Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 32

Morgunblaðið - 22.03.2018, Side 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2018 SKRIFSTOFUHÚSGÖGN Síðumúli 35 | 108 Reykjavík | S. 568 2828 | www.holmris.is Bjóðum uppá húsgögn eftir marga fræga húsgagnahönnuði. Mörg vörumerki. a Auðveldara að þrífa penslana aGufar ekki upp aMá margnota sama löginn aNotendur anda ekki að sér eiturefnum a Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum aUNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn Hágæða umhverfisvæn hreinsivara Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunumLaugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir í fötum Ný sending af glæsilegum jakkafötum frá Frábært úrval! B E C K U O M O Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Borgarráð hefur samþykkt að auglýsa breyt- ingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar Hall- armúli 2. Nú er á lóðinni tveggja hæða versl- unarhús en leyft verður að hækka bygginguna í fimm hæðir og innrétta þar hótel. Á næstu lóð, Suðurlandsbraut 2, er hótelið Hilton Reykjavík Nordica, níu hæða bygging. Í skipulagslýsingu Yrki arkitekta, sem er grunnurinn að nýju deiliskipulagi, kemur fram að nýtingarhlutfall á reitnum verði aukið úr 0,99 í 2,11. Bygging ofanjarðar geti orðið allt að 6.800 fermetrar og einnig er gert ráð fyrir bílakjallara. Bílastæðum ofanjarðar á lóðinni mun fækka. Lóðin sjálf er alls 3.081 fermetri. Á lóðinni stendur nú tveggja hæða versl- unarhús, byggt 1971. Fyrirtækið Tölvutek rekur verslun í húsinu. Fram kemur í skipu- lagslýsingunni að gerð hafi verið frumathugun á burðarvirki núverandi húss með tilliti til þess að byggja ofan á það 6-8 hæðir. Nið- urstaðan var sú að raunhæft sé að láta núver- andi hús standa með því að fjarlægja þakið og styrkja burðarvirkið. Ef í ljós komi engu að síður að ekki verði hægt að halda í núverandi byggingu og byggja ofan á hana verður heimilt að rífa hana og byggja í staðinn nýtt hús frá grunni. Byggingin er í nokkrum halla. Efsta hæðin verðir inndregin en til vesturs mun hún stall- ast niður í 1. hæð. Gert er ráð fyrir gróðri á þaksvölum og gróðurveggjum sem myndi eins konar gróðurbrekku frá þaki niður á jörð. Inn- gangur verður frá Hallarmúla. Fram kom í frétt í Morgunblaðinu í janúar síðastliðnum að Reykjavíkurborg hafi gert samkomulag við félagið HM2 ehf um upp- byggingu á lóðinni. Það er til heimilis í Borg- artúni 24. Samkvæmt Creditinfo eiga þrír fjárfestar jafnan hlut í félaginu. Þeir heita Stefán Már Stefánsson, Ellert Aðalsteinsson og Elmar Freyr Jensen. Hin fyrirhugaða upp- bygging á reitnum fellur undir samþykkt um samningsmarkmið Reykjavíkurborgar á nýj- um uppbyggingarsvæðum vegna þéttingar byggðar sem samþykkt var á fundi borgarráðs 27. nóvember 2014, að því er fram kemur í minnisblaði skrifstofu eigna og atvinnuþróun- ar hjá Reykjavíkurborg. Til stendur frekari uppbygging í Múlahverfinu enda bjóða margir reitir þar upp á frekari þróun og uppbygg- ingu. Sem fyrr segir stendur eitt stærsta hótel Reykjavíkur, Hilton Reykjavík Nordica, á næstu lóð. Hótelið hét upphaflega Hótel Esja. Byggingin var stækkuð um 7.300 fermetra í byrjun þessarar aldar og við það fjölgaði her- bergjum um 108 eða í 280. Fyrir breytingu Byggt verður ofan á lágreista húsið þar sem Tölvutek rekur nú verslun. Mynd/Yrki arkitektar Eftir breytingu Svona sjá arkitektarnir fyrir sér að hið nýja hótel á reitnum muni líta út. Fimm hæða hótel rís við Hallarmúla  Áformað að byggja ofan á lágreist verslunarhús  Bygging ofanjarðar verður 6.800 fermetrar Séð frá Lágmúla Hið nýja hótel mun rísa á baklóð Hilton Reykjavík Nordica hótelsins. Fyrirtöku í máli Benedikts Boga- sonar hæstarétt- ardómara gegn Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fyrrverandi hæstaréttardóm- ara, sem átti að fara fram í Hér- aðsdómi Reykja- víkur í gær var frestað til 12. apríl. Málið var þing- fest í nóvember síðastliðnum, en að- almeðferð fer fram í júní. Benedikt höfðaði málið vegna ummæla í nýlegri bók Jóns Steinars Með lognið í fangið – Um afglöp hæstaréttar eftir hrun. Taldi Bene- dikt ummæli Jóns um dómsmorð dómara við réttinn í máli ákæru- valdsins gegn Baldri Guðlaugs- ssyni, fv. ráðuneytisstjóra, vera ærumeiðingar. Vill Benedikt að fimm ummæli verði dæmt ómerk. Fyrirtöku í Héraðs- dómi var frestað Benedikt Bogason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.