Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.02.2018, Qupperneq 34
LESBÓK
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.2. 2018
Leikhópurinn RaTaTam, sem orðinn errétt rúmlega þriggja ára, frumsýndi íTjarnarbíói á föstudaginn, 9. febrúar,
annað leikverk sitt sem nefnist Ahhh … og er
byggt á völdum textum, smásögum og ljóðum
Elísabetar Jökulsdóttur sem fjalla með einum
eða öðrum hætti um ástina. Leikhópurinn bjó
til hressan, skemmtilegan og einlægan kaba-
rett út frá þeim efnivið. Charlotte Bøving leik-
stýrir sýningunni og leikarar
í henni eru Albert Halldórs-
son, Guðmundur Ingi Þor-
valdsson, Halldóra Rut Bald-
ursdóttir og Laufey Elías-
dóttir.
Síðasta sýning RaTaTam,
Suss!!!, fjallaði um heimilis-
ofbeldi og var hún byggð á
reynslusögum af slíku of-
beldi, sögum þolenda, gerenda og aðstand-
enda, og segir í tilkynningu um Ahhh … að
leikhópurinn hafi þurft að „heila sig frá of-
beldinu og fá inn meiri ást“. Hópurinn hafi
líka viljað fjalla um ástina þar sem ofbeldi
spretti oft út frá skorti á ást eða hræðslu við
að vera ekki elskaður eða elskuð.
Frjósamur leikhópur
„Það brennur í huga margra fyrirbærið ást
og ég held að eftir þrekraun okkar með
Suss!!! höfum við komist að því að …“ segir
Halldóra og gerir óvænt hlé á símtalinu til að
ná andanum. „Fyrirgefðu en ég er ólétt, var
að ganga upp stiga og varð bara svo móð!“
segir hún svo og skellihlær. „Það er rosaleg
frjósemi í hópnum okkar,“ bætir hún svo við,
„tvær gátu ekki verið með í sýningunni af því
þær eignuðust barn í æfingaferlinu og svo
eru tvær ófrískar í viðbót í hópnum.“
– Það er skemmtilegt og þá sérstaklega
þegar litið er til umfjöllunarefnisins sem er
ástin.
„Já, nákvæmlega, ástin blómstrar alla
vega í hópnum,“ segir Halldóra og hlær inni-
lega, enn að ná andanum. Hún nær honum og
heldur áfram þar sem frá var horfið. „Við
vorum búin að vera svo mikið í ofbeldinu og
eftir því sem við rannsökuðum það betur og
fórum dýpra inn í efnið var það niðurstaða
okkar – og er bara satt – að ofbeldi myndast
vegna ástleysis. Ef það vantar ást upplifir
fólk ótta og óttinn getur brotist út í formi
ólíkra tilfinninga, reiði og meðvirkni og þar
frameftir götunum,“ segir Halldóra. Leik-
hópurinn hafi, eftir alla sína heimildavinnu
fyrir Suss!!!, áttað sig á því að bæði gerendur
og þolendur upplifa ástleysi og skort á kær-
leika.
Stórt og fallegt sköpunarverk
„Það óx mjög eðlilega frá Suss!!! að fara og
finna ástina, leita að henni. Svo var líka
skemmtilegt með Elísabetu Jökuls að við
skoðuðum verkin hennar og fórum á gjörn-
inga með henni þegar við vorum að fjalla um
heimilisofbeldi. Hún fjallar vel um það í sín-
um textum og þegar við erum svo að velta
fyrir okkur ástinni erum við að rannsaka
marga möguleika, hvert við getum farið og
hvar við getum leitað að efni og nýtt það, ann-
ars staðar en frá okkur persónulega og úr
heimsóknum. Og þá komu textarnir hennar
Elísabetar til okkar því hún fjallar líka mikið
um ástina og einmanaleikann,“ segir Hall-
dóra.
– Þannig að eitt verk leiddi í raun af öðru?
„Já og í rauninni alveg óvart því við vorum
búin að ákveða að taka fyrir ástina, að það
væri fyrirbærið sem við ætluðum að skoða
nánar en svo fengum við endanlega staðfest-
ingu á því að það væri málið eftir að við byrj-
uðum að kafa dýpra í ofbeldið.“
Halldóra segir hópinn hafa sökkt sér í höf-
undarverk Elísabetar. „Við erum búin að lesa
öll verkin hennar og hvort sem textarnir rata
sem slíkir beint inn í sýninguna eða ekki eru
þeir alla vega þarna undir niðri. Þetta eru
textar úr flestum hennar útgefnu bókum,
ljóðabókum og smásagnabókum,“ segir hún.
– Það hefur verið mikil vinna að fara yfir
þetta allt saman?
