Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Blaðsíða 27
11.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Chanel
Augnskuggapallettan úr vor-
línu Chanel er á óskalistanum
enda ótrúlega falleg.
Zara
4.995 kr.
Svöl ökklastígvél.
Í þessari viku …
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Þrátt fyrir slæma færð undanfarna daga má
alveg fara að undirbúa fataskápinn örlítið fyrir
vorið enda fara vorlínur tískuhúsanna
fljótlega að streyma inn í verslanir.
Falke
4.368 kr.
100 den sokka-
buxurnar frá
FALKE eru
endingargóðar
og haldast
fallegar.
Asos.com
1.200 kr.
Kögureyrnalokkar
hressa upp á dressið.
Lindex
4.699 kr.
Smart gallapils.
H&M
5.495 kr.
Þykk og þægileg
peysa.
Vila
3.390 kr.
Töff toppur.
Bergþór Bjarnason hefur verið búsettur í Nice íFrakklandi undanfarið sex og hálft ár og bjó áður16 ár í París. Hann hefur unnið með leður og
fylgihluti í 14 ár fyrir tískuhús á borð við Chanel, Yves
Saint-Laurent, Valentino og Michael Kors.
Bergþór hefur verið vegan í rúmt ár og neytir þar af
leiðandi ekki dýraafurða. Hann opnaði nýverið vefversl-
unina www.vegan-vogue.com sem selur vandaða vegan-
fylgihluti en til þess að vörur geti verið vegan þarf að
gæta þess að engar dýraafurðir séu notaðar í gerð
þeirra. Á vefsíðunni Vegan Vogue má finna úrval fal-
legra fylgihluta sem unnir eru úr veganleðri, endur-
unnum efnum eins og reiðhjólaslöngum og endurunnu
pólýester.
Náttúran alltaf nálægt
Aðspurður hvernig hann hafi
farið úr því að vera sérfræð-
ingur í leðri hjá stærstu tísku-
húsum heims yfir í að vera
vegan svarar Bergþór: „Þetta
var langt ferli. Ég er alinn upp
við að rækta plöntur og blóm
alveg frá blautu barnsbeini í
Vestmannaeyjum. Náttúran
hefur alltaf verið svolítið ná-
lægt og þegar ég var lítill
flokkaði mamma til að mynda
úrgang og fór með ávexti og
grænmeti út í garð og nýtti sem áburð. Þetta var fyrir 30
árum þegar flokkun þekktist varla.“ Þannig segist Berg-
þór fyrst hafa orðið meðvitaður um endurnýtingu og úr-
gang.
Hann segist hafa orðið meðvitaðri um leðurfram-
leiðslu í kjölfar umræðu um skuggahliðar framleiðslu á
feldi. „Í leðurtöskur er til dæmis oftast notað kýr- og
kálfskinn og þá má velta fyrir sér hvað nautgriparæktun
kostar plánetuna. Sem dæmi þarf um átta kíló af fóðri í
eitt kíló af kjöti.“ Bergþór segir sjálfa leðurframleiðsl-
una geta verið hreint út sagt ógnvænlega. „Mörg tísku-
hús framleiða til dæmis allt í Kína og oft þegar við vor-
um að taka upp sendingar lyktaði leðrið
svakalega illa og hreinlega stakk í nefið.
Þá fer maður að hugsa um allar frétta-
skýringarnar frá Kambódíu, Bangladess
og Kína þar sem fólk stendur upp að
hnjám í fatalit sem síðan rennur í næstu á
þar sem fólk drekkur vatnið og heilu
þorpin veikjast,“ útskýrir hann. „Þetta
var allsherjar lífsviðhorfsbreyting. Mér
fannst ég bara ekki geta verið í þessum
bransa lengur.“
Veganleður og -reiðhjólaslöngur
Bergþór byrjaði að undirbúa opnun Vegan Vogue í sum-
ar og er þegar kominn með þrjú merki inn í verslunina.
Kweder er ítalskt merki sem einkennist af litadýrð og
rómantík, Jean Louis Mahé er franskt merki sem fram-
leiðir vörur úr veganleðri og fóðraðar með endurunnu
pólýester og bambusþráðum. Síðan er það merkið FAN-
TOME en það framleiðir töskur úr notuðum reiðhjóla-
slöngum sem Bergþór segir henta afar vel í íslenska
veðráttu þar sem slöngurnar eru mjög slitsterkar og
vatnsheldar.
Íslendingar fljótari að
tileinka sér nýjungar
Aðspurður segist hann finna fyrir auknum áhuga fólks
almennt á veganisma. „Það er gríðarlegur vöxtur á því.
Frakkar eru svolítið meira eftir á í veganisma en Íslend-
ingar. Það er mikil umræða um veganisma í Frakklandi
og margt í boði en Frakkar eiga samt langt í land miðað
við Íslendinga. Fólk á Íslandi er almennt fljótara að til-
einka sér nýjungar,“ útskýrir Bergþór og segir
Frakka þó hafa mikinn áhuga á málefninu.
Bergþór vonast til þess að Íslendingar
geti notið góðs af versluninni og segist
jafnframt vonast til þess að Vegan Vogue
veiti þeim innblástur. „Það getur vel verið
að það sé eitthvert hæfileikaríkt fólk í
Listaháskólanum eða öðru hönnunarnámi
heima á Íslandi sem gæti tekið upp á því að
framleiða veganvörur,“ segir hann að lok-
um.
Vegan Vogue sel-
ur vegantöskur
og -fylgihluti.
Taska úr jurta-
leðri, vatns-
þéttum bómull-
arstriga, frá Jean
Louis MAHÉ.
Bergþór Bjarnason
segir Íslendinga opnari
fyrir veganisma.
Varð vegan eftir að hafa
unnið með leður í 14 ár
Eftir að hafa starfað með leður í fylgihlutadeildum stærstu tískuhúsa
heims á borð við Chanel og Yves Saint-Laurent sneri Bergþór Bjarnason
við blaðinu og varð vegan. Hann hefur nú opnað vefverslun sem
selur eingöngu veganfylgihluti.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Snyrtitaska frá merkinu
FANTOME sem vinnur tösk-
ur úr reiðhjólaslöngum.
Taska úr vegan-
leðri frá merkinu
Jean Louis
MAHÉ.