Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Side 24
HEILSA Könnun sem gerð var árið 2017 bendir til þess að lifnaðarhættir Tékkaséu þeir óheilbrigðustu í heimi. Þegar tóbaksnotkun, áfengisdrykkja ogtíðni offitu voru skoðuð reyndist meðaltalið verst í Tékklandi. Næst
komu Rússland, Slóvenía, Hvíta-Rússland og Slóvakía.
Óhollustan mest hjá Tékkum
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.2. 2018
Ef marka má nýja rannsókn sem
birt var í tímaritinu Nature þá
gæti mataræði fólks haft veruleg
áhrif á það hvort krabbamein vaxa
og ná að dreifa sér um líkamann.
Gerð var rannsókn á músum þar
sem kom í ljós að ef þær fengu mat
sem var laus við amínósýruna asp-
aragine þá áttu krabbamein í
brjósti erfitt með að vaxa og
dreifa sér.
Asparagine er að finna í spergli,
kjúklingi, sjávarfangi, og ýmsum
öðrum matvælum.
Rannsóknin var gerð á rann-
sóknastofu breska Krabbameins-
verndarfélagsins í Cambridge og
fór fram á músum sem ræktaðar
voru til að hafa mjög ágenga teg-
und brjóstakrabbameins. BBC
greinir frá að undir venjulegum
kringumstæðum hefði krabba-
meinið drepið mýsnar á nokkrum
vikum, en þegar þeim var gefið
fæði með mjög litlu magni af asp-
aragine virtist sem vöxtur
krabbameinsins stöðvaðist.
ai@mbl.is
MÚSATILRAUN LOFAR GÓÐU
Matur hefur áhrif á út-
breiðslu krabbameins
Í tilrauninni virtist krabbameinið
þurfa amínósýruna asparagine til að
vaxa. Hún finnst m.a. í spergli.
Thinkstock
Breski sjálfshjálparfrömuður-inn Brian Mayne heldurvinnustofu á Íslandi um þessa
helgi, og er kominn til landsins til að
kenna notkun „Goal Mapping“-
aðferðarinnar. Um
er að ræða einfalt
en vinsælt kerfi
sem hefur hjálpað
mörgum að ná
betri stjórn á því
hvert lífið stefnir,
sjá hlutina í já-
kvæðara ljósi og
takast á við krefj-
andi langtímamarkmið.
Aðferðin sem Brian kennir hjálp-
aði honum sjálfum að vinna sig upp
úr miklum vandræðum, en óhætt er
að segja að lífið hafi ekki veitt hon-
um mikinn meðbyr á uppvaxtarár-
unum. „Ég fæddist inn í fjölskyldu
sígauna og sirkusfólks sem var á
stöðugu ferðalagi. Öll æskuárin
fluttum við á hverju einasta ári og ég
þurfti að skipta um skóla í sífellu.
Eins og svo mörg önnur sígauna-
börn átti ég erfitt uppdráttar í námi,
hætti í skóla 13 ára gamall og gat þá
hvorki lesið né skrifað,“ segir Brian.
Þrátt fyrir mótlætið hafði Brian
óbilandi metnað og 18 ára gamall
varð hann yngsti Bretinn til að fá
leyfi til skemmtanahalds og áfeng-
issölu. Hann var 19 ára þegar hann
opnaði skemmtistað sem fljótlega
sló í gegn, og 25 ára gamall var Bri-
an á toppi tilverunnar og reksturinn
í blóma. „En svo breyttust ferða-
venjur Breta, og í stað þess að verja
sumarfríunum í strandbæjum eins
og bænum þar sem ég rak skemmti-
staðinn, fóru þeir að ferðast til út-
landa. Ég missti reksturinn og sat
uppi með himináar skuldir.“
Vísindin á bak við
jákvæðnina
Í framhaldinu fann Brian sér starf
sem sölumaður og var það þar sem
hann áttaði sig á mikilvægi jákvæðr-
ar hugsunar og markmiðasetningar,
og vísindunum sem liggja þar að
baki. „Fram að því hafði ég haldið að
það væri einfaldlega meðfæddur
hæfileiki sem fólk ýmist hefði eða
ekki, að geta hugsað jákvætt og
markvisst. En raunin er að þessa
hæfileika má læra.“
Meðal þess sem Brian tókst að
gera með aðferð sinni var að læra að
lesa og skrifa upp á eigin spýtur.
