Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 1

Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 1
F I M M T U D A G U R 2 2. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  69. tölublað  106. árgangur  FJÖLBREYTT UMFJÖLLUN UM IÐNAÐINN ÞRÓA TIL- LÖGUR ÍSLANDSBANKI AFHENTI RANGAR UPPLÝSINGAR FENEYJATVÍÆRINGUR UNDIRBÚINN 72-73 VIÐSKIPTAMOGGINNSÉRBLAÐ 16 SÍÐUR „Rek á ísnum núna er mun meira en verið hefur og því er mik- ið um ferðir ísbjarna,“ segir Árni Valur Vilhjálmsson ferða- garpur. Þeir Ragnar Axelsson, ljósmyndari Morgunblaðsins, voru nú vikunni á Tóbín-höfða við Scoresbysund á austur- strönd Grænlands, yfirgefinni byggð sem ferðamenn sýna vaxandi áhuga. Þar felldu menn ísbjörninn, sem hér sést á mynd, bókastaflega við húsdyrnar á mánudagskvöldið eftir að hann hafði ráðist á mann og bitið þrisvar. Annar stærri björn var felldur strax næsta dag. Morgunblaðið/RAX Felldu ísbjörn í yfirgefinni byggð Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nokkrar af stærstu bílaleigum landsins hyggjast kaupa mun færri nýja bíla inn til landsins í flota sinn á þessu ári en þær gerðu á því síðasta. Þetta staðfesta forsvarsmenn fyrirtækjanna í samtali við ViðskiptaMoggann. Þannig segir Þor- steinn Þorgeirsson, framkvæmdastjóri bifreiða- sviðs Avis, að fyrirtækið muni kaupa 40% minna inn af bílum í ár en í fyrra. Steingrímur Birg- isson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar, segir að allt stefni í að fyrirtækið kaupi 20% færri nýja bíla inn til landsins í ár en yfir sama tímabil í fyrra. Þá staðfestir Vilborg Anna Garðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Sixt, að samdrátt- urinn á þeim vettvangi muni að öllum líkindum nema 10-12%. Hendrik Berndsen, stjórnarformaður Hertz, segir ekki ljóst hversu mikill samdrátturinn verði á vettvangi fyrirtækisins en það muni ekki síst ráðast af því hversu vel takist til við að selja notaða bíla úr flotanum. Það var aðeins Garðar Sævarsson, rekstrarstjóri Enterprise, sem tjáði blaðinu að fyrirtækið byggist við því að nýliðun í flotanum yrði með svipuðu móti og í fyrra. Er það samdóma álit allra viðmælenda blaðs- ins að versnandi rekstrarhorfur hafi breytt stöð- unni á bílaleigumarkaðnum. Þá hafi breyttar reglur um vörugjöld á bílaleigubíla kallað á að leggja þurfi meira eigið fé inn í kaup á hverjum bíl og að fyrirtækin hafi ekki gott svigrúm til þess. Kaupa mun færri nýja bíla  Bílaleigur panta mun færri bíla en í fyrra  Rekstrarumhverfið sagt afar erfitt  Jin Zhijian, sendiherra Kína á Ís- landi, segist í samtali við Morgun- blaðið vilja efla samstarf og sam- vinnu Íslands og Kína á ýmsum sviðum. Nefnir hann í því samhengi m.a. málefni norðurslóða, nýtingu jarðvarma og ferðaþjónustu, en hann vill að komið verði á beinu flugi á milli Keflavíkur og Kína. Það sé lykilatriði í nánu samstarfi. „Ég tel að það sé vel hægt að opna beina flugleið á milli Kína og Íslands vegna þess að það bætist sífellt í hóp þeirra sem vilja ferðast þessa leið,“ segir hann, en beint flug eykur einnig viðskipti. »24 Vill sjá beint flug frá Keflavík til Kína MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUROG KODDAR HEILSURÚM ALLARSTÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.