Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Qupperneq 19
11.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 R ysjótt og stormasamt veðurfar hafði lengi komið í veg fyrir að komast á fjöll til viðgerða á fjar- skiptabúnaði en á þriðjudaginn var ákváðu veðurguðirnir að taka sér hlé um stund. Með klukkutíma fyr- irvara var stokkið um borð í TF-LIF og hald- ið af stað upp á mitt hálendi. Með í för voru sjö vaskir menn, fimm frá Landhelgisgæsl- unni, tveir tæknimenn frá Neyðarlínunni og undirrituð. Þyrlan lyftist fimlega frá jörðu og sveif yfir höfuðborgina sem fjarlægðist smátt og smátt. Blaðamaður fékk sæti beint fyrir aftan flugmennina og var því með fimm stjörnu út- sýni. Það virtust vera þúsund litlir takkar og mælar á milli þyrluflugmannanna tveggja og best að halda fótunum frá þeim. Þegar borgin var horfin sjónum tók við ís- kalt og snæviþakið landið. Alvanir þyrlu- flugmenn létu á engu bera þótt skyggnið hyrfi um stund og allt yrði hvítt. Sólin glennti sig inn á milli og það stirndi á tignarlega fjallstoppa þar sem við svifum yfir snjóbreið- urnar. Þeir félagar fiktuðu í tökkum og spjölluðu um flugleiðina, skyggnið, daginn og veginn. Það var um að gera að halla sér aftur og njóta stundarinnar því fátt er svalara en að sitja í þyrlu með heyrnartól á eyrum, horfa á ískalda náttúrufegurðina og hlusta á sam- ræðurnar í gegnum hávaða í þyrluspöðum. „Ég sé mastur two o’clock. Förum bara straight ahead four miles.“ Blaðamaður var ekkert að blanda sér inn í samræðurnar, enda vildi hann fyrir alla muni ekki trufla, né reka sig í einn af þessum þús- und tökkum. Myndað með þykkum lúffum Eftir tæplega klukkustundaflug var lent á toppnum á Ásgarðsfjalli. Úti fyrir tók á móti okkur nístingskuldi og geysileg náttúrufeg- urð. Tæknimennirnir og blaðamaður stukku út og þyrluflugmenn ákváðu að færa sig um nokkra metra; finna öruggari lendingarstað. Ekki var mikið pláss á toppnum og svellhált. Það blés hressilega frá spöðum þyrlunnar og mátti blaðamaður hafa sig allan við að halda jafnvægi á hálum ís. Langt var niður á jafn- sléttu og líklega ekki skemmtilegt að rúlla þangað niður, þótt björgun hefði ekki verið langt undan. Þyrlan drap á sér og Gæslumenn stukku út einn af öðrum á meðan tæknimennirnir, Sig- urður Hauksson og Sveinn Ólafsson unnu störf sín. Myndavélin var munduð en eftir þrjár mínútur án vettlinga var lítið líf eftir í fingrum. Myndirnar á síðunni eru því teknar með þykkum lúffum, á meðan kuldaboli beit fast í kinnar. Útsýnið var engu líkt; víðáttan endalaus í ýmsum hvítum tónum. Sólstafir dembdu sér niður úr skýjunum okkur til heiðurs og hentu ljósgulum lit í annars hvítu litapalettuna. Mannveran verður ansi lítil frammi fyrir heiminum á svona stundum. Íslistaverk uppi á fjalli Viðgerðin tókst með ágætum og eftir heitt kaffi og kex í þröngri þyrlunni var haldið á næsta stað, Laufafell á syðri Fjallabaksleið. Þegar þangað var komið var tekið að rökkva. Þyrlan lenti við mastur sem þakið var ís og snjó þannig að minnti á skúlptúr. Útsýnið var lítið og himinn og jörð runnu saman í þennan bláhvíta lit sem einkennir oft veturinn. Það var nánast eins og atriði úr geimmynd að horfa á eftir mönnunum hlaupa í átt að þessu íslistaverki hátt uppi á fjallinu. Tæknimennirnir hurfu inn í oggulítið hús. Fiktuðu í snúrum í gulri birtu sem stakk í stúf við blámann úti. Stoppað var stutt enda ekki gott að vera í kolniðamyrkri einn uppi á hálendi. Eða sjö. Reyndar hafði enginn þarna sérstakar áhyggjur og flugmennirnir skelltu nætur- sjónaukum á hjálminn sinn á bakaleiðinni. Alvöru Bond-taktar hjá Gæslunni. Flogið var heimleiðis og brátt mátti sjá Reykjavík glitra í myrkrinu. Strákarnir voru orðnir svangir og á milli þess sem þeir sinntu starfinu, ræddu þeir mat. „Eigum við ekki panta pitsu? Ég myndi vilja þarna Hawaii, þessa með skinku og an- anas.“ Eftir nokkrar vangveltur var búið að velja tvær tegundir og allir voru sáttir. Það var komið myrkur þegar lent var í Reykjavík. Blaðamaður kvaddi og þakkaði fyrir sig. Fyrir utan flugskýlið beið pitsu- sendillinn í hlaðinu. Það var kalt og dimmt á toppnum en við- gerðir gengu vel. Gula birtan úr litlum skúr lýsti upp annars grábláu tilveruna. Uppi á Laufafelli var ísilagt mastur eins og skúlp- túr frá geimstöð á Mars. Þyrluævintýri á fjöllum Í neyð er nauðsynlegt að geta hringt í 112, hvar og hvenær sem er. Fjarskiptabúnaður og möstur eru víða um land, en þau tæki geta bilað eins og annað. Tæknimenn þurfa þá að sinna viðgerðum og gott er að geta fengið Landhelgisgæsluna til að skutla sér upp á fjallstoppa um hávetur. Blaðamaður fékk að fljóta með og upplifa þyrluflug upp á ískalt hálendið. Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Hvítt landið blasti við úr þyrlunni og sólin lét sjá sig af og til og lýsti upp fjöll og firnindi. Jóhannes Jóhannesson flugmaður, Elvar Steinn Þorvaldsson stýrimaður og Jón Erlendsson flugvirki slá á létta strengi um borð í TF-LÍF. Jón Erlendsson flugvirki gengur á toppi Ásgarðsfjalls með TF-LÍF í baksýn. Á meðan á viðgerðum stóð var hægt að teygja úr sér og njóta útsýnisins. ’ Það var um að gera að hallasér aftur og njóta stund-arinnar því fátt er svalara en aðsitja í þyrlu með heyrnartól á eyrum, horfa á ískalda náttúru- fegurðina og hlusta á samræð- urnar í gegnum hávaða í þyrlu- spöðum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.