Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Blaðsíða 29
11.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Carnac myndi vera aðlaðandi bær þó að hann hefði ekki upp á annað að bjóða en lokkandi strendur og fallegan miðbæ en til viðbótar er að finna þar forna steina. Steinaraðirnar eru eldri en Stonehenge í Bretlandi. Á svæðinu eru margar forn- minjar og alls er að finna í kringum 3.000 af þessum stein- um sem standa líkt og minn- ismerki upp úr jörðinni sem eru frá því á milli 5.000 og 3.500 ár- um fyrir Krist. Ekki er vitað hvernig stein- arnir voru reistir eða af hverju en það er talið hafa verið gert í trúarlegum tilgangi. Þyngstu steinarnir eru í kringum 300 tonn. Bærinn er við suðurströnd Bretaníuskaga og er um 32 km vestur af fallega miðaldabæn- um Vannes. GettyImages/iStockphoto CARNAC Fornir steinar og strendur Borgin Saint-Malo er vinsæll ferðamanna- staður með sínum þröngu götum innan við borgarmúrana. Þarna er gaman að labba um göturnar og líka heimsækja söfn eins og kastalann í borginni. Kirkja borgarinnar þykir líka falleg. Þarna eru margar gamlar byggingar en það sem kemur á óvart er að stór hluti bæj- arins hefur verið endurbyggður í upp- runalegri mynd eftir að hafa eyðilagst í sprengjuárásum í síðari heimsstyrjöldinni. Það er hægt að fara með ferju á milli Sa- int-Malo og Portsmouth í Bretlandi daglega en líka er hægt að taka hraðlest þangað frá París, Rennes og fleiri stöðum í Frakklandi. Á svæðinu er sitthvað að gera fyrir fjöl- skyldur en til að mynda er í borginni vinsælt sædýrasafn og líka Le Labyrinthe du Cor- saire, skemmtigarður með völundarhúsi. SAINT-MALO GettyImages/iStockphoto Innmúruð hafnarborg Miðaldabærinn Dinan stendur við ána Rance. Hann einkennist af þröngum steinlögðum götum og bindingsverkshúsum. Stór hluti múra bæjarins hefur varð- veist frá þessum tíma. Í bænum var mikilvæg höfn en nú er búið að breyta pakkhús- unum við ána í veitingastaði og verslanir. Hægt er að fara með bát í átt til sjávar til Saint-Malo eða í hina áttina til að skoða miðalda- kirkjuna Saint-Magloire. Annað hvert ár (á sléttum töl- um) er haldin miðaldahátíðin Fête des Remparts í bænum. Þá er bærinn skreyttur og margir bæjarbúar klæða sig upp í mið- aldaföt. Hátíðin fer alltaf fram þriðju helgina í júlí. Bærinn er vinsæll ferða- mannastaður á sumrin en á kvöldin leggst jafnan ró yfir bæ- inn. DINAN GettyImages/iStockphoto Heillandi miðaldabær Stærsta eyjan við Bretaníu- skaga er hin fagra og rétt- nefnda Belle Île. Þar eru til að mynda margar fallegar strend- ur. Plage de Donnant er vinsæl strönd hjá brimbrettafólki en síðan eru strendurnar Plage d’Herlin og Plage de Balu með grunnu vatni sem er kjörið fyr- ir fjölskydur. Plage des Grands er tveggja kílómetra löng með gullnum og hvítum sandi og er einhver sú vinsælasta. Eyjan er 84 ferkílómetrar að stærð. Suðvesturströnd hennar einkennist af bröttum og háum klettum en norðaust- urhlutinn er prýddur fallegum ströndum. Það rignir ekki eins mikið á eyjunni og á meg- inlandinu og veturnir eru jafn- framt mildari. Skráðir íbúar eyjunnar voru 4.920 árið 2009. Á sumrin fer hins vegar fjöldi íbúa í 25.000 og jafnvel alveg í 35.000 milli 15. júlí og 15. ágúst. Margir eiga sumarhús á eyjunni. Tvær stærstu hafnirnar eru í þorpunum Le Palais og Sauzon, sem sést á myndinni hér við með fallegum bleikum húsum. Síðarnefndi bærinn er góður staður fyrir fólk að sækja heim í sinni fyrstu heimsókn til eyj- unnar. Höfnin er sérleg falleg. Það er nóg að gera fyrir úti- vistarfólk á eyjunni en þarna er hægt að fara á brimbretti, í golf, köfun, á kajak, ferðast um á hjólum og fara í göngu. Lyrique en Mer/Festival de Belle Île er stærsta óperuhá- tíðin í vesturhluta Frakklands. Hátíðin var stofnuð af banda- ríska óperusöngvaranum Rich- ard Cowan árið 1998. Settar eru upp tvær óperur á sumri. Eyjan hefur jafnframt laðað að sér fjölda listamanna í gegnum tíðina. Meðal annars hefur Claude Monet málað ströndina þar. Henri Matisse heimsótti eyjuna árin 1897 og 1898. BELLE ÎLE GettyImages/iStockphoto Falleg eyja og vinsæll sumardval- arstaður Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is 32.500kr HILLA MEÐ SNÖGUM 24.900kr GLERBOX 3.600kr BEKKUR SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 17:00 í Hörpu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.