Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Síða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Síða 23
GettyImages/iStockphoto 11.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Helena segir að lykillinn að mjúkum kjötbollum sé að bleyta brauðmylsnu eða góðan brauðrasp í mjólk áð- ur en því er svo blandað saman við kjötið. 2,5 dl brauðmylsna 1,5 dl mjólk 600 g hreint ungnautahakk 75 g rifinn parmesan 1 msk þurrkuð steinselja 2 msk smátt söxuð fersk stein- selja 2 pressuð hvítlauksrif 2 tsk sjávarsalt 1 tsk svartur nýmalaður pipar 1 egg Mjólkinni hellt yfir brauð- molana og látið standa í 5 mínútur. Öllu blandað vel saman, hún setur allt í hræri- vél og blandar þannig sam- an. Litlar bollur mótaðar úr hakkinu og geymdar í kæli á meðan sósan er gerð. TÓMATSÓSA 3 msk ólífuolía 1 smátt saxaður rauðlaukur 2 pressuð hvítlauksrif ½ tsk sjávarsalt og smá nýmal- aður pipar 500 ml tómatapassata eða maukaðir tómatar 1 dl vatn 3 msk tómatpúrra 2 tsk hunang eða önnur sæta 2 greinar ferskt timían eða 1 tsk þurrkað 1,5 dl þurrt hvítvín eða rauðvín 1 dl rjómi góð lúka ferskt basil, gróft sax- að Olía hituð í potti við með- alhita. Laukur og hvítlaukur steiktur þar til mýkist, kryddað með salti og pipar. Tómatmauki, vatni, tómat- púrru, hunangi, hvítvíni, timíani og rjóma bætt út í og suðunni hleypt upp. Leyft að malla í 5 mínútur og smakk- að til með salti og pipar. At- hugið þó að bollurnar eru bragðmiklar og munu gefa frá sér bragð þegar þær koma út í sósuna. Kjötbollur settar út í ásamt basil og leyft að malla við vægan hita með lokið að hálfu yfir, þann- ig að gufi upp af sósunni og hún þykkni aðeins í u.þ.b. 20 mínútur. Borið fram með spagettí eða tagliatelle og nýrifnum parmesanosti. Ítalskar kjötbollur í tómatsósu Þessi uppskrift gefur um 22 fiskibollur í stærri kantinum en vel er hægt að frysta af- ganginn. 1,2 kíló ýsa eða þorskur 2 tsk salt dálítill pipar 4 msk hveiti 3 msk kartöflumjöl 2 egg 1 laukur ca 4 dl mjólk smjör til steikingar Fiskurinn hakkaður ásamt lauknum. Hveiti, kart- öflumjöli, salti, pipar og eggjum bætt út í fiskhakkið. Að lokum er mjólkinni bætt í. Bollur mótaðar og þær steiktar upp úr smjörinu á pönnu. Þegar fiskibollurnar hafa náð góðum lit setur Dröfn þær í eldfast mót í ofn við ca 170°C á meðan hún býr til karrísósuna. KARRÍSÓSA 3 msk smjör 1 tsk karrí 3 msk hveiti ca 4,5 dl vökvi (hægt að nota vatn, mjólk eða rjóma) 1 tsk eða teningur hænsna- kraftur Smjörið brætt og karrí bætt út í og það steikt í smjörinu í stutta stund. Hveitinu bætt út í og blandan pískuð á fremur háum hita þar til hún verður þykk. Þá er vökvanum bætt út í og á meðan er hrært stöðugt í sósunni með písk. Þá er hænsnakraftinum bætt út í. Sósan látin malla í 3-5 mín- útur. Borið fram með kart- öflum eða hrísgrjónum en Dröfn velur oftar hrísgrjón því þau eiga svo vel við sós- una. Fiskibollur með karrísósu Sænskar gerbollur Uppskriftin hennar Drafnar gefur um 18 bollur, eða semlur. 1 msk. kardimommukjarnar 3 dl mjólk 1 pakki þurrger 1½ dl sykur ½ tsk. salt 150 g mjúkt smjör, við stofuhita 1 egg 10-12 dl hveiti Kjarnarnir úr kardimommunum muldir fínt í morteli. Mjólkin sett í pott, muldu kardimommurnar út í og hitað upp í 37 gráður. Gerið sett í skál og það leyst upp með mjólkinni, smjöri, sykri, salti og eggi. Þá er hveit- inu bætt út í smátt og smátt og deigið hnoðað þar til það verður slétt og sprungulaust. Því næst er deigið látið hefast undir klút á hlýjum stað í 40-60 mínútur eða þar til það hefur tvöfald- ast. Þá eru hnoðaðar ca. 18 bollur sem er raðað á ofnplötu klædda bök- unarpappír. Bollunum er leyft að hef- ast undir klút í ca. 45-60 mínútur til viðbótar. Því næst eru þær penslaðar með eggi og bakaðar við 200°C í um það bil 10 mínútur eða þar til þær eru gullinbrúnar. Bollurnar eru þá látnar kólna á grind. FYLLING ca. 400 g möndlumassi (líka hægt að nota hefðbundið Odense-marsípan sem er rifið niður og blandað við ca. 1-2 dl af mjólk þar til marsípanið verður mjúkt) 8 dl rjómi egg til að pensla með flórsykur MÖNDLUMASSI 250 g möndlur (afhýddar) 2½ dl sykur mjólk, ca. 1 msk. Möndlurnar eru malaðar mjög fínt í matvinnsluvél. Þá er sykri bætt út í og blandan keyrð í matvinnsluvél í ca. 5-7 mínútur þar til massinn verður slétt- ur. Þá er smá skvettu af mjólk bætt út í þannig að massinn verði dálítið blautur og haldist saman. Sumir taka aðeins innan úr boll- unum og bæta því út í möndlumass- ann. Í stað þess að gera möndlumassa er líka gott að nota 400 g af marsípani rifið niður og blandað við ca. 1 dl mjólk. Toppurinn er skorinn af bollunum og skorin smá dæld í neðri hluta boll- unnar. Þar er settur möndlumassi, því næst er settur þeyttur rjómi, bollunni lokað og flórsykur sigtaður yfir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.