„Ég hef verið greindur með les-
blindu, og það gerist endrum og
sinnum að ég á erfitt með lestur og
skrift ef ég er þreyttur, en eftir að
hafa unnið að því markvisst í eitt ár
tókst mér að vinna mig í kringum
lesblinduna,“ segir hann. „Les-
blinda stafar af því að heilasellurnar
eru ekki tengdar eins og þær ættu
að vera, en með réttum æfingum og
örvun má skapa nýjar tengingar og
í mínu tilvik tókst mér að búa til
tengingar sem gera mér kleift að
lesa og skrifa.“
Myndræn markmið
Mikilvægasta verkfærið sem Brian
reiðir sig á er „markmiðakortið“ (e.
Goal Mapping). Hann leggur
áherslu á að áður en fólk byrji að
nota markmiðakort þá verði það að
fá fræðslu um jákvæða hugsun og
sjálfsskilning, en með rétta vega-
nestinu geti markmiðakortið varðað
leiðina að þeim árangri sem fólk vill
ná í einkalífi sínu eða starfi.
„Markmiðakortið er m.a. frábrugð-
ið hefðbundnum markmiðalistum að
því leyti að það blandar saman texta
og myndum. Það gerum við til að
virkja undirmeðvitundina sem á auð-
veldara með að vinna úr myndum en
úr rituðu máli,“ útskýrir Brian en
með markmiðakortum skrásetur fólk
og skipuleggur markmið sín.
„Fyrsta skrefið er að láta sig
dreyma, og sjá hvað það er sem við
viljum áorka. Næsta skref er síðan
að hugsa rökrétt og forgangsraða
markmiðunum. Í þriðja skrefinu eru
markmiðin kortlögð með orðum og
einföldum teikningum og í fjórða
skrefinu þarf að útlista ástæðurnar
fyrir hverju markmiði og þannig
skapa tilfinningalega tengingu við
markmiðin,“ segir Brian. „Fimmta
skrefið felst í því að tímasetja mark-
miðin, enda eru markmið sem ekki
eru tímasett lítið annað en óskir.
Loks þarf að greina í sjöunda skref-
inu hvernig leiðin að markmiðinu
liggur og búta stóru markmiðin niður
í smærri og viðráðanlegri markmið.“
Fólk að njóta lífsins í snjón-
um. Öll höfum við alls kyns
drauma og markmið en
gengur misvel að ná þeim.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hægt að ná langt
með rétta viðhorfinu
Brian Mayne ferðast víða um heim og kennir fólki að nota kerfi sem virkjar já-
kvæðnina og undirmeðvitundina til að komast þangað sem hugurinn stefnir.
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Brian Mayne
Pappelina gólfmotta, 70x90 cm
Verð 11.500 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Heilbrigðisyfirvöld á Bretlandi
hafa ákveðið að bjóða karl-
mönnum undir 45 ára aldri, sem
stunda kynlíf með öðrum karl-
mönnum, að fá HPV-bólusetn-
ingu. Frá árinu 2008 hefur bresk-
um stúlkum á aldrinum 11 til 13
ára staðið til boða að vera bólu-
settar en veiran, sem smitast við
kynmök, getur valdið forstigs-
breytingum í leghálsi og í sumum
tilvikum leitt til leghálskrabba-
meins.
BBC segir vera að koma æ bet-
ur í ljós að tengsl kunni að vera á
milli HPV-smits og krabbameins í
munni, endaþarmi og lim hjá körl-
um sem stunda kynlíf með öðrum
körlum og að bólusetningar sé
þörf fyrir þennan hóp. ai@mbl.is
Bólusetningin getur dregið úr hættu á
vissum gerðum krabbameina.
AFP
BRETAR STÍGA MIKILVÆGT SKREF
Bjóða körlum HPV-
bólusetningu