„Já en æðisleg vinna því textarnir hennar
eru frábærir,“ segir Halldóra kímin. „Hún er
náttúrlega bara eitt stórt og fallegt sköpunar-
verk sjálf og er búin að taka svolítið þátt í
þessu með okkur, spjalla við okkur, tala um
ástina og ástina út frá henni.“
Stuð og kómík
Halldóra er spurð hvernig hópurinn hafi unn-
ið verkið út frá þessum textum Elísabetar,
hvort hann hafi t.d. spunnið söguþráð utan
um þá og svarar hún því til að sýningin sé
unnin með „devised“ aðferð.
„Það er ekki til neitt gott íslenskt orð yfir
„devised“ en við erum búin að vera að vinna
sýninguna alveg til dagsins í dag og erum að
vinna alveg fram að frumsýningu. Þar af leið-
andi erum við búin að vera að púsla henni
saman og öllum þessum textum, raða þeim
saman eins og okkur þykir réttast, í takt við
leikhústöfrana,“ útskýrir hún. Verkið sé brot-
inn kabarett. „Við notum kabarettformið, sem
styður svolítið vel við þennan frásagnarmáta,
að segja sögur og fara með ljóð.“
Til frekari útskýringar á „devised“ aðferð-
inni má bæta því við að auk þess að skrifa
handritið finnur leikhópurinn lausnir hvað
varðar sviðsetningu. Aðferðin er því mjög ná-
lægt spuna þar sem lagt er af stað út frá
ákveðinni hugmynd eða þema sem hópurinn
vinnur með og þróar á æfingatímabilinu.
Þannig verður handrit verksins smám saman
til og getur verið í mótun allt fram að frumsýn-
ingu.
– Er þá dansað og sungið?
„Já, það er dansað og sungið og það er stuð
og kómík. Ég vona alla vega að fólk eigi eftir
að hlæja og hafa gaman af, við skemmtum okk-
ur alla vega konunglega,“ segir Halldóra kím-
in.
Litur tilfinninganna
Af ljósmyndum að dæma eru búningar leik-
aranna ansi skrautlegir og segir Halldóra að
búninga- og leikmyndahönnuðurinn, Þórunn
María Jónsdóttir, sé algjör snillingur í sínu
fagi.
„Hún hannaði sviðsmyndina þannig að rauð-
ur er einkennandi litur og úr loftinu hanga
silkistrangar, fólk hangir í þeim og gerir alls
konar fimleika. Ég er ekki að gera það – ég
reyndi samt til að byrja með en það virkar ekki
lengur,“ segir Halldóra hlæjandi. Slíkar æfing-
ar henti ekki óléttum konum og því fái Laufey
að sjá um þær.
Halldóra segir rauða litinn táknrænan og að
Þórunn líti á hann sem tákn fyrir reiðina, ást-
ina og aðrar tilfinningar, æðakerfið sem hægt
sé að hanga í og fleira í þeim dúr. Svipaðar
pælingar eigi við um búningana sem séu tákn-
rænir fyrir þá tilfinningu að vera flæktur inn í
sjálfan sig. „Axlaböndin halda manni uppi en
hefta mann á sama tíma og ef maður misskilur
ástina getur hún heft mann í stað þess að gera
mann frjálsan. Þar liggur mín túlkun,“ segir
hún.
Næstu sýningar RaTaTam á Ahhh … verða
í Tjarnarbíói 17., 22. og 25. febrúar og segir
Halldóra að sýningafjöldi fari eftir aðsókn og
viðtökum. Þá sé ekki útilokað að sýningin fari
á flakk erlendis, líkt og Suss!!! gerði en sú sýn-
ing hlaut mikið lof gagnrýnenda og vakti mikla
athygli og lukku, bæði hér á landi og erlendis.
Úr sýningunni Ahhh … í Tjarnarbíói.
Albert Halldórsson, Guðmundur Ingi
Þorvaldsson og Halldóra Rut Bald-
ursdóttir leika á hljóðfæri og horfa
upp til Laufeyjar Elíasdóttur sem sýnir
listir sínar í fagurrauðum silkistranga.
Ljósmynd/Saga Sig.
Ástin blómstrar í RaTaTam
Leikhópurinn RaTaTam tekur ástina fyrir í nýrri sýningu sinni, Ahhh...., í Tjarnarbíói. Hópurinn fjallaði síðast um heimilisofbeldi
en vinnur nú með kabarettformið út frá völdum textum rithöfundarins og ljóðskáldsins Elísabetar Jökulsdóttur.
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is
’ Við erum búin að lesa öllverkin hennar og hvort semtextarnir rata sem slíkir beintinn í sýninguna eða ekki eru
þeir alla vega þarna undir niðri.
Þetta eru textar úr flestum
hennar útgefnu bókum, ljóða-
bókum og smásagnabókum.
Halldóra Rut
Baldursdóttir
Leiðsögn með forsætisráðherra
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra gengur með gestum um Þjóð-
minjasafnið á morgun, sunnudag, kl. 14, og veitir leiðsögn undir yfir-
skriftinni Galdrar, glæpir og glæfrakvendi.