tillögunni
mun ráðuneyti mitt láta vinna slíkar
greiningar og skila Alþingi skýrslu
um þær eigi síðar
en 1. febrúar á
næsta ári. Í kjöl-
farið verði stefnan
endurskoðuð á
sama þingi með
hliðsjón af niður-
stöðunum. Fram
að því gildi þau
viðmið um jarð-
strengi sem Al-
þingi samþykkti
2015 en þau fela
nú þegar í sér að
hlutfall jarðstrengja í flutningskerf-
inu muni aukast jafnt og þétt á
næstu árum.
Skilningur á nauðsyn
uppbyggingar
Það er staðreynd að flutnings- og
dreifikerfi raforku á landsbyggðinni
eru sums staðar komin að þolmörk-
um eða fullnægja ekki sanngjörnum
kröfum nútímans um afhendingar-
öryggi. Við það verður ekki unað.
Lausnin hefur sums staðar verið sú
að setja upp dísilrafstöðvar. Það er
óviðunandi í landi sem býr við nóg
af hreinni orku. Til viðbótar valda
ófullnægjandi tengingar því að
framleiðslugeta ólíkra landshluta
nýtist ekki alltaf sem skyldi. Afleið-
ingin er veruleg og dýr sóun.
Það má fullyrða að víðtækur
skilningur á þessari stöðu hafi kom-
ið fram við fyrri umræðu um
þingsályktunartillöguna á Alþingi í
vikunni. Það er afar jákvætt. Ég er
sannfærð um að afgreiðsla hennar
geti orðið mikilvægt skref í að ná
betri sátt um nauðsynlega upp-
byggingu þessara mikilvægu inn-
viða.
Línur skýrast
’„Rauði þráðurinn ítillögunni er aðstyrkja þurfi flutnings-kerfið til að ná nánar
tilgreindum mark-
miðum, meðal annars
um orkuskipti, afhend-
ingaröryggi um allt
land og möguleikum til
atvinnuuppbyggingar.“
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Bragi Valdimar
Skúlason, skáld,
tónlistarmaður og
hugmyndasmiður,
@BragiValdimar,
veltir fyrir sér
akstri alþingismanna á Twitter. „Ég
vil bara að einhver fylli mig eins og
Ásmundur Friðriks fyllir bensín-
tankinn sinn,“ skrifaði hann en
skömmu áður hafði hann komið
með þessa athugasemd: „Mjög næs
í alþingispartíum að vita að það er
alltaf einn á bíl.“
Birta Björnsdóttir fréttamað-
ur tísti frétt á @birtabjoss þess
efnis að starfshópur leggi til að
klukkunni verði breytt hérlendis.
„Ég gæti vel nýtt þessa 13%
fjölgun á Birtustundum á hverjum
morgni.
Já, þið megið hlæja núna…,“
skrifaði hún en umræðuefnið um
að seinka klukkunni hérlendis er
heitt málefni á Twitter.
Lára Guðrún
Jóhönnudóttir
skrifaði á Face-
book um tölvu-
póst sem hún fékk
frá Lánasjóði ís-
lenskra náms-
manna þar sem segir að umsókn-
arfrestur vegna vorannar 2012 sé
til 15. febrúar: „Var að fá tölvupóst
frá LÍN. Reglurnar varðandi um-
sóknarfrest innihalda tímaflakk
núna. Sem passar bara við sam-
skiptaviðmót þeirra held ég. Mið-
að við það sem ég hef heyrt.
Held þeir styðjist líka við
neysluviðmið frá 2012.
#háskólanúðlusúpan.“
AF NETINU
Hulda B. Ágústsdóttir Margrét Guðnadóttir
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Almött veggjamálning
Dýpri litir - dásamleg áferð
ColourFutures2018
Silver Shores
Steel Symphony
Faded Indigo