Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 68

Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 68
68 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 O ttó A u g lýsin g astofa teppaflísar Sterkar og einfaldar í lögn FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510 Ég held að ég stingi hausnum í sandinn og afneiti því að ég sé orð-inn fertugur,“ segir Rökkvi Vésteinsson, leiðsögumaður oguppistandari, en hann á 40 ára afmæli í dag. „Þessi störf styrkja hvort annað enda snúast þau bæði um að vera skemmtikraft- ur.“ Rökkvi starfar aðallega hjá Bustravel.is og er í dagsferðum í rútum og hefur einnig aðeins verið í gönguleiðsögnum. Næsta uppistand hjá honum er síðan á Akranesi á laugardaginn. „Ég er að spá í að kalla það Fertugur fauskur að reyna að vera fyndinn. Ég man að ég talaði um fertugt fólk sem gamalt og nú er ég orðinn fertugur en hef ekki þrosk- ast eins mikið og ég hélt að ég myndi gera. Ég er síðan hægt og rólega að byrja með „podcast“-þætti, en ég er nýhættur með útvarpsþátt sem ég var með í tvö ár. Þar ætla ég að henda fram alls konar skoðunum á krassandi hátt sem maður mundi ekki geta gert á hvaða útvarpsstöð sem er.“ Rökkvi er síðan á leið til Montréal þar sem hann hóf uppistands- ferilinn sinnaf einhverju viti. „Þar tók ég þátt í uppistandskeppnum, en þetta var miklu meira stökk en ég hélt að vera með uppistand á ensku. Síðan hef ég verið með uppistand á þýsku, sænsku og dönsku, ég var t.d. með uppistand á dönsku á Grænlandi í fyrra og nú er ég orðinn tungumálanörd í uppistandi. Það er samt alltaf erfitt að vera með uppi- stand á þýsku. Það er sagt að Þjóðverjar séu ekki fyndnir, en ég held að það sé erfiðara að vera fyndinn á þýsku. Þýskan er svo „strúkteruð“.“ Eiginkona Rökkva er Anne Steinbrenner ferðaskipuleggjandi og dætur þeirra eru Laufey 8 ára og Embla 6 ára. Á sviði Rökkvi verður með uppistand í Dularfullu búðinni á Akranesi laugardaginn 24 mars n.k. og mun þá m.a fjalla um þennan háa aldur. Með uppistand á ýmsum tungumálum Rökkvi Vésteinsson er fertugur í dag M agnea Kristín Mar- inósdóttir fæddist á Akureyri 22.3. 1968. Hún ólst þar upp og var í sveit á sumrin hjá ömmu sinni, Magneu Kristínu Sig- urðardóttur, á Hóli í Köldukinn. Magnea var í Barnaskóla og Gagn- fræðaskóla Akureyrar. Hún lauk stúdentsprófi frá MA 1988, BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla 1995, námskeiðum í opinberri stjórnsýslu og stjórnun við Endurmennt- unarstofnun HÍ 1997 og í al- þjóðalögum við HÍ 2001, og meist- araprófi í átaka- og friðarfræðum við School of Foreign Service í George- town-háskóla, Washington DC, 2004. Til námsins hlaut hún Fulbright-styrk og styrk frá samtökum bandarískra háskólakvenna (International Fel- lowship of the American Association of University Women) auk styrks til að gera rannsókn á aðgerðum til að stemma stigu við kynbundnu ofbeldi í flóttamannabúðum í Tansaníu frá the Institute for the Study of Int- ernational Migration. Magnea hefur auk þess lokið fjölda námskeiða í þróunar-, mannúðar- og Magnea Marinósdóttir, sérfr. hjá velferðarráðuneyti – 50 ára Við Háls í Fnjóskadal Magnea, ásamt afkomendum afa hennar og ömmu í móðurætt, Olgeirs og Þóru á Vatnsleysu í Fnjóskadal. Myndin var tekin á samkomu sem haldin var í tilefni af hundrað ára fæðingarafmæli þeirra. Barist fyrir réttindum stríðshrjáðra kvenna Í Palestínu Magnea með frambjóðendum til sveitarstjórnarkosninga, 2017. Í dag, 22.mars, fagna hjónin Kol- brún Gunnarsdóttir og Erling Jón Sigurðsson demantsbrúðkaupi. Þau hafa verið gift í 60 ár. Á morgun, 23. mars, fagnar Erling 80 ára afmæli sínu. Kolbrún og Erling hafa verið búsett mestallan sinn hjúskapartíma í Reykjavík á Langholtsvegi, fyrir ut- an nokkur ár á Skagaströnd. Þau eiga fimm börn, sextán barnabörn og átta barnabarnabörn. Árnað heilla Demantsbrúðkaup Akureyri Gabriel Björn Sigurðs- son fæddist 22. mars 2017 kl. 23.17 og á því eins árs afmæli í dag. Hann vó 3.355 g og var 51 cm langur við fæðingu. Foreldrar hans eru Auður Birna Þorsteinsdóttir Blöndal og Sig- urður Haukur Valsